Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Page 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1986
Andlát
Elínbjörg Sigurðardóttir lést 28. jan-
úar sl. Hún fæddist 17. september
1908 á Brúará í Kaldrananeshreppi
í Bjarnarfirði á Ströndum. Foreldrar
hennar voru Sigríður Jónsdóttir og
Sigurður Stefánsson. Ung að aldri
heitbast Elínborg Jóhannesi Jóns-
syni og bjuggu þau saman um skeið
en slitu svo samvistum. Þau eignuð-
ust einn son. Áður hafði Elínborg
eignast dóttur. Árið 1934 giftist hún
Brynjólfi Ketilssyni. Þeim varð ekki
bama auðið. Útför Elínborgar verð-
ur gerð frá Langholtskirkju í dag kl.
’* 13.30.
Jóhannes Þóroddsson frá Alviðru
lést 30. janúar sl. Hann fæddist 2.
september 1907 á Bessastöðum í
Dýrafirði. Foreldrar hans voru hjón-
in María Bjarnadóttir og Þóroddur
Davíðsson. Jóhannes vann ýmsa
verkamannavinnu meðan kraftar
■> entust. Hann giftist Fanneyju Frið-
riksdóttur en hún lést árið 1976.
Útför Jóhannesar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Guðni Þorberg Theodórsson,
Smiðjuvegi 13, Kópavogi, lést í Borg-
arspítalanum 28. janúar sl. Útför
hans fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 7. febrúar kl. 15.
Ólafur Þ. Pálsson, byggingameistari,
lést í St. Jósefsspítala 4. febrúar sl.
Guðbjörg Kristín Guðbrandsdóttir
frá Veiðileysu, vistmaður á Hrafn-
istu í Reykjavík, andaðist þriðjudag-
inn 4. febrúar.
Magnús Konráðsson verkfræðingur,
sem lést 23. janúar sl. að heimili sínu
* Drápuhlíð 29, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 7. febrú-
arkl. 13.30.
Sigurlaug Margrét Pétursdóttir,
Seljabraut 10, Seltjamamesi, sem
lést í Landspítalanum 29. janúar sl.,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30.
Guðmundur K. Gíslason vélstjóri
verður jarðsunginn frá Fossvogska-
pellu föstudaginn 7. febrúar kl. 15.
Arshátíðir
Árshátíð Blindrafélagsins
verður haldin að Hótel Hofi, Rauðar-
árstíg, laugardaginn 9. febrúar. Allir
félagsmenn og velunnarar velkomn-
ir. Miðasala er á skrifstofu félagsins,
Hamrahlið 17.
Fundir
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
1 Reykjavík
heldur aðalfund sinn í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30 að Ásvallagötu
1.
Kvenfélagið Hrönn
Aðalfundur félagsins verður í kvöld,
fimmtudag 6. febrúar, kl. 20.30 að
Borgartúni 18. Hinn vinsæli þorra-
matur fram borinn.
Pallborðsumræður um kristna
trú í Norræna húsinu
í kvöld kl. 20.30 gengst Kristilegt
stúdentafélag fyrir almennum fundi
í Norræna húsinu um kristna trú.
Yfirskrift fundarins er „Viðhorf mitt
til Krists". I upphafi fundarins flytja
framsöguerindi þau Árni Bergmann
rithöfundur, sr. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, Sigurður A. Magnús-
son rithöfundur og Sigurður Pálsson
deildarstjóri. Þau munu síðan taka
þátt í pallborðsumræðum og svara
fyrirspurnum er fram kunna að koma
á fundinum.
Félag raungreinakennara
Almennur félagsfundur verður hald-
inn í félagi raungreinakennara laug-
ardaginn 8. febrúar kl. 14 á Sal
Menntaskólans í Reykjavík. Fundar-
efni: 1. Stærðfræðikeppni framhalds-
skólanna. Niðurstöður keppninnar
ligja nú fyrir. Greint verður frá töl-
fræðilegri úrvinnslu úr lausnum og
framhaldsþjálfun þeirra keppenda
sem stóðu sig best í forkeppninni. 2.
Sviðshugtakið og nemendur. Nýlega
hafa birst greinar í tímaritunum
Physics Teacher og European Jour-
nal of Physics eftir Leó Kristjánsson
um eðlisfræðikennslu. Hefur hann
sérstaklega fjallað um nýjar leiðir til
að gera tilraunir með rafsvið og
segulsvið. Leó hefur fallist á að koma
og greina frá þessum hugmyndum
og spjalla við félagsmenn. 3. Kaffi-
Tilkynningar
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort safnaðarfélags
Áskirkirkju hafa eftirtaldir aðilar til
sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Austur-
brún 37, sími 681742. Guðrún Jóns-
dóttir, Kleifarvegi 5, sími 681984.
Ragna Jónsdóttir, Kamsvegi 17, sími
82775. Þjónustuíðbúðir aldraðra,
Dalbraut 27, Helena Halldórsdóttir,
Norðurbrún 1. Holtsapótek, Lang-
holtsvegi 84. Verslunin Kirkjuhúsið,
Klapparstíg 27. Þá gefst þeim, sem
ekki eiga heimangengt, kostur á að
hringja í Áskirkju, sími 84035 milli
kl. 17 og 19 á daginn og mun kirkju-
vörður annast sendingu minningar-
korta fyrir þá sem þess óska.
Hugmyndasamkeppni meðal
barna í grunnskólum
I tilefni af 200 ára afmæli Reykjavík-
urborgar gengst Bandalag kvenna í
Reykjavík fyrir hugmyndasam-
keppni meðal barna í grunnskólum
borgarinnar um efnið „Hvernig má
bæta umhverfi borgarinnar“. Til-
gangurinn er að fá börn til að taka
afstöðu til umhverfis síns og fá álit
þeirra á því sem betur má fara í
borginni. Ætlast er til að úrlausnum
sé skilað sem ritgerð eða teikningu.
Verðlaun eru veitt fyrir tvær bestu
úrlausnirnar í báðum flokkum.
Hugmyndasamkeppni þessi var
kynnt sjðastliðið haust í grunnskól-
um Reykjavíkur. Skilafrestur var
ákveðinn 1. febrúar 1986. Vegna
fjölmargra óska hefur skilafrestur-
inn verið framlengdur um einn
mánuð og er nú til 1. mars 1986. 1.
verðlaun í báðum flokkum eru 20.000
krónur. 2. verðlaun í báðum flokkum
eru bókaverðlaun. Úrlausnir skal
senda til: Bandalag kvenna í Reykja-
vík, Hallveigarstöðum, 107 Reykja-
vík. Bandalag kvenna í Reykjavík
•hvetur foreldra til að vekja áhuga
barna sinna á umhverfí borgarinnar
og taka afstöðu til þess. Falleg borg
er betri bústaður. Allar nánari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu
Bandalagsins, Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, sími 26740, milli kl. 11
og 13 virka daga.
Farsóttir
í Reykjavík
í desember
1985
Farsóttir i Reykjavík samkvæmt
skýrsium 8 lækna og læknavakt-
ar idesember1985:
Inflúensa 14
Lungnabólga 51
Kvef, hálsbólga,
lungnakvef o.fl .1067
Streptókokkahálsbólga,
skarlatsótt 9
Einkirningasótt 0
Útbrot og kláði
(þarafkláðamaur3) 14
Fimmta veikin 0
. 58
Mislingar 1
Rauðirhundar 0
0
Iðrakvef . 96
Flatlús 5
önnur lúsasmitun 2
Lekandi . 13
Þvagrásarbólga
(þar af chlamydia 30) . 58
Utvarp Sjónvarp
Guðni Baldursson viðskiptaf ræðingur:
ÞAÐ ERINNIHALDIÐ
SEM SKIPTIR MÁLI
Mér fannst sjónvarpið í gær alveg
þokkalegt. Ég sá eitthvað af frétt-
um en er ekkert upprifinn vegna
þessara tæknilegu breytinga sem
þar hafa orðið, það er innihaldið
semskiptir máli.
Ég liorfði á þáttinn hans Ómars
og hann er ágætur. Þetta er hálf-
gerður morgunþáttur, hægt að
horfa á sumt en sleppa öðru. Mér
fannst óþarfi að vera með afsakanir
út af því að viðtalið við þá sænsku
var ekki í beinni útsendingu, mér
er nákvæmlega sama hvort er bein
útsending eða ekki.
Mér líst þokkalega á Hótel, nýja
flokkinn. Miðað við miðvikudags-
þætti er hann góður, það er húmor
í honum sem ég hef smekk fyrir.
Ég gæti trúað að ég yrði duglegri
að horfa á þennan þátt en marga
aðra.
Mér finnst sjónvarpið helst til
langt fram á kvöld, það ætti að
enda fyrir miðnætti. Það á þá frek-
ar að hafa efni sem heldur manni
ekki jafnmikið og t.d. Hótel seint
á dagskrá. Það hafa hvort eða er
svo margir video og geta þá tekið
upp það sem er síðast á dagskrá.
En ég horfi annars lítið á sjónvarp,
yfirleitt ekki þær myndir sem sýnd-
ar eru. Það er yfirleitt sama hvað
það er, ég er alltaf farinn að lesa í
miðri mynd. Það á svolítið erfitt
með að halda athygli minni.
Ég hlusta heldur ekki mikið á
útvarp en þó eru oft góðir þættir,
t.d. eftir 10 á kvöldin, spiluð góð
tónlist og fleira. Mér finnst útvarp
og bækur yfirleitt þægilegri miðill
heldur en sjónvarp.
Verðlaunasamkeppni um út-
varpsleikrit
Ríkisútvarpið/Hljóðvarp hefur
ákveðið að efna til verðlauna-
samkeppni um útvarpsleikrit. Verkin
skulu vera frumsamin og við það
miðað að þau séu á milli 40 og 60
mínútur í flutningi. Verðlaunaféð,
sem dómnefnd hefur til ráðstöfunar,
er 350 þúsund krónur og verða fyrstu
verðlaun ekki lægri en 200 þúsund
krónur. Hefur dómnefnd að öðru
leyti frjálsar hendur við úthlptun
verðlaunafjárins. Dómnefndina
skipa Jón Viðar Jónsson leiklistar-
stjóri, sem er formaður, Þorvarður
Helgason rithöfundur og Þórhildur
Þorleifsdóttir leikstjóri. Skilafrestur
í keppninni er til 15. sept nk. og
verður nánar skýrt frá tilhögun
hennar í auglýsingum.
Aðalfundur Varðbergs
félags ungra áhugamanna um vest-
ræna samvinnu var haldinn nýlega.
Ný stjórn var kosin á fundinum og
skipa hana: Formaður Gunnar Jó-
hann Birgisson, 1. varaformaður
Pétur Sturluson, 2. varaformaður
Ingólfur Guðmundsson, ritari Frið-
rik Jónsson, gjaldkeri Emil Sigurðs-
son, og meðstjórnendur Sigurbjörn
Magnússon, Sigurður M. Magnús-
son, Þórður Ægir Öskarsson og Jón
Eggertsson. Varastjórn skiþa: Har-
aldur Kristjánsson, Sævar Kristins-
son, Ævar Guðmundsson, Arnór
Björnsson, Sveinn Grétar Jónsson
og Þorsteinn Eggertsson. Auk
fundahalda um alþjóðleg stjórnmál
og varnarmál og ráðstefnuhalds um
innra öryggi íslenska ríkisins, verður
lögð áhersla á útvegun nýrra félags-
manna (einkum í skólum) á þessu
starfsári. Félagsmenn eru nú talsvert
á sjöunda hundrað.
Gjaldþrot
Með úrskurðum skiptaréttar
Reykjavíkur sem uppkveðnir voru
17. janúar 1986 voru bú neðan-
greindra aðila tekin til gjaldþrota-
skipta. Jafnframt er boðað til skipta-
funda í búum þessum og verða þeir
haldnir í dómsal skiptaréttar
Reykjavíkur að Skógarhlíð 6, á neð-
angreindum tímum. Þessir aðilar
eru: Guðrún Árnadóttir, Irabakka 8,
Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn 25. apríl 1986
kl. 11.
Kolbrún Daníelsdóttir, Freyjugötu
lOa, Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn 25. apríl 1986
kl. 11.30.
Jón S. Bjarnason, Silungakvísl 21,
Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn 25. apríl 1986
kl. 13.00.
Friðrik Ólafsson, Fannarfelli 6,
Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn 25. apríl 1986
kl. 13.30.
Guðmundur Ingvarsson, Safamýri
63, Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn föstudaginn 25.
apríl 1986 kl. 14.
Kristín H. Smáradóttir, Erluhólum
5, Reykjavík. Skiptafundur verður
haldinn föstudaginn 25. apríl 1986
kl. 14.30.
Skrá um lýstar kröfur í hvert bú mun
liggja frammi í skrifstofu skiptaráð-
anda síðustu viku fyrir boðaðan
skiptifund.
Aðalfundir
Samtök Svarfdælinga í Reykja-
vík
halda aðalfund sinn í safnaðarheim-
ili Langholtskirkju, Sólheimum 13
Reykjavík, í kvöld, fimmtudag 6.
febrúar og hefst hann kl. 20. Venju-
leg aðalfundarstörf. Á eftir verður
spiluð félagsvist.
Ferðalög
Ferðastyrkir til íslenskra fræði-
og vísindamanna
Islandsnefnd Letterstedtska sjóðsins
hefur ákveðið að veita ferðastyrki á
árinu 1986 til íslenskra fræði- og
vísindamanna sem ferðast vilja til
Norðurlanda á árinu í rannsóknar-
skyni. Tekið skal fram að ekki er um
eiginlega námsferðastyrki að ræða,
heldur koma þeir einir til greina sem
lokið hafa námi en hyggja á frekari
rannsóknir eða þekkingarleit á sínu
sviði. Umsóknir skal senda til ís-
landsnefndar Letterstedska sjóðsins
c/o Þór Magnússon, Þjóðminjasafn
Islands, Pósthólf 1489, 121 Reykja-
vík, fyrir 28. febrúar 1986. Veitir
hann einnig nánari upplýsingar.
Útivistarferðir
Fimmtudagur 6. febrúar. Mynda-
kvöld Útivistar verður í Fóstbræðra-
heimilinu Langholtsvegi 109 kl.
20.30. Myndaefni: 1. sýndar verða
myndir úr dagsferðum Útivistar í
nágr. Reykjavíkur og þær kynntar.
2. Myndir úr áramótaferð Útivistar
í Þórsmörk. 3. Myndir úr Útivistar-
ferðum í Núpsstaðarskóga og nágr.
á liðnu sumri. Kaffiveitingar
kvennanefndar í hléi. Allir velkomn-
ir, jafnt félagar sem aðrir. Þorraferð
í Brekkuskóg um helgina (7. 9.febr.)
Frábær gistiaðstaða í sumarhúsum.
Ótal göngumöguleikar m.a. fyrir
gönguskíði. Uppl. og farm. á skrifst.
Lækjarg. 6a, símar 14606 og 23732.
Gullfoss í klakaböndum á sunnudag-
inn. Sjáumst. Útivist.
Þjónusta
Félag viðskiptafræðinema
Sú nýbreytni verður tekin upp hjá
Félagi viðskiptafræðinema að hag-
nýta þá þekkingu sem er að finna
hjá nemendum deildarinnar á marg-
víslegan hátt.
Fyrirhugað er að bjóða bæði fyrir-
tækjum og einstaklingum upp á
þjónustu í formi námskeiðahalds og
annarrar aðstoðar og á þann hátt að
mynda strax tengsl þeirra nemenda,
sem eru að ljúka námi, við atvinnu-
lífið.
Þetta er liður í fjáröflun viðskipta-
fræðinema til að gera þeim kleift að
standa að námsferð til erlendra fyrir-
tækja þar sem framfarirnar hafa
verið hvað örastar á sviði tækni,
framleiðni og rekstrarhagræðingar,
enda sé sýnt að þörf fyrir nýsköpun
atvinnulífsins sé nú meiri hér á landi
en nokkru sinni fyrr.
Eitt af fyrstu skrefunum í fram-
kvæmd þessa markmiðs er framtals-
aðstoð við einstaklinga og minni
fyrirtæki þar sem áhersla verður lögð
á örugga þjónustu og afar hagstætt
verð. Þess má geta að ellilífeyris-
þegum verður boðið upp á þessa
þjónustu með helmingsafslætti.
Afmæli
70 ára er í dag, 6. febrúar, frú Ingi-
björg Guðmundsdóttir frá Ferju-
bakka, Miðbraut 1, Seltjarnarnesi.
Ymislegt
Félagsvist Húnvetningafélags-
ins
verður laugardaginn 8. febrúar kl.
14 í félagsheimilinu, Skeifunni 17.
Allt spilafók velkomið meðan hús-
rúm leyfir.
Myrkur
Leikfélagið „Veit mamma hvað ég
vil?“ hefur nú hafið æfingar á leikrit-
inu „Beðið í myrkri" („Wait until
dark“) eftir Frederick Knott í ís-
lenskri þýðingu Lofts Guðmundsson-
ar. Leikstjóri er Pétur Einarsson en
með helstu hlutverk fara Þórunn
Helgadóttir, Már W. Mixa, Felix
Bergsson, Þórir Bergsson, Héðinn
Sveinbjörnsson, Sólveig Svein-
björnsdóttir, Árni Eiríkur Berg-
steinsson og Guðlaugur Eyjólfsson.
Ráðgert er að hefja sýningar í lok
febrúar og munu þær fara fram á
Galdraloftinu í Hafnarstræti 9.
Enn skeggrætt
umfiskverð
f fyrramálið verður haldinn fram-
haldsfundur um fiskverð hjá yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
Það verður ugglaust ekki sá síðasti,
umræðurnar ganga ekkert sérstak-
lega vel, samkvæmt heimildum DV.
Fundur var haldinn seint í gær.
Þá var rætt um atriði eins og tækni-
leg mál varðandi fiskverðið, verð á
einstökum tegundum, hlutfall gæða
og hlutfall milli slægðs og óslægðs
fisks. Líklega verður umræðan á
morgun í svipuðum dúr. Það er þó
líklegt að ókvörðunin liggi fyrir í
næstu viku ef vel gengur, samkvæmt
upplýsingum blaðsins. -KB