Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986.
TIL SÖLU
Árg. Ekinn Verð
Opel Kadett 1982 60.000 280.000
Alfa Romeo 1500 1982 52.000 340.000
Oldsmobile Delta 88, dísil 1978 139.000 370.000
Volvo 144, nýsprautaður. 1973 160.000 150.000
Scout II nýsprautaður. 1976 138.000 350.000
upphækkaður
Plymouth Volaré, 6 cyl., ss. 1979 85.000 320.000
Dodge Aspen, 8 cyl„ ss. 1978 78.000 280.000
Lada 1500statíon 1983 32.000 180.000
Range Rover, bill i sérfl. 1980 70.000 890.000
Mikro Plus bátur, 18 feta.
mjög litið notaður, með
innréttingu og flutningsvagni,
45 hesta mótor 290.000
Bens 309 rúta, innréttuð, sann-
kallað sumarhús á hjólum, is
skápur, vaskur, eldavél, gasofn-
ar, sturta, heitt vatn, svefn-
pláss fyrir 6 til 8 manns,
dísilvél 1970 570.000
Þessir bílar fást á góðum kjörum eða í
bítaskiptum, 2ja til 3ja ára skuldabréf.
Haraldur gefur upplýsingar í síma 28830 milli kl. 13 og 19.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 134., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Asparfelli 10, þingl. eign Svövu Haraldsdóttur, fer fram eftir kröfu Ara isberg
hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I
Æsufelli 6, þingl. eign Ólafs Þorvaldssonar, fer fram eftir kröfu lónaðarbanka
islands og Steingríms Þormóðssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag 18.
febrúar 1986 kl. 14.00.Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
anncð og siðasta á hluta i Kleppsvegi 144, þingl. eign Þórðar Kristjánssonar,
fer fram eftir kröfu Ara isberg hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar
1986kl, 11.15.Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Njörvasundi 27, þingl. eign Loga Péturssonar
og Ernu Arnadóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Skúla
Pálssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Æsufelli 6, þingl. eign Hjartar Gunnarssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Möðrufelli 15, þingl. eign Aðalsteins S. Ásgrímssonar og Herborgar Bendsen, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Iðufelli 12, þingl. eign Þorkels Guðmundssonar og Jódisar Norman, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Gjald- heimtunnar i Reykjavík, Jóns Finnssonar hrl. og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri föstudag 18. febrúar 1986 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 111., 116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Gyðufelli 16, tal. eign Bjarna Eiðssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 111., 116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Nönnufelli 3, þingl. eign Hafliða B. Hákonarsonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavík og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag- inn 18. febrúar 1986 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 111., 116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Möðrufelli 5, þingl. eign Þrastar Eyjólfssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 18. febrúar 1986 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Sælkerinn Sælkerinn Sælkei
Bresku krárnar sérstæðar menningarstofnanir.
Á kráarrölti
í London
Ale-bjórinn er þó ekki eins hreins-
aður eða „filteraður“ og í honum er
ekki eins mikið gos og t.d. í þýskum
bjór. Yfirleitt þykir þessi tegund
bjórs betri úr tunnu eða flösku en
þrýstikútum sem nú er mikið farið
að nota. Best þykir að fá Ale beint
úr tunnunni í glas gestsins með
handdælu.
Sem sagt, fyrir bjóráhugamenn er
tilvalið að heimsækja krána „The
Glass Blower". Heimilisfangið er
Glasshouse Street 42, rétt hjá Picca-
dilly.
Þá er rétt að benda Lundúnaförum
á að upp með ánni Thames eru
margar fomar og fagrar krár sem
gaman er að heimsækja.
Ég vil benda sérstaklega á eina
mjög fallega en hún heitir „The
Dove“ og er nánar tiltekið á 19 Upper
Mall-Hammersmith W.6.
Ekki er auðvelt fyrir ókunnuga að
finna þessa heillandi krá en líklegast
er auðveldast að taka neðanjarðar-
lestina að Hammersmith-stöðinni og
taka þaðan leigubíl. Kráin er uppi á
bakka árinnar. Maður hefur það á
tilfinningunni að maður sé úti í sveit.
Þessi krá hefur verið starfrækt
síðan 1796. Tilvalið er fyrir ykkur
sem hafið áhuga á að kynnast Gamla
Englandi og enskum siðum að heim-
sækja þessa fallegu krá - þið sjáið
ekki eftir því.
Kjúklingalifur - góður kostur
Kjúklingalifur er ekki oft á borðum
hér á landi, enda hefur hún ekki
verið á boðstólum. Nú orðið er þó
hægt að fá kjúklingalifur í nokkrum
verslunum og svo er hægt að panta
hana í öllum betri kjötbúðum. Kjúkl-
ingalifur er sem sagt öndvegismatur.
Hún er bæði holl og góð og þar að
auki er auðvelt að matreiða hana.
Hér kemur uppskrift að rétti sem er
franskur (hvað annað?).
í réttinn þarf:
400 g kjúklingalifur
salt og svartur pipar
2 gulrætur
2 gulir laukar
1 dl vatn
2dlsýrðurijómi
1-2 msk. sinnep
steinselja
marjoram
Litramar em léttsteiktar í smjöri
á pönnu. Varast skal að steikja lifr-
amar um of. Liframar eru nú krydd-
aðar með salti, pipar og majoram eða
marjoram (þetta krydd fæst í öllum
verslunum)^
Liframar em nú teknar af pönn-
unni. Laukur og gulrætur em sett á
Kjúklingalifur er bæði holl og góð.
pönnuna (áður hefur grænmetið
verið skorið í sneiðar). Þegar græn-
metið er orðið mjúkt er lifrin sett
aftur á pönnuna ásamt sýrðum rjóma
og vatni. Rétturinn er nú látinn
smásjóða við mjög vægan hita í 10
mín. Nú er lifur og grænmeti tekið
af pönnunni, hitinn aukinn og sósan
bragðbætt með sinnepi. Þegar sósan
er orðinn hæfilega þykk er henni
hellt yfir lifrina og grænmetið. Sax-
aðri steinselju er svo stráð yfir réltt-
Með þessum bragðgóða og holla
mat er tilvalið að hafa soðin hrís-
grjón, ristað brauð og pikles.
Þegar kjúklingalifur er matreidd
verður að gæta þess að steikja hana
ekki um of og að ávallt sé nægjanlegt
smjör á pönnunni.
Þetta er sannkallaður veislumatur,
sem má nota sem forrétt eða smárétt,
ofan á brauð og svo auðvitað sem
aðalrétt.
London er líklegast sú borg sem ís-
lendingar heimsækja hvað oftast.
Segja má að nú á síðari árum hafi
London tekið við því hlutverki sem
Kaupmannahöfn hafði áður.
Islendingar þekkja London orðið
nokkuð vel. Margir hafa þann sið
að „skreppa" til London einu sinni
á ári. Þá má ekki gleyma að mikið
úrval er af ferðum til borgarinnar.
Sem kunnugt er er London borg
verslunar og lista. Flestir sem til
London fara eru einmitt að versla
og skreppa svo í leikhús en í þeim
efnum er af nógu að taka. Einn er
sá hluti enskrar menningar sem ís-
lendingar heillast af og eru það
krárnar. Krárnar í London eru kap-
ítuli út af fyrir sig sem gaman er að
kynnast. Margar krár Lundúnaborg-
ar eru fjörgamlar og því ákaflega
fallegar. Þá veita krámar viðskipta-
vinum sínum margs konar þjónustu.
Sumir fá meira að segja póstinn sinn
sendan á krána. Fyrir þá sem eru á
verslunarrölti má benda á að í hádeg-
inu er hægt að fá ódýrt en oft á tíðum
ágætt „snarl“ á kránum. En fyrst og
fremst er það bjórinn sem tengist
kránum. Nú orðið eru á boðstólum
allar algengustu bjórtegundir. Litlu
bmgghúsin em flestöll hætt en þó
eru örfá enn starfandi. Á kránni
„The Glass Blower" eru á boðstólum
nokkrar „gamlar“ bjórtegundir.
19UPPER MALLHAMMERSMITH WS
A FULLER SMITH &TURNER HOUSE
Flestar koma þessar, tegundir frá
brugghúsinu „Websters Trational
Al“. Þessar bjórtegundir heita
skemmtilegum nöfnum eins og t.d.
Courge Directiors Bitter, Greene
King Appot Ale og Websters Yorks-
hire Bitter, svo einhverjar tegundir
séu nefndar.
Flestar þjóðir drekka bjór sem er
bruggaður á sama hátt og Þjóðverjar
brugga sinn bjór en Bretar og fyrr-
verandi nýlendur þeirra drekka Ale-
bjór eða 75% kráargesta í Bretlandi
drekka Ale. Hér er að sinni ekki
pláss til að skýra út hvernig Ale er
bruggaður en af þessum bjór eru til
fjölmargar tegundir.