Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1986, Qupperneq 21
DV. LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986. NÝJASTANÝTT -ogsitthvaðfleira Umsjón: Þórír Guðmundsson Voyager eitt og tvö voru báðir sendir upp á sama tima sumarið 1977. Áður en leiðir skildu höfðu bæði geimförin kannað Júpiter og Satúrnus. Nú kannar Voyager einn ysta hluta sól- kerfisins, en Voyager tvö kemst þangað ekki fyrr en eftir að hafa rannsakað Neptúnus árið 1989. Eins og við höfum séð á myndum, sem borist hafa til jarðar undanfarna daga, er Voyager tvö geimfarið ný- farið framhjá plánetunni Úranusi. Nú er ferðinni heitið til Neptúnusar. Þangað kemst geimfarið 24. ágúst 1989 og mun þá mynda og gera rann- sóknir á þessari ystu'plánetu sólkerf- isins (hér gleymi ég ekki Plútó, sem verður á komandi árum styttra frá sólu en Neptúnus, vegna þess hvern- ig sporbaugur hennar um sólu er). Voyager var við Úranus 24. janúar í ár. Hann var í námunda við plánet- una einungis í nokkra tíma og því unnu 200 vísindamenn að því að skipuleggja heimsóknina til að ekk- ert færi úrskeiðis. Þessir vísindamenn notuðu að- dráttarafl Úranusar síðan eins og slöngvivað til að kasta Voyager í áttina til Neptúnusar. Aðdráttarafl Úranusar breytti stefnu geimfarsins um 23 gráður og jók hraða þess um 7.000 kílómetra á klukkustund. Hraði farsins er því nú um 60.000 kílómetrar á klukkustund, eða um þúsundfaldur hámarkshraðinn víða í Reykjavík. Eftir að Voyager hefur sent frá sér myndir af Neptúnusi mun hann halda áfram stefnunni út úr sólkerfinu. Árið 2012 rofnar síðan sambandið við geimfarið og mann- kyn missir sjónar af því. En ef til vill höfum við. jafnvel þá, ekki heyrt það síðasta af Voyager. Um borð í farinu er gulli slegin plata og á henni upplýsingar um jörðina og myndir af henni og íbúum hennar. Með þessu fylgja svo nákvæmar leiðbeiningar ef einhver þarna úti í mýrkrinu skyldi finna þennan útsendara jarð- arbúa. Hjartaígræðslur Læknar á Papworth-sjúkrahúsinu í Cambridge hafa grætt nýtt hjarta í 100 menn á fimm árum. Enn eru 65 sjúklinganna á lífi. 21 Sprútt sem sagði sex Fram til ársins 1940 var hægt að kaupa áhrifamikið kartöflubrenni- vín í Eistlandi. Það innihélt 98 pró- sent hreinan vínanda. Háspenna/ lífshætta Mesta rafmagnsstuð, sem nokkur maður hefur lifað af, er 230.000 volt frá háspennuleiðslu. Tölvuföt Tvö japönsk fyrirtæki hafa hannað föt sem vernda fótk gegn geislum frá tölvuskermum. Fötin eru úr polyest- erefni sem blandað er málmefnum, svo sem kopar, nikkel, kóbalt eða krómi. Fyrirtækin, Takase Dyeing & Printing Works í Osaka og Astar International í Tokyo, halda því fram að fötin hleypi aðeins á milli einum þúsundasta til einum tíuþúsundasta af geisluninni í gegn. Fötin munu vera létt og endast í að minnsta kosti eitt ár. Þau kosta eitthvað yfir þúsund krónur. i NISSAN CHERRY ir Sparneytinn it Lipur if Traustur iý Rúmgóður jt Ódýr iý Spennandi Hjá okkur er fjölbreytnin mest og kjörin best Munið bílasýningar okkar laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Tökum flesta notaða bíla upp í nýja. er hæsta trompið Verð frá kr. 398.000.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.