Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Edvarð T. Jónsson, Þórshöfn:
Útlit er nú fyrir að öll sterkustu og
þekktustu umhverfisvemdarsamtök í
heimi muni setja stefnuna á Færeyjar
í sumar í því skyni að fylgjast með og
reyna að stöðva grindadráp Færey-
inga.
Samtök Grænfriðunga hafa boðað
að hópur fólks á vegum samtakanna
muni koma til Færeyja í sumar.
Samtökin hafa sent frá sér dreifibréf
þar sem harðar aðgerðir eru boðaðar
gegn smáhvaladrápi í Færeyjum.
Grænfriðungurinn Paul Watson hef-
ur boðað komu sína á skipi sínu Sea
Shepherd hingað til Færeyja í júní,
eftir fund alþjóðahvalveiðiráðsins í
Malmö, en Watson segist ætla að
verða viðstaddur fundahöldin.
Færeyska lögreglan býr sig undir
átakaríkt sumar og hefur yfirlögreglu-
stjórinn í Þórshöfii nýverið staðfest
að lögreglustjóraembættinu hafi borist
bréf frá færeysku landsstjóminni þar
sem tilkynnt var að Watson og hans
fylgifiskar ætli sér að efha til ófriðar
í Færeyjum á komandi sumri.
Landsstjórnin fékk bréf frá Watson
fyrir skömmu, þar sem hann spyr að
því hvemig Færeyingar muni taka á
móti honum þegar hann kemur í sum-
ar.
Svar landsstjórnarinnar var á þann
veg að vel yrði tekið á móti honum,
ef hann kæmi með friði og færi að
lögum.
Færeyingar búa sig nú undir átök i sumar við fjölmarga hópa erlendra friðunar-
samtaka er hafa boðað komu sina til eyjanna til að mótmæia grindadrápi
eyjaskeggja.
Grænfnðungar í herför
til Færeyia
Gorbatsév
vill leiðtoga-
fund um
kjamorkumál
Drukknuðu í bíóferð
Talið er að að minnsta kosti fimm-
tíu kínversk skólaböm hafi drukkn-
að í Nankang héraði fyrir skömmu
er ferju, er flutti bomin yfir á eina,
hvolfdi skyndilega.
Yfir 200 skólakrakkar vom í ferj-
unni er atvikið átti sér stað. Börnin
vom í fylgd kennara síns og vom á
leiðinni í kvikmyndahús í ná-
grannabæ.
Kínverska fréttastofan segir að
yfirkennaranum, er var ábyrgur fyr-
ir bamahópnum á ferðalaginu, hafi
verið sagt upp starfi fyrir að hafa
látið það óáreitt að alltof mörgum
farþegum var hleypt um borð í ferj-
una.
Artukovic dæmdur til dauða
Króatinn Arturo Artukovic var
dæmdur til dauða í Júgóslavíu fyrir
þátt sinn í grimmdarverkum nasista
á dögum siðari heimsstyrjaldar.
Artukovi gegndi stöðu innanríkis-
ráðherra í leppstjóm nasista í
Júgóslavíu í heimsstyrjöldinni og
var að sögn saksóknara í borginni
Zagreb, þar sem dómurinn féll,
ábyrgur fyrir aftökum og misþyrm-
ingum tugþúsunda samborgara
sinna á dögum þýska hernámsins,
flestra gyðinga og tatara.
Gorbatsév Sovétleiðtogi sagði í
ávarpi til sovésku þjóðarinnar í gær
að hann hefði framlengt bann við til-
raunum með kjamorkuvopn til 6.
ágúst næstkomandi og skoraði jafn-
framt á Reagan Bandaríkjaforseta að
koma sem skjótast til viðræðna í Ev-
rópu eða japönsku borginni Hiros-
hima til viðræðna um algert bann við
tilraunum með kjamorkuvopn.
„Látum æðstu stjómendur í Banda-
ríkjunum sýna það í raun að þeir beri
líf og heilbrigði íbúa jarðarinnar fyrir
brjósti," sagði Gorbatsév.
Þetta var í fyrsta skiptið frá því
Chemobyl slysið varð, þann 26. apríl
síðastliðinn, að Sovétleiðtoginn talar
um það á opinberum vettvangi.
Sagði Gorbatsév að slysið væri tal-
andi dæmi um þá knýjandi þörf er nú
væri á því að ríki veraldar hættu fram-
leiðslu kjamorkuvopna og hæfu
allsheijar fækkun slíkra vopna.
Gorbatsév lagði og til að komið yrði
á nánari alþjóðlegu samstarfi ríkja á
sviði kjamorkumála þar sem lögð yrði
áhersla á viðvörunarkerfi vegna slysa.
Sovétríkin hafa fram að þessu verið
harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki
upplýst umheiminn um Chemobyl sly-
sið í tíma og í rauninni dregið það á
þriðja sólarhring að staðfesta að slíkt
sfys heíði átt sér stað.
í ræðu Gorbatsévs í gærkvöldi kom
fram að níu hefðu látist vegna slyssins
og 299 hefðu verið lagðir inn á sjúkra-
hús vegna geislunar.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Moskvu telja að slysið í Chemobyl sé
mesta auðmýking Sovétmanna frá því
árið 1962 að Nikita Krústjof dró til
baka árásareldflaugar Sovétmanna frá
Kúbu eftir hafhbann Bandaríkja-
manna.
Gorbatsév Sovétleiðtogi sagði í sjónvarpsávarpi sínu i gær að nú hefðu 9
látist vegna slyssins i Chernobyl og 299 manns hefðu verið lagðir inn á sjúkra-
hús vegna geislunar. Á myndinni sést hluti versins i Chernobyl. Myndin er
tekin fyrir 26. april siðastliðinn.
Mikið úrval tölvuleikja nýkomið.
Kr. 960,-
Commodore klúbbv.
Super Bawl 990,-
Bounder 93B,-
Basildon Bond 935,-
Mugsy's revenge . 925,-
Starship Andromeda . 990,-
Gyroscope . 890,-
Game Maker (disk) 2070,-
The Young Ones . 740,-
Wiew to a Kill . 350,-
Comic Bakery . 800,-
Wizardry . 600,-
Koronis Rih . 925,-
og ótal fleiri, einnig leikir á diski.
Kr. 925,-
Spectrum klúbbv.
Way of the Tiger . 990,-
. 765,-
. 810,-
Tau-Ceti . 675,-
Battle of the Planets . 990,-
Rasputin . 720,-
Super Pipeline II . 500,-
Buck Rogers . 500,-
WHAM . 900,-
Rupert . 720,-
That's the Spirit . 450,-
og ótal fleiri.
Kr. 990,- Amstrad klúbbv.
Way of the Tiger .. 990,-
Battle of the Planets .. 960,-
Rocco (box) .. 700,-
Panzadrome
Kaizer .. 810,-
Gyroscope .. 800,-
Who Dares Wins II .. 800,-
Frankie Goes to Hollyw.. .. 990,-
Strike force Harrier .. 990,-
Sama á diski ...1530,-
Yie ar Kung-Fu .. 800,-
Battle of Britain ... 990,-
og ótal fleiri.
ATARI 520 ST. PAWN 2520,-
Einnig leikir á Atari- BBC —Electron — IVISX- C-16. Opið á laugardögum kl. 9—14.
Sendum í póstkröfu.
Hjá Magna,
Laugavegi 15, simi 23011.
í<y
“ ÍSLENSK GÆÐI MF.
Ljúffengur fiskréttur unninn úr
fyrsta flokks hráefni.
Tilbúinn til matreiðslu.
FÆST í NÆSTU VERSLUN
MEÐ ANANAS
Matreiðslu tillaga og meölætl:
Bakist i ofni viö 180°C i ca. 15—20 fnin. Gott
er að setja rjóma eóa mjólk ut á.
örbylgjuofn: Losiö úr álforminu og hitiö i ca.
3VS min.
Steikió á pönnu meó smjöri. Hellió mjólk eóa
rjóma yfir
TILBÚIÐ í OFNINN
J.
UNNIÐ UR
FYRSTA FLOKKS HRÁEFNI
INNIHALD.
Fersk ýsa krydduð með úrvals jurtakryddi.
salti. ananas og grænmeti
500 gr.
FRAMLEIÐANDI ÍSLENSK GÆÐI HF.
P. O. BOX 8604
2GERÐIR
Með ananas, grænmeti og ijúf-
fengu jurtakryddi eða spergilk-
áli, rósakáli, gulrótum og blómkáli.
ÍSLENSK GÆÐIHF. - Sími 82170