Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Qupperneq 12
12
DV. FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Sykursjúkir verða að vara sig
á sykurskertum drykkjum
I eftirfarandi súluritum (súlurit la og
b) er gerður samanburður á sykur-
magni í ávaxtadrykkjum og ávaxtas-
afa. 1 súluritum 2a og b er gerður
samanburður á C-vítamíni milli hinna
einstöku tegunda.
Súlurit la og Ib
Þessi súlurit gefa greinilega til
kynna hversu mismunandi C-víta-
mínmagnið er á milli tegunda. Það
skal tekið fram að hið litla magn C-
vítamíns í Trópi eplasafanum er alveg
eðlilegt vegna þess að það er lítið sem
ekkert C-vítamín í eplum og eplasafa
(mæling í Livsmedeltabeller útgefin í
Danmörku 1983 bls. 730). C-vítamín-
magn í Flóridana eplasafanum er þar
af leiðandi óeðlilega hátt.
Einnig kemur fram töluverður mun-
ur á milli Trópí ananassafa og Flórid-
ana ananassafa (í Livsmedeltabeller
bls. 34 er magn C-vítamíns í ananass-
afa 12 mg í 100 g af sýni). Þess vegna
er C-vítamín innihaldið í Flóridana
ananassafanum heldur lágt.
Á það skal bent að í ávaxtadrykkina
(Svala, Gosa, Hi-C og ef til vill Flórid-
ana eplasafa og Califomia ávaxta-
drykkinn) er bætt C-vítamíni. Aðeins
lítið eitt kemur úr sjálfu þykkninu sem
notað er í þessa drykki.
Súlurit 2a og 2b
Eins og sjá má er sykurmagn mjög
svipað í öllum drykkjartegundunum.
Að vísu sker sykurskertur Gosi sig úr
Matur og hollusta
Gunnar Kristinsson
matvælafræðingur
vegna þess að hann inniheldur það
mikið magn að þeir sem eru sykur-
sjúkir verða að gæta þess, ef þeir
drekka hann, að reikna hann inn í
kolvetnadreifingu sína yfir daginn. (í
einni 250 ml femu em 13 g af sykri,
þ.e. um það bil 1 /i K). í raun gildir
það sama um hina sykurskertu drykk-
ina vegna þess að sykurinnihaldið
jafhgildir 'A K. Þess vegna verða syk-
ursjúkir að gæta þess að reikna með
þessum drykkjum inn í kolvetnadreif-
ingu sína ef þeir neyta þessara
drykkja.
!
i
I
Verðskrár á
hárgreiðslu-
og rakara-
stofum
Allar hárgreiðslu- og rakarastofur
em skyldar til að hafa við inngöngu-
dyr skýrar verðskrár með verði (efni
innifalið) á algengustu þjónustu sem
viðskiptamenn almennt óska eftir.
Eins skulu stofumar hafa uppi
verðskrár við greiðslukassa eða á
öðrum áberandi stað í starfsstofunni
með verði (efni innifalið) á alW þeirri
þjónustu sem þær veita.
(Ur tilkynningu Verðlagsstofriunar
nr. 13/1984.)
Er þessu á þennan veg farið á þinni
stofu? Ef ekki þá bendið á það og
hafið samband við kvörtunarsíma
Verðlagsstofhimar, númer 25522, frá
kl. 8.00 til 16.00 alía virka daga.
-S.Konn.
Verðskrár
á veit-
ingastöðum
Allir sem veitingarekstur og/eða
hótelrekstur stunda skulu festa upp
verðlista á áberandi stað fyrir fram-
an inngöngudyr þar sem fram komi
eftirtalin atriði:
Réttm- dagsins
A.m.k. tveir aðalréttir af matseðli
Könnukaffi, könnute
Bolli af kaffi, te
Nokkrar tegundir af smurðu brauði
Ö1 og gosdrykkir
Þá skulu vera uppi ítarlegar verð-
skrár við greiðslukassa eða á öðrum
áberandi stað inni á veitingastöðun-
um. Einnig skulu fyrir framan
inngöngudyr hótela og /eða veit-
ingastaða hanga uppi vandaðar
auglýsingar er greini aðgangseyri.
Þau kvöld sem hótel og/eða veit-
ingastaðir taka sérstaklega hækkað-
an aðgangseyri umfram almennan
aðgangseyri (rúllugjald) skal koma
skýrt fram í viðkomandi auglýsing-
um í fjölmiðlum hver aðgangseyrir-
inn er. í öllum tilvikum skal
söluskattur og þjónustugjald vera
innifalið í tilgreindu verði.
(Úr tilkynningu Verðlagsstofiiunar
nr.1/1985)
Er þessum ákvæðum framfylgt á
þeim stöðum sem þú sækir? Ef ekki
þá hafið samband við kvörtunar-
þjónustu Verðlagsstofnunar í síma
25522 á milli kl. 8.00 og 16.00 alla
virka daga.
-S.Konn.
Allir þessir drykkir eru mjög C-vítamínríkir, en i þá er bætt C-vítamíni.
DV-mynd PK
C-vítamín
mg/100 g.
TJ
3
C
'tn
2 5 4 5 6 > ■’ - i 0 ! ’ í 2 13 i 4 • i 5 16 17 10 19 20 21
Brix
= Kolvetni í %