Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR 15. MAI 1986.
35
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
DV spyr
á Blönduósi:
Hverju viltu spá um úrslit '
sveitarstjórnarkosninganna?
Kristófer Sverrisson: Ég held að D-
listinn fái 4 menn, vinstri menn og
óháðir 2 og alþýðubandalagsmenn
1. Spáin er því að D-listinn nái hrein-
,um meirihluta.
Jón Stefánsson: Þetta er ákaflega
óljóst, þar sem alþýðubandalags-
menn fara nú fram sér. En ætli
Framsókn, það er vinstri menn og
óháðir, fái ekki 3, D-listi 3 og al-
þýðubandalagsmenn 1 mann.
Jórunn Sigurðardóttir: Ég get
ímyndað mér að D-listinn fái 3 menn,
það er vonlaust að hann fái meira.
Vinstri menn og óháðir fá líklega 3
og alþýðubandalagsmenn 1 mann.
Og ætli Framsókn og Alþýðubanda-
lagið myndi ekki meirihluta.
Halldór Ármannsson: Mín skoðun er
sú að Framsókn, það er vinstri menn
og óháðir, fái 4 menn og þar með
hreinan meirihluta. D fær sennilega
2 og alþýðubandalagsmenn 1.
Steinunn Guðmundsdóttir: Þetta
verða svipuð hlutföll og vorið ’82.
D-listinn fær 3, nú og þeir sem buðu
saman síðast fá fjóra, skiptist þannig
að vinstri menn og óháðir fá 3 og
alþýðubandalagsmenn 1.
Steindór Jónsson: Spá min er að D-
listinn fái 4 og vinni hreinan meiri-
hluta - það munaði svo litlu síðast.
Nú vinstri menn og óháðir, það er
Framsókn, fá 2 og alþýðubandalags-
menn 1.
Blönduós er meira en
einhver stoppistöð
Margir kannast íyrst og fremst við
Blönduós sem stoppistöðina á milli
Reykjavíkur og Akureyrar. En
Blönduós er auðvitað miklu meira.
Þar búa rúmlega 1100 manns. Sveitin
í kring er blómlegt landbúnaðarhérað,
enda er það svo að þjónusta við bænd-
ur og úrvinnsla landbúnaðarafurða
j helstu atvinnugreinamar.
Blönduós er þvi mikill landbúnaðar-
bær. Halldóra Bjamadóttir, sá íslend-
ingur sem orðið hefúr elstur, 106 ára,
og dó fyrir nokkrum árum, var frá
Blönduósi. Hún komst í heimsmetabók
Guinness. Rúm 100 ár em síðan
Blönduós tók að byggjast. Tveir dan-
skir kaupmenn, Thomas Thomsen og
Hillibrandt, reistu fyrstu tvö húsin.
Nú hafa Blönduósbúar mestar áhyggj-
ur af búmarkinu í landbúnaðinum.
Dragist mjólkurframleiðslan í hérað-
inu saman um 20%, dregst vinnan
saman um 20%. Þá er útlit fyrir 20 til
40% samdrátt í sauðfjárræktun á
næsta ári. Efling atvinnulífsins og
aukin fjölbreytni í því er þess vegna
efst á baugi á Blönduósi fyrir þessar
kosningar.
-JGH
Blönduós er mikill landbúnaðarbær.
DV-mynd JGH
Sigmar Jónsson, efsti maöur á lista vinstri
manna og óháðra. DV-mynd JGH
Vmstri menn og óháðir:
Fjölbreyttara
atvinnulíf
„Við leggjum alla áherslu á áfram-
haldandi uppbyggingu atvinnulífsins
hér á Blönduósi. Hreppurinn hefur
þegar bundið fé í nýjum rækjutogara
sem hann á að hluta og eins hafa nýj-
ar hugmyndir um nýiðnað verið
keyptar. Með þessu er verið að gera
atvinnulifið fjölbreyttara, renna
styrkari stoðum undir það, en það er
nauðsynlegt," sagði Sigmar Jónsson,
efsti maður vinstri manna og óháðra
á Blönduósi. Listinn er samsettur af
framsóknarmönnum og óháðum.
„Höfn hér á Blönduósi er auðvitað
sígilt verkefhi. Hún er baráttumál
allra Blönduósbúa. Það er þegar búið
að hanna hana, en það er ljóst að hún
verður að bíða um sinn vegna togara-
kaupanna."
Sigmar sagði að vinstri menn og
óháðir hefðu ennfremur á stefnuskrá
sinni að leysa húsnæðismál skólans,
áframhaldandi byggingu íþróttahúss-
ins, leysa vanda Pólarprjóns og þrýsta
á um að lokið verði við stækkun
sjúkrahússins. -JGH
Alþyðubandal. og óháðir.
Efla sjávar-
útveginn
„Helsta baráttumál okkar er það
sama og eflaust hjá öllum öðrum, það
er bætt atvinnulíf. Fyrirtækin á
Blönduósi eru illa stödd. Við teljum
einnig að sjávarútvegur verði framtíð-
aratvinnugrein á Blönduósi, hann sé
sú grein sem styrki atvinnulífið hér
mest í framtíðinni ásamt aukinni úr-
vinnslu landbúnaðarafurða. Þvi vilj-
um við að hugað sé betur að honum,
og það var að mínu mati mjög ják-
vætt að kaupa hlutann í rækjutogar-
anum,“ sagði Guðmundur Theódórs-
son, efsti maður á lista Alþýðubanda-
lagsins og óháðra á Blönduósi.
„Hvað varðar ný fyrirtæki á Blöndu-
ósi vil ég að hreppurinn verði með
ívilnanir á ýmsum gjöldum, frekar en
bein hlutafjárkaup í þeim.“
Guðmundur lagði ennfremur
áherslu á að unnið yrði betur að skóla-
málum og dagvistunarmálum. „Skól-
inn er orðinn of lítill og það vantar
fleiri dagvistir fyrir böm. Þá má auð-
vitað ekki gleyma sjúkrahúsinu, það
þarf að ýta á að nýja byggingin verði
tekin í notkun." -JGH
Guðmundur Theódórsson, efsti maður á lista
Alþýðubandaiagsins og óháðra.
DV-mynd JGH
D-listínn:
Losa hreppinn
úr óarðbærum
fyrirtækjum
„Fjármál sveitarfélagsins eru okkur
sjálfstæðismönnum efst í huga í þess-
um kosningum. Þar má gera miklu
betur. Við viljum losa hreppinn út úr
þeim óarðbæm fyrirtækjum sem hann
hefúr fest fé í, þannig skapast meira
framkvæmdafé. Menn verða að bera
virðingu fyrir skattpeningum fólksins,
og það er ekki sama hvemig það fé
er notað,“ sagði Jón Sigurðsson, efeti
maður D-listans á Blönduósi, lista
Sjálfetæðisflokksins.
„Nú þegar fer allt of stór hluti skatt-
peninganna í fjármagnskostnað og
rekstur hreppsins og það kemur aftur
niður á framkvæmdunum. Um að festa
fé í rækjutogaranum er enginn ágrein-
ingur, það er helst að við gagnrýnum
að almenningi gafet ekki kostur á að
kaupa hlutafé því verð hvers bréfe var
það hátt.“
Jón sagði að framtíðarsýnin á
Blönduósi væri höfh á staðnum. „Hún
skapar gmndvöll fyrir íjölbreyttara
atvinnulíf sem við viljum að einstakl-
ingar og fyrirtæki beri að mestu uppi
en hreppurinn sé ekki að vafetra of
mikið i því,“ sagði Jón Sigurðsson.
-JGH
Þau ern í
framboði
Þrír listar em nú í framboði á
Bönduósi, D-listi, listi Sjálfstæðis-
flokksins, listi vinstri manna og
óháðra, samsettur af framsóknar-
mönnum og óháðum, og listi Al-
þýðubandalagsins og óháðra.
Framsóknarflokkurinn, Alþýðu-
flokkurinn, Alþýðubandalagið og
óháðir buðu síðast fram sameigin-
lega sem H-listi. Kjömum fulltrúum
verður nú fjölgað um tvo, eða úr 5 í 7.
Listi Sjáflstæðisfokks:
1. Jón Sigurðsson
2. Sigríður Friðriksdóttir
3. Ragnheiður Þorsteinsdóttir
4. Baldur Valgeirsson
5. Sigurður Eymundsson
6. Þuríður Hermannsdóttir
7. Óskar Húnfjörð
8. Guðmundur Guðmundsson
9. Guðmundur Þ. Sveinsson
10. Hjörleifur Júlíusson
11. Gunnar Sigurðsson
12. Ole Aadnegard
13. Kristín Jóhannesdóttir
14. Jón Isberg
Vinstri menn og óháðir
1. Sigmar Jónsson
2. Sigfríður Angantýsson
3. Hilmar Kristjánsson
4. Ásrún Ólafedóttir
5. Kári Snorrason
6. Aðalbjörg Þorkelsdóttir
7. Vilhjálmur Pálmason
8. Erla Björk Ólafedóttir
9. Lárus Jónsson
10. Margrét Skúladóttir
11. Guðmundur Ingþórsson
12. Njáll Þórðarson
13. Ragnar Þórarinsson
14. Ámi S. Jóhannsson
Alþýðubandalag og óháðir
1. Guðmundur Theódórsson
2. Kristín Mogensen
3. Eiríkur Jónsson
4. Ingunn Gísladóttir
5. Ásgeir Blöndal
6. Ásta Rögnvaldsdóttir
7. Jón Hannesson
8. MálfríðUr Lorange
9. Stefán Bemdsen
10. Guðrún Tryggvadóttir
11. Gísli Garðarsson
12. Jakob Jónsson
13. Gunnar Kristjánsson
14. Sturla Þórðarson
Jón Sigurðsson, efsti maður D-listans.
DV-mynd JGH
Úrslit síðast
Tveir listar voru á Blönduósi í síð-
ustu kosningum. Þeir vom H-listi, listi
vinstri manna og óháðra, samsettur
af framsóknarmönnum, alþýðuflokks-
mönnum, alþýðubandalagsmönnum
og óháðum, og D-listi, listi Sjálfetæðis-
flokksins.
Úrslit urðu þessi: (
H-listi 304 atkv. og 3 kjöma
D-listi 224 atkv. og 2 kjöma
Þessir vora kosnir: Sigurður Ey-
mundsson (D), Sigríður Friðriksdóttir
(D), Hilmar Kristjánsson (H), Sigmar
Jónsson (H) og Sturla Þórðarson (H).
-JGH