Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Síða 2
2
DV. LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
„Stjóm Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga samþykkti á fundi
sínum nýverið að heimila forstjóra
að ráðast i undirbúning að stofrmn
fjölmiðlunarfyrirtækis samvinnu-
hreyfingarinnar," segir í bréfi sem
Erlendur Einarsson, forstjóri Sam-
bandsins, sendi Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja, Alþýðusam-
bandi íslands og Stéttarsambandi
bænda fyrr í þessari viku.
Minnt er á þær viðræður sem full-
trúar Sambandsins, BSRB og ASl
áttu um fjölmiðlun síðastliðinn vet-
ur.
f bréfinu segir að hlutverk fyrir-
tækisins skuli meðal annars vera að
reka fjölmiðlun, dagskrárgerð og
efiúsöflun. Hlutafiár til félagsins
verði leitað hjá samstarfsfyrirtækj-
um og kaupfélögum innan Sam-
bandsins.
„Félagið mun síðan á grundvelli
markmiða þess leita samstarfs við
aðra aðila sem samleið kynnu að
eiga með samvinnuhreyfingunni um
einstaka þætti fjölmiðlunar."
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda hefur þegar svarað bréfinu
með samþykkt um að taka þátt í
viðræðum við SÍS, BSRB og ASÍ um
stofhun fjölmiðlunarfyrirtækis eða
aðra þá aðila sem áhuga hefðu á
slíku samstarfi og Stéttarsambandið
teldi sig geta starfað með á þessum
vettvangi. -KMU
Danirenná
sigurbvaut
- unnu V-Þjóðverja, 2-0
Danir unnu í gærkvöldi fyrsta sig-
ur sinn á Vestur-Þjóðverjum í 56 ár
er þjóðimar áttust við á HM í Mex-
íkó í lokaleik E-riðils. Lokatölur 2-0
fyrir Dani.
Jesper Olsen skoraði fyrra mark
Dana mínútu fyrir leikhlé. f upphafi
síðari hálfleiks skoraði Jens Eriksen
annað mark danska liðsins en hann
kom inn á sem varamaður í leikhléi
í stað Prebens Elkjær. Danir urðu
fyrir miklu áfalli í lok leiksins þegar
Frank Amesen fékk rauða spjaldið
og leikur því ekki með Dönum gegn
Spánveijum á þriðjudag í 16-liða
úrslitunum.
•Uruguay og Skotland gerðu
markalaust jafhtefli í gær. Uruguay
fer því í 16-liða úrslitin en Skotar
em úr leik.
Sambandið stefnir að fjölmiðlunarfyrirtæki:
Launþegahreyfíngu
boðið til samstarfs
Fulltrúum á aðalfundi Þróunarfélagsins gafst varla timi til aö kyngja einni pönnuköku áður fundinum lauk.
DV-mynd GVA.
Sátt og samlyndi í Þróunarfélagi
„Þetta var varla einnar pönnuköku
fundur," sagði einn þeirra sem sat
framhaldsaðalfund Þróunarfélagsins á
Hótel Sögu í gær. Taldi sá að fundur-
inn hefði staðið yfir í tólf mínútur.
Jóhannes Norðdal seðlabankastjóri
bar fram tillögu um stjóm og var hún
samþykkt. í aðalstjóm vom kjömir,
eins ogDV spáði í gær, þeir Guðmund-
ur G. Þórarinsson, Jón Sigurðarson,
Dagbjartur Einarsson, Ólafur B. Thors
og Ólafur Davíðsson.
Líklegt er að einhver hinna þriggja
síðasttöldu verði kosinn formaður
þegar stjómin kemur saman til fyrsta
fundar.
í varastjóm vom kjörin þau Stefán
Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka,
Bjöm Jósef Amviðarson, lögfræðing-
ur og bæjarfulltrúi á Akureyri, og
Valgerður Sverrisdóttir, bóndakona á
Lómatjöm og stjómarmaður í SÍS.
í fundarlok flutti Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra stutt
ávarp. Sagði hann að fæðing Þróunar-
félagsins hefði reynst erfið. Lýsti hann
ánægju sinni með það samkomulag
sem náðst hefði og kvaðst vonast til
að félagið yrði þróttmikið.
Vegna firéttar í DV í gær um að
Davíð Scheving Thorsteinsson hefði
reynt að afla sér fylgis til að komast
inn í stjóm Þróunarfélagsins vildi
Valur Valsson, bankastjóri Iðnaðar-
bankans taka fram að sér væri
kunnugt um að fleiri en einn hefðu
reynt að fá Davíð til að gefa kost á sér
í stjómina. Davíð hefði hins vegar
neitað.
-KMU
•Allt útlit er fyrir að leikur Dana
og Spánveija á þriðjudag verði sýnd-
ur í íslenska sjónvarpinu í dagskrár-
lok. Á fúndi útvarpsráðs í gær var
sjónvarpinu í sjálfsvald sett hvort
það sýnir leikinn eður ei. -SK.
Skiparekstur:
Færséreig-
ið kaupfar
Sameiginlegt skipafélag Færeyinga
og Austfirðinga, Skiparekstur, er að
festa kaup á 1.000 tonna kaupskipi.
Það mun sigla á milli Austfjarða og
Norðurlands að hluta, Færeyja,
Skandinavíu og Bretlands. Á undan-
fömum árum hefur Skiparekstur haft
leiguskip í þessum flutningum.
Skiparekstur er skráð félag í Færeyj-
um og Færeyingar eiga 51% í því á
móti 49% hlut aðila á Austfjörðum.
Héðan annast það meðal annars kjöt-
og mjölflutninga, flutning á margvís-
legum iðnaðarvörum og flefru. Frá
Færeyjum flytur félagið einna helst
Ibizasalt og síðan margvíslegar vörur
frá Skandinavíu.
Jónas Hallgrímsson hjá Austfari hf.
á Seyðisfirði hefur umboð fyrir Skipa-
rekstur. Hann sagði að starfeemin
heföi fyrir löngu sannað gildi sitt fyrir
Austfirðinga og ekki væri vafi á að
vömverð heföi beinlínis lækkað með
beinum innflutningi. Jafhframt hefði
verð á vörum úr Reykjavík lækkað
vegna samkeppninnar.
Sem fyrr segir verður fyrsta eigið
skip Skipareksturs 1.000 tonna fleyta,
nýlegt og vel búið skip sem kosta mun
um 40 milljónir króna. HERB
Harðar innheimtuaðgerðir hjá Lánasjóðnum:
Rukkaður áriega
um núll kronur
„Ég er vægast sagt orðinn þreyttur
á þessu. Ég er rukkaður ár eftir ár um
skuld sem hljóðar upp á núll krónur.
í ofanálág er mér hótað lögfræðingi
ef ég greiði ekki hið fyrsta," sagði Jón
Sigurðsson í samtali við DV.
Jón lauk námi í Vélskólanum 1973
og greiddi upp tíu þúsund króna
námslán sitt árið eftir. Níu árum
seinna, eða 1983, fóm honum að berast
rukkanir frá Lánasjóðnum. Honum
var tilkynnt að hann skuldaði núll
krónur og ef hann greiddi ekki skuld
sína innan 10 daga yrði málið sent
lögfræðingi sjóðsins til innheimtu. „
Ég haföi strax samband við sjóðinn
og bað um leiðréttingu. Hún kom ári
seinni og þar var tekið fram að ég
skuldaði sjóðnum ekkert. En í fyrra
fékk ég annað ítrekunarbréf og svo
eitt enn fyrir nokkrum dögum.
Ábyrgðarmaður minn, sem skrifaði
upp á skuldabréfið á sínum tíma, er
orðinn mjög hvekktur á þessu. Það
er ég líka. Það er afekaplega gremju-
legt að vera mkkaður þegar maður
skuldar ekki neitt,“ sagði Jón Sigurðs-
son.
„Mér er ekki mögulegt að skilja
hvemig þetta hefur getað átt sér stað,“
sagði Ingibjörg Ólafedóttir, fulltrúi
Lánasjóðsins, sem skrifaði öll ítrekun-
arbréfin til Jóns. „Ég hef enga skýr-
ingu á þessum mistökum aðra en þá
að nafn Jóns hafi einhvem veginn
komist inn á vanskilalista. Veðdeild
Landsbankans útbýr þann lista. Þeir
ættu að geta gert grein fyrir hvers
vegna nafn Jóns er þar niðurkomið."
„Hér er ekki um eiginlegan van-
skilalista að ræða heldur vinnulista,"
sagði Jón Pétursson, starfemaður Veð-
deildar.,, Auðvitað á nafh Jóns ekki
að vera á þessum lista þar sem hann
hefur greitt námslánið að fullu. Þetta
em mistök í kerfinu. En þau liggja
hjá Lánasjóðnum. Á listanum kemur
greinilega fram að Jón skuldi sjóðnum
ekkert. Ingibjörgu hlýtur að hafa yfir-
sést það þegar hún sendi út ítrekunar-
bréfin.
-ÞJV
Stúdentspróf:
Undirbúningur hinna
lökustu ekki veni nú
- segir formaður kennslumálanefndar háskólans
„Ég fæ ekki séð af fyrirliggjandi
gögnum að kröfúr í framhaldsskól-
um hafi minnkað. Það liggur ekkert
fyrir um að undirbúningur þeirra
sem standa lakast nú sé verri en
þeirra sem stóðu lakast fyrir t.d. 30
árum,“ sagði Þorsteinn Vilhjálms-
son, dósent í eðlisfræði og formaður
kennslumálanefhdar Háskóla ís-
lands, í samtali við DV.
„Lágmarkseinkunn þýðir ekkert
annað nú en í gamla daga. Fyrir
þijátíu árum vom þeir fáir sem luku
stúdentsprófi með þriðju einkunn en
sá hópur hefur stækkað mikið eins
og fyrirsjáanlegt var er eftirspum
eftir framhaldsmenntun jókst.
Ég get ekki sagt að nemendur
komi almennt verr undirbúnir í nám
í minni háskóladeild, verkfræði- og
raunvisindadeild. Það hefur verið
lögð áhersla á það að hafa próf sam-
ræmd frá ári til árs og í samræmi
við viðmiðanir sem tíðkast í hinum
vestræna heimi. Heildarárangur ber
þess vitaskuld merki að mikil fiölgun
hefur orðið, en það var fyrirsjáan-
legt. Allt þar til fyrir 15 árum var
lágmarkseinkunn fyrir inntöku í
verkfræði 7,25. Þessi inntökuskilyrði
vom lögð niður og það kom í ljós
að þeir sem höföu lægri einkunn en
þetta höfðu yfirleitt ekki erindi í
þetta nám. Það er ekki rétt að námi
á fyrsta ári hafi verið breytt vegna
ónógs undirbúnings stúdenta.
Það hlýtur að vera fagnaðarefni
að fleiri hljóti meiri menntun en
áður, en engu að síður er fyllsta
ástæða að menn haldi vöku sinni,
sérstaklega þegar um marga og ólíka
framhaldsskóla er að ræða. I vetur
hefur verið unnið talsvert starf í þá
vem að samræma framhaldsskóla
sem byggja á áfangakerfi.
Kennslumálanefhd vinnur að því
að finna leiðir til að stúdentum verði
veittar meiri upplýsingar um hvaða
undirbúningur hæfi ákveðnum
námssviðum, því það er alltaf tölu-
vert um að menn setjist í háskóla
án þess að hafa réttan undirbúning
undir þá grein sem þeir vilja stunda.
Ég tel jafhframt nauðsynlegt að
fjölga námsbrautum eins og meina-
tæknanámi við Tækniskólann,
þ.e.a.s. að bæta við stuttu en hag-
nýtu námi á háskólastigi.