Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1986, Qupperneq 15
DV. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Engin
hlé,
takk
Arnór hringdi:
Eins og ég er ánægður með allar
beinu útsendingamar þessa dagana
er ég óánægður með hléin sem höfð
em í hálfleik. Mér og öllum kunningj-
um mínum finnst alveg ófært að sitja
og stara á stúkuna „meðan leikmenn
sötra teið sitt“. Hvers vegna er ekki
hægt að sýna úr leikjum frá gömlum
heimsmeistarakeppnum eða öðrum
leikjum þar sem landslið hafa keppt
innbyrðis?
Það myndi drepa tímann og tví-
mælalaust hleypa meira lífi í útsend-
ingamar. Ég og fleiri viljum endilega
mælast til þess að þetta verði gert sem
fyrst og helst áður en HM er á enda.
Engin hlé í hálfleik, takk.
Amór vill fá meiri fótbolta „meðan leikmenn sötra teið sitt í hálfleik".
|3g|í VIHMUEFTIRLIT RÍKISIHS
■'■i'Uífe' Bíldshöfða 16, 112 Reykjavík.
Tilkynning!
Erum flutt að
Bíldshöfða 16
með allar deildir stofmmarinnar á einn og
sama stað og síminn er
67-25-00
Vinnueftirlit ríkisins
Bíldshöfða 16, sími 672500
Slítum
keðjurnar
Rós Gunn. hringdi:
Enn og aftur virðist vera að fara af
stað keðjubréfafaraldur. Það nýjasta
í þessum efnum er að maður borgar
ákveðna upphæð fyrir að fá bréf og fær
síðan nokkm síðar stórar íjárhæðir í
staðinn.
Ég skil bara ekkert í heilbrigðu fólki
að taka þátt í svona löguðu. Mér er
sama hvort um er að ræða bréf sem
færa manni hamingju, heppni eða
beinharða peninga. Allt em þetta hel-
ber svik og ætti hver heilvita maður
að sjá það. Mér finnst líka frekja hjá
jafnvel bestu vinum manns að vera
að senda manni svona nokkuð. Þann-
ig eiga vinir ekki að haga sér.
„Svavar, takk fyrir aila þættina á liðn-
um árum,“ segir útvarpshlustandi.
Svavar
góður
stjórnandi
Útvarpshlustandi hringdi:
Mikið er ég feginn að nú skuli hafa
linnt öllum þeim svívirðingum sem
ýmsir létu frá sér fara i garð Svavars
Gests útvarpsmanns. Svavar hefrir fyr-
ir löngu sannað að hann er einn
fremsti útvarpsmaður þessarar þjóðar.
Ásakanir á hendur honum em
sprottnar af illum hvötum.
Svavar, takk fyrir alla þættina á
liðnum áram. Ég vona að þú eigir
samleið með okkur hlustendum í ffarn-
tíðinni.