Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Stefán Baldursson leikhússtjóri í rústunum þar sem gögn um níutíu ára sögu Leikfélags Reykjavíkur urðu að engu.
DV-mynd: Bj.Bj.
Níutíu ára saga
varð eldi að bráð
- þar með 30 áia hljóðupptokur
Tjón Leikfélags Reykjavíkur í eld-
inum við Tjömina er óbætanlegt.
Búningar, er félagið hefur viðað að
sér á 90 ára ferli, brunnu að megninu
til, aðeins tókst að bjarga broti af
búningasafninu.
„Við misstum ekki aðeins búning-
ana. Seguibandssafn á annarri hæð,
sem geymdi hljóðupptökur 30 ár aft-
ur í tímann, brann einnig, auk
leikhljóða og tónlistar sem notuð
hefur verið í leiksýningum okkar,“
sagði Stefán Baldursson leikhús-
stjóri. „Við erum komin í sumarfrí
og þurfum því ekki að fella niður
neinar sýningar en við stöndum
frammi fyrir því að þurfa að verða
okkur úti um nýja saumastofu, skrif-
stofu og geymslur fyrir leikmuni og
annað áður en næsta leikár hefst 11.
ágúst.“
-EIR
Dularfullur jeppi:
Áfullri
ferð í
lausu lofti
Tvær konur gengu fram á jeppa
í Rauðhólum í gær. Var bifreiðin
föst ofan á tveimur stórum steinum
þannig að hjólin náðu ekki jörðu.
Gekk vélin af fullu afli í fjórða gír
enda var bensíngjöfin skorðuð í
botn með steinhnullungi. Allar dyr
voru opnar og jeppinn mannlaus.
Konumar sáu ástæðu til að láta
lögregluna vita. Vinnur hún nú
að rannsókn málsins.
-EIR
Ráðist á
blaðbera
Ráðist var á unga blaðburðar-
stúlku á Borgarholtsbraut í
Kópavogi snemma laugardags-
morguns. Ungur piltur vatt sér að
stúlkunni þar sem hún var við störf
sín og gerði tilraun til að draga
hana afsíðis í holtinu neðan við
Kópavogskirkju. Stúlkunni tókst
að slíta sig lausa og árásarmaður-
inn hvarf á braut.
Blaðburðarstúlkan hélt áfram að
bera út blöð sfn og tilkynnti ekki
um árásina fyrr en að því verki
loknu. Máhð er i höndum Rann-
sóknarlögreglunnar.
-EIR
Kópavogur:
Mercedes á
143 km hraða
Tvítugur ökumaður var gómað-
ur á Nýbýlavegi í Kópavogi fyrir
nokkru á 143 kflómetra hraða. Ók
hann Mercedes Benz-bifreið og
sagðist við yfirheyrslur hafa verið
á leið til Keflavikur. Vegna hins
mikla hraða var fulltrúi fógeta
kallaður til og svipti hann öku-
manninn ökuskírteini á staðnum.
-EIR
I dag mæ|ir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mæíir Dagfari
Þjóðhetjan Guðmundur
Fljótt skipast veður í lofti. Um miðja
síðustu viku þurfti Guðmundur J.
Guðmundsson að fljúga heim frá
útlöndum upp á líf og dauða til að
bjarga mannorði sínu frá bráðum
bana, mætti kófsveittur og geðs-
I hrærður í sjónvarpi með snöruna um
hálsinn. Verkalýðsforinginn og al-
þýðubandalagsþingmaðurinn hafði
þegið peninga úr sjóðum Hafskips
og að minnsta kosti úr hendi Al-
berts, erkióvinar alþýðunnar. Menn
sáu fyrir sér pólitískan dauða Guð-
mundar og fimmta herdeildin í
Alþýðubandalaginu steig stríðsdans
af fögnuði. Loksins var þessum
ófögnuði komið fyrir kattamef.
En Jakinn er ekki jaki fyrir ekki
neitt. Hann sneri vöm í sókn. Hann
sór og sárt við lagði að hann hefði
ekki haft hugmynd um hveijir gáfu
honum peningana og beitti öllum
þeim töfrabrögðum sem honum eru
eiginleg, lýsti hollustu sinni við
verkalýðinn, áhyggjum konu sinnar,
vináttu Alberts og varð saklaus í
framan eins og erkiengillinn Gabrí-
el. Allt voru þetta snilldartilþrif hjá
Guðmundi og hafði þó hvorki neftó-
bakið eða mannorðið uppi við.
Og smám saman fór sveifin að snú-
ast. Fyrst bárust kynstrin öll af
skeytum og baráttukveðjum. Síðan
kom Hallvarður rannsóknarlög-
reglustjóri og gaf út sakavottorð um
að Guðmundur væri valinkunnur
sómamaður og síðast en ekki síst
stökk Ólafur Ragnar Grímsson fram
á sjónarsviðið og bjargaði málum
Guðmundar endanlega í hom. Jafri-
skjótt og það spurðist að Ólafur
Ragnar væri á móti Guðmundi sner-
ist þjóðin með Guðmundi.
Guðmundur sagði um þetta leyti
að hann vonaðist til að Guð vemd-
aði hann fyrir vinum sínum. Það
gerði Guð svo sannarlega. Hann
bænheyrði Guðmund og setti Ólaf
Ragnar í gang. Þá loks gat Guð-
mundur skilið sauðina frá höfrunum
og þá loks gat þjóðin áttað sig á því
í hveiju vinskapur er fólginn. Ólafur
þessi hefur nefhilega sérstakt lag á
því að reynast vinum sínum raun-
bestur með því að snúast gegn þeim.
Þjóðin veit það eitt um Ólaf Ragnar
að þegar hann hefur skoðun þá er
hún ævinlega vitlaus. Og af því Ólaf-
ur Ragnar vill vera góður við vini
sína þá er hann á móti þeim.
Þannig komu þeir Hallvarður
rannsóknarlögreglustjóri, Guð og
Ólafur Ragnar vini sínum, Guð-
mundi J. Guðmundssyni, til þeirrar
hjálpar sem Albert hafði upphaflega
hugsað sér að veita Guðmundi. Nú
efast ekki nokkur sála um heiðar-
leika Guðmundar. Eða heilsu hans.
Gott ef Hafskipsmennimir, sem nú
eru aftur lausir úr gæsluvarðhald-
inu, verða ekki fengnir til að safna
nýjum heilsubótarstyrk fyrir Guð-
mund svo hann komist með fjöl-
skylduna til Flórída þegar hann
verður búinn að fá fálkaorðuna frá
forsetanum og mannorðið frá Hall-
varði. Hallvarður hefur sumsé tekið
góðfuslega að sér að rannsaka fyrir
siðasakir gjöfina sem Guðmundur
þáði fyrir misskilning. Þar sem rann-
sóknarlögreglustjóri er fyrirfram
búinn að gefa út sakleysisvottorð til
Guðmundar, hins valinkunna sóma-
manns, er ekki eftir neinu að bíða.
Enda hefur verið ákveðið að
heiðra Guðmund með margvíslegum
hætti fyrir að taka við gjöfinni frá
Albert fyrir misskilning. Á aðalfundi
Alþýðubandalagsins fyrir helgi var
samþykkt samhljóða að efna til sér-
staks fundar, Guðmundarfundar, þar
sem ávörp verða flutt og heillaskeyt-
in lögð fram. Ekki er ólíklegt að
verkalýðshreyfingin og SÁÁ muni
efna til fundaherferðar í sumar, al-
mennra Guðmundarfunda, þar sem
hetjan verður til sýnis og býður
mönnum í nefið með mannorðinu.
Þetta eru ekki dónaleg málalok.
Satt að segja ættu ýmsir fleiri póli-
tíkusar og verkalýðsforingjar að
hugsa sitt ráð upp á nýtt. Til hvers
eru þeir að neita sér um gjafir og
vinargreiða og lepja dauðann úr
skel þegar besta ráðið til vinsælda
er að taka við tvö hundruð fimm
hundruð króna seðlum sem manni
eru réttir yfir borðið án þess að gef-
andinn vilji láta nafn síns getið?
Lykillinn að velgengni Guðmund-
ar er að hann kann að velja sér vini.
Albert er vinur Guðmundar þegar
hann þarf að forða sér til Flórída frá
fátækt og örorku. Ólafur Ragnar er
vinur Guðmundar þegar hann þarf
að endurheimta vinsældir sínar. Og
Guð er vinur Guðmundar þegar
hann þarf að vernda sig fyrir öðrum
vinum sínum. Og svo kemur Hall-
varður með sómastimpilinn frá
lögreglunni og tekur að sér þurrka
burt blettina af mannorðinu.
Eftir situr fimmta herdeildin í Al-
þýðubandalaginu og sleikir sár sín.
Hún veit ekki sitt ijúkandi ráð. Sem
ekki er nema von. Hún hefur aldrei
haft vit á því að þiggja peninga af
Albert Guðmundssyni til að öðlast
vinsældir þjóðhetjunnar. Dagfari