Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 8
8 DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. Útlönd Utlönd Utlönd Útlönd Kosningasjónvarpið vék fyrir knattspymunni „í dag er hafiö nýtt timabil i sögu Spánar," sagöi Felipe Gonzales, leiðtogi spænskra sósialista og sigurvegari í spænsku þingkosningunum, eftir að úr- slit urðu kunn í gær. Alls hlaut flokkur Gonzales um 44 prósent afkvæða. Pétur Pétuissan, DV, Barcelana; Kosninganóttin hér á Spáni var öll undirlögð af knattspymu sem og öll kosningabaráttan og fór því kosninga- sigur sósíalista fram hjá flestum. Ríkissjónarpið felldi niður hefð- bundið kosningasjónvarp vegna leiks Spánar og Belgíu í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar. Kosningabaráttan hefur verið hljóðlát að undanskildu hnútukasti milli stjómmálaleiðtoga og á knatt- spyman eflaust nokkum þátt á því auk þess sem flestir flokkar höfðu eytt megninu af púðri sínu í þjóðarat- kvæðagreiðslunni um Natóaðildina i mars síðastliðnum. Þau atriði er helst þykja merkileg í þessum fjórðu kosningum til löggjaf- arþings spánsks lýðræðis eru helst talin þessi: Styrkur sósíalista Að Sósíalistaflokknum skyldi takast að halda meirihluta sínum þrátt fyrir að haía verið í ríkisstjóm í fjögur ár og þverbrotið öll mikilvægustu loforð sín frá því árið 1982. Að Miðjuflokki Adolfo Soares skyldi takast að tífalda fylgi sitt frá því í síð- ustu kosningum en þá þurrkaðist flokkurinn nær alveg út eftir stormas- ama stjómarsetu. Flokkurinn, er áður hafði aðeins tvö þingsæti, hlaut nú nítján þrátt fyrir að hafa átt við mikla fjárhagsörðguleika að stríða í kosn- ingabaráttunni en bankar neituðu honum um lán til að fjármagna kosn- ingabaráttuna. I þriðja lagi vekur eftirtekt að bask- neski öfgaflokkurinn Herri Batasuna hlaut fímm þingsæti og fór það ffarn úr björtustu vonum leiðtoga hans en flokkurinn bauð aðeins ffarn í tveimur kjördæmum, í Baskahémðunum, þar sem hann hlaut 17,5 prósent atkvæða, og í Navarra, þar sem hann hlaut fylgi 14 prósent kjósenda. Veruleg vinstrisveifla Greinileg vinstrisveifla er og merkj- anleg því bandalag hægri flokkanna, undir forystu Manuel Fraga, tapar einu þingsæti þrátt fyrir skelegga stjómarandstöðu og Spánardraumar Katalóníumannsins Miguel Rocha urðu að engu en utan Katalóníu hlaut flokkurinn nánast ekkert fylgi og mi- stókst á sama tíma að hnika meiri- hluta sósíalista í heimahéraði sínu. Tvíflokkakerfi það, er virtist ætla að festast í sessi árið 1982, hefúr og riðlast því Miðjuflokkur Adolfo Soar- es rekur fastan fleyg milli fylkinga til vinstri og hægri. Ummæli manna vom á ýmsan veg eftir að úrslitin urðu ljós. Manuel Fraga, leiðtogi stjómarand- stöðunnar, sagði að staðfest hefði verið hlutverk hans sem eini mögulegi valkosturinn gegn sósíalistum og það að þeir hefðu tapað svo miklu fylgi sem raun bar vitni 'myndi ef til vill kenna þeim að fara varlegar í ffamtíðinni. Soares lýsti yfir ánægju með stórsig- ur sinna manna og kvaðst þegar myndu hefjast handa við undirbúning kosninganna 1990. Einnig lýsti hann yfir íhlutun í allri umræðu um stórmál á þingi í ffamtíðinni. Hann lýsti og yfir ánægju sinni með þá staðreynd að peningar væm ekki allt er þarf til að skapa pólitískan styrk og átti þar greinilega við keppinaut sinn um at- kvæði miðjumanna, Miguel Rocha, er eyddi gífurlegum fjármunum í kosn- ingabaráttunni en án mikils árangurs. Baskar bjartsýnir Leiðtogar Herry Batasuna vom og mjög ánægðir með fylgi sitt og bjart- sýnir á ffamtíðina og að flokkurinn væri nú þegar orðinn raunhæft afl í Baskahémðunum og yrði ríkisstjórnin í Madrid að semja við hann ef hún ætlaði sér eitthvað þar um slóðir. Leiðtogi kommúnista, Gerardo Ig- lesias, lýsti ánægju sinni yftr að hafa tekist að skapa þingflokk en komm- únistar hlutu sjö þingsæti. Sagði Iglesias að ljóst væri að spænskur al- menningur væri að færast til vinstri með þeim afleiðingum að öll valda- hlutföll á þingi heföu breyst. Leiðtogi sósíalista, Felipe Gonzales, hélt ræðu um miðnætti að íslenskum tíma og kallaði alla flokka til þátttöku í að halda áfram innreið spánsks þjóð- félags í evrópskan nútíma og lýsti því yfir að nú væri að hefjast nýtt skeið í sögu Spánar og lýðræðis þess þar sem aukið jafnrétti manna á meðal og tæknivæðing Spánar yrðu þau mál er sett yrðu á oddinn. sjónvarpið um hlutdrægni Ásaka Fétur Pétuissan, DV, Baiœiana: Spánska ríkissjónvarpiuð liggur enn á ný undír ámæli fyrir hlutdrægni í kosningabaráttunni. Um 30 prósent þeirra frétta er fluttar vom á kosningafúndum og af ummæl- um flokksleiðtoga vom fféttir af Sósíalistaflokknum auk þess sem talið er að hlutdrægni hafí gætt í sjálfúm fréttaflutningi ríkissjónvarpsins. Sagt er að þeir sem helst hafi orðið fyrir barðinu á þessari hlutdrægni hafi verið Miðjuflokkur Miguel Roc- ha, auk Sameinaðs vinstriflokks þeirra Iglesias og Gallego, en þeir flokkar hafa þótt líklegir til stefna þingmeiri- hluta sósíalista í hættu. Einnig var þagað yfir helstu ásökun- um flokkanna á ríkisstjóm Gonzales, meðan mjög vom blásnar upp allar fréttir af ágreiningi á meðal stjómar- andstöðuflokkanna. Um þverbak þótti þó keyra í fféttum sjónvarpsins í dagskrárlok þann 19. þessa mánaðar er endursýnt var glæsi- mark Emilio Butraguneno, hetju Spánveija í heimsmeistarakeppninni, en birtust þá einkennisstafir Sósíal- istaflokksins við hlið knattspymuhetj- Butraguneno var mjög misboðið og þótti sem væri verið að nota sig í aug- lýsingaskyni en sjónvarpið hélt því aftur á móti ffam að um tæknileg mistök heföi verið að ræða. Nokkuð sem flestir fjölmiðlar hafa fordæmt harðlega hér að undanfömu. Hinn umdeildi sjónvarpsstjóri Jorge Marie de Talvado lætur af störfum nú í vikunni og verður í tilefhi af því sýnd kvikmyndin „Gone with the Wind“. Ottast um afdrif fimmtíu manna Óttast er að að minnsta kosti 50 manns hafi farist er vefnaðavöru- verksmiðja hmndi, í Bombay, eftir miklar monsúnrigningar. Lögreglan segir að tíu lík hafi fundist og tuttugu og fimm manns hafi verið bjargað siðan byggingin hmndi í gær en að minnsta kosti fjömtíu manns em enn grafnir undir rústunum. Yfirmenn verksmiðjunnar sögðu að á annað hundrað manns hefðu verið inni f verksmiðjunni er hún hmndi. Björgunarmenn og slökkvilið ffá mörgum bæjum hefur verið að í alla nótt við að reyna að athafna sig í leðjunni til að ná þeim sem enn em fastir í rústunum. Vonir manna um að einhver finnist á lífi dvína nú með hverri klukkustund sem líður. Kampavínið flaut í Belgíu Kampavínstappar flugu hátt í loft upp um alla Belgíu í nótt eftir að ljóst var að Belgar höföu unnið ffækinn sigur á liði Spánverja í heimsmeistarakeppninni f Mexíkó í gærkvöldi. Þúsundir fagnandi knatt- spymuáhugamanna streymdu út á götur Brussel eftir úrslit leiksins og fögnuðu sínum mönnum. Belgískar útvarpsstöðvar vömðu siðan mannskapinn við er leið á nóttina og enginn endir virtist ætla að verða á fagnaðarlátunum. „Farið ykkur nú varlega í fyrra- málið. Gætið þess að ná einhveij- um svefni áður en þið haldið til vinnu og akið á sómasamlegum hraða,“ hljómaði í belgískum út- varpsstöðvum í dagrenningu. Fletft ofan af flótta* tilraun Treholts Ame Treholt var um helgina nærri sloppinn úr fangelsi. Lögreglunni tókst að koma upp um áform hans og fiutti hann í annað fangelsi fyrir utan Osló. Norska öryggislögreglan kom, fyr- ir helgina, í veg fyrir áætlanir Ame Treholts um að stijúka úr fangelsi. Norska sjónvarpið sagði að Ame Treholt, sem afþlánar nú 20 ára fang- elsisdóm vegna njósna fyrir KGB, hafi haft áætlanir um að strjúka úr fangelsi nú um helgina. Sagði sjónvarpið ffá því að tveir aðrir fangar heföu einnig ætlað að brjótast út úr fangelsinu en þegar komst upp um áætlunina heföu þeir allir verið fluttir í annað fangelsi fyrir utan Osló. Einnig var skýrt ffá því að tveir menn og ein kona hefðu verið hand- tekin vegna samsærisins og hald verið lagt á mikla fjárupphæð. Einn- ig komst lögreglan að því að Treholt átti að dveljast í nokkra daga í húsi einu í Osló eftir að hann slyppi út. Lögreglan vildi ekkert láta hafa eftir sér um þetta mál. Treholt, sem er 43 ára gamall og fyrrverandi aðstoðarráðherra Verkamannaflokksins, var dæmdur fyrir njósnir á vegum KGB og leyni- þjónustu íraks á níu ára timabili, frá 1974-1983. Hann lét sovéskum launa- greiðendum sínum í té mikilsverðar upplýsingar um vestræn kjamorku- og hemaðarleyndarmál. Hann áffýjaði dómnum en öllum á óvart féll hann frá áfrýjun sinni í síðasta mánuði og sagði að hann gæti aldrei fengið réttlát réttarhöld í Noregi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.