Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 24
24
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNl 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
• Toni Schumacher, markvöröur V-Þjóðverja, var hetja þeirra i leiknum við K
hann sér litið fyrir og varði tvær spyrnur Mexíkana. Tryggði hann þar með V-t
úrslitum á HM.
Maradona
„ Hetjan frá
Monterrey“
- skrifa þýsku blöðin
• Paul Van Himst.
„Báru of mikla
virðingu iyrir
Spánverjunum“
Knstján Bemburg, DV, Belgía:
„Leikmenn Belgíu fóru allt of hægt
af stað og báru allt of mikla virðingu
fyrir Spánverjunum. Það var ekki fyrr
en Belgíumenn fóm að sækja sem þeir
komust inn í leikinn enda skomðu
þeir þá,“ sagði Paul van Himst, fyrr-
verandi leikmaður Belgíu og síðar
þjálfari hjá Anderlecht. Hann sér r.ú
um skýringar með ieikjunum í belg-
íska sjónvarpinu.
„Spánverjar vom betri í seinni hálf-
leik en mistök Belgíumanna vom að
draga sig allt of mikið til baka. Það
leiddi til þess að Spánverjum tókst að
skora. Bestu menn í belgíska liðinu
vom þeir Jean-Marie Pfafif og Georges
Grun en í reynd lék allt belgiska liðið
vel.“ -SMJ
„Þakkir, Toni“ er risafyrirsögn í
Welt am Sonntag í gær og í öllum
þýsku blöðunum fær Toni Schumach-
er, markvörður HM-liðs
Vestur-Þýskalands, gífurlegt lof. Hon-
um næstum einum þakkað fyrir að
Vestur-Þýskaland leikur í undanúr-
slitum á HM gegn Frakklandi. „Hetj-
an firá Monterrey" er hann víða
kallaður, ekki aðeins fyrir að veija
tvær vítaspymur í vítaspymukeppn-
inni í leiknum við Mexíkó heldur fyrir
alla ffammistöðu sína í leiknum. Ekki
síst þegar Mexíkanar vom einum fleiri
og fengu góð færi til að skora en Toni
varði allt sem á markið kom, utan eins
rangstöðumarks.
„ Þetta er mesti hamingjudagur í
lífi Toni Schumacher," skrifaði Welt
am Sonntag en Toni hélt upp á 10 ára
brúðkaupsafmæli sitt með þessari frá-
bæm markvörslu. „Toni hefur endur-
reist álit almennings á þýskri
knattspymu,“ skrifar Bild. Allt annað
hljóð í blöðunum þýsku en eftir leikinn
við Marokkó, þegar þýska liðið var
rakkað niður.
Welt am Sonntag hafði eftir Franz
Beckenbauer, landsliðseinvaldi, að
hann hefði sagt af sér ef lið hans hefði
tapað fyrir Mexíkó. „Það er eðlilegt.
Ef dæmið gengur ekki upp með góðum
árangri verður maður að hætta.“
„ Leiðinlegt
aðendaHMá
vítakeppni“
- sagði þjáHari Mexíkó
„Við byrjuðum undirbúning okkar
fyrir heimsmeistarakeppnina hér í
Monterrey og hér verðum við því mið-
ur að enda keppnina. Leikmenn mínir
hafa gert sitt besta en stundum er erf-
itt að uppfylla allar óskir stuðnings-
manna sinna, “ sagði Bora Milut-
inovic, þjálfari Mexíkó, eflir leikinn
við V-Þjóðveija.
„Ég get ekki annað en hrósað v-
þýska liðinu fyrir að komast alla
leiðina í 8-liða úrslitin. Það er leiðin-
legt að vera slegnir út úr heimsmeist>
arakeppninni í vítaspymukeppni. Það
er ákaflega leiðinleg aðferð til að tapa
leik en í dag hafa margir af bestu leik-
mönnum heims misnotað mikilvæg
víti. Zico, Platini og Sókrates hafa
allir misnotað vítaspymur sínar svo
að ég get ekki ásakað leikmenn mína
fyrir að gera það sama,“ sagði Milutr
inovic sem sagðist nú ætla hvíla sig í
langan tíma ffá knattspymunni í
faðmi íjölskyldunnar. -SMJ
„Við getum unnið
Argentínumenn“
- segir Franky Vercauteren efdr sigurinn gegn Spáni
„Það átti enginn von á því að við
mundum gera rósir hér í Mexíkó en
við höfúm sýnt að ekki má vanmeta
belgíska knattspymu, “ sagði Franky
Vercauteren, miðvallarspilari hjá
Belgum, eftir sigurinn gegn Spánverj-
um. Þeir em án efa það lið sem hefur
komið mest á óvart í Mexíkó. Barátta
og leikgleði þeirra hefur nú fleytt þeim
í undanúrslit þar sem þeir munu mæta
Argentínumönnum. Þá eins og áður í
keppninni em Belgar taldir eiga undir
högg að sækja. >rArgentínumenn em
af flestum taldir mun sigurstranglegri
en ég tel að sigurlíkur okkar séu ekk-
ert síðri en þeirra,“ sagði Vercauteren
sem einmitt lagði upp mark Belga í
gærkvöldi.
„Yfirspiluöum Belgíumenn“
„Leikmenn mínir lögðu allt sem þeir
áttu í þennan leik og yfirspiluðu Belg-
íumenn langtimum saman. Belgíu-
menn gátu lítið annað en beitt
skyndisóknum í fyrri hálfleik og í
seinni hálfleik var um hreinan vamar-
leik að ræða hjá þeim,“ sagði Miguel
Munoz, þjálfari Spánveija, eftir leik-
inn en hann átti erfitt með að dylja
vonbrigði sín. Hann gagnrýndi mjög
vítaspymufyrirkomulagið. „Á þessu
stigi heimsmeistarakeppninnar á ekki
að láta vítaspymukeppni útkljá leiki.
Það er f raun fáránlegt Það væri nær
að láta annan leik fara fram.“
Spánverjar jöfnuðu þegar 5
mínúturvorueftir
Það vom Spánveijar sem hófú leik-
inn af miklum krafli og það tók
Belgíumenn nokkum tíma að komast
inn í leikinn. Þeir skomðu þó fyrsta
markið og var þar að verki fyrirliði
liðsins, Jan Ceulemans, á 35. mínútu.
Spánveijar sóttu síðan heldur meira
það sem eftir var leiksins en hraðaupp-
hlaup Belga vom ávallt hættuleg á
milli. Það var á 85. mínútu sem Spán-
veijum tókst að jafiia leikinn. Það var
Senor sem skoraði markið með föstu
skoti af 25 metra færi. Pfafif í marki
Belga sá ekki knöttinn fyrir en of
seint.
Hvomgu liðinu tókst að skora og
því varð að fá úrslit með vítaspymu-
keppni. Það þurfti því vítaspymu-
keppni í þrem af fjórum leikjum í 8-liða
úrslitum. ■
1 vítaspymukeppninni sýndi Pfaff
hvers hann er megnugur og varði víti
frá Eloy Olaya. Það dugði Belgum til
sigurs því þeir Claesen, Scifo, Broos,
Vervoori og Van Der Elst skomðu
allir iir vftum sínum. Senor, Chendo,
Butragueno og Victor skomðu fyrir
Spánverja úr þeim vítum sem eftir
vom.
Áhorfendun 44.962.
Liðin: Spánn: Zubizarreta, Chendo,
Camacho, Gallego, Tomas (Senor á 46.
mín.), Michel, Victor, Caldere, Al-
berto, Butragueno, Salinas (Olaya á
64. mín.). Belgía: Pfaff, Gerets, De
Mol, Renquin, Vervoort, Grun, Schifo,
Vercauteren (Van der Elst á 106.
mín.), Ceulemans, Veyt (Broos á 84.
mín.), Clasen.
Dómari: Sigfried Kirschen frá A-
Þýskalandi. -SMJ
• Jan Ceuleman, fyrlrliöi Belga,
sést hér fagna marki sínu.
„Þar sem við erum nú eina lið-
ið frá Suður-Ameríku sem eftir
er í keppninni þá hvílir mikil
ábyrgð á okkur. En við munum
ekki breyta leik okkar þess
vegna, - við munum leika áfram
á sama hátt og við höfum gert.
Maður á ekki orð til að lýsa
snilli Maradona en það sem ég
met mest eru þau áhnf sem hann
hefur á alla lpikmenn argent-
ínska liðsins. Ég stökk á fætur
þegar hann skoraði annað mark
sitt í leiknum og hrópaði mark.
Það er aðeins í annað skipti á
ævi minni sem ég hef gert slíkt,“
sagði Carlos Bilardo, þjálfari
Argentínu, eftir að lið þans hafði
sigrað England í gær að við-
stöddum 114 þúsund áhorfendum
í Mexíkó-borg. Þar með tryggt
sér sæti í undanúrslitum og mót-
herji Argentínu þar verður
Belgía.
„Það var slæmt þegar dómarinn
dæmdi mark þegar knötturinn fór af
handlegg Maradona yfir Shilton í
mark. Slæmt í svo þýðingarmiklum
leik og maður reiknar ekki með slík-
um mistökum í dómgæslunni í
heimsmeistarakeppni. En Maradona
er stórkostlegur leikmaður. Mér féll
það ekki vel, þegar hann skoraði síð-
ara mark Argentínu, en hins vegar
var ekki annað hægt en dást að þvi.
Það var beiniínis kraftaverkamark,
stórkostlegt. Eitthvert undraverð-
asta mark, sem skorað hefur verið,“
sagði enski landsliðsþjálfarinn,
Bobby Robson, eftir leikinn.
„Leikmenn mínir léku ekki eins vel
og ég hefði viljað að þeir gerðu fyrstu
- með höndum c
sextíu mínútumar en það vantaði
ekki baráttuviljann. Við komumst
svo langt í keppninni og þó svo stutt.
Framvarðaleikur Argentínumanna
var mjög snjall og gerði það að verk-
um að við gátum ekki leikið eins og
við hefðum viljað,“ sagði Robson.
Þó mark Maradona hafi verið skor-
að á mjög vafasaman hátt, svo ekki
sé meira sagt, er þó ekki vafi á því
að betra liðið í leiknum sigraði. Arg-
entínumenn voru betra liðið, einkum
í fyrri hálfleiknum. Skoruðu síðan
tvívegis á fyrstu tíu mínútum í þeim
síðari, Maradona bæði og bæði
mörkin verða lengi í minnum höfð.
Eftir það drógu þeir sig talsvert í
vöm og enskir sóttu miklu meira, sem
eftir lifði leiksins. Fengu færi, einkum
þegar Terry Butcher stóð inni á
markteig frír en skallaði knöttinn
beint í fang markvarðar Argentínu.
Loks á 81. mín. tókst Englendingum
að skora og var Gary Lineker þar
að verki eftir snjalla sendingu John
Bames. Lineker átti við meiðsli að
stríða eftir leikinn við Paraguay og
lék þó hann hefði engan veginn náð
sér. Reyndar ekki ákveðið fyrr en
rétt fyrir leikinn að hann yrði með.
Rétt fyrir leikslok munaði litlu að
honum tækist að jafna, afitur eftir
fyrirgjöf Bames. Skallaði hins vegar
luiöttinn í hliðametið en lenti sjálfur
í markinu. Rétt áður höfðu Argent-
ínumenn átt. skot í stöng enska
marksins. Liðin voru þannig skipuð.
Argentína. Pumpido, Cuciufifo,
Ruggeri, Brown, Olarticoechea,
Giusti, Batista, Enrique, Maradona,
Burruchaga (Tapia 76. mín.) og Vald-
ano. England. Shilton, Stevens,
Sansom, Fenwick, Butcher, Hoddle,
Steven (Bames 75. mín.), Reid
(Waddle 65. mín.), Hodge, Lineker og
Beardsley. -hsím
MmmmMmwmm.