Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 39
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
39
Sandkorn Sandkorn
Preben Elkjær og kó farnir
heim. En þá er bara að horfa
á stelpurnar í hálfleik.
HM í Mexíkó
Það er aldeilis rosalegt að
Danir skuli vera dottnir út á
HM í Mexíkó. Svona fór þetta
þrátt fyrir að Bjarni Fel. segði
að Danir væru að jafna sig
eftir jöfnunarmark Spánverj-
anna. Nú vita menn ekkert
með hvaða liði þeir eiga að
halda. Sumir hér fyrir norðan
segjast ætla næst að halda
með fallegu stúlkunum sem
alltaf er verið að sýna í hálf-
leik'.
Fór í kerfi
„Ég fór alveg í kerfi,“ sagði
vinningshafi sem vann milljón
í happdrætti háskólans á dög-
unum í samtali við Dag.
Vinningshafinn ætti líka að
vita hvað hann syngur. Bróðir
hans vann 340 þúsund í happ-
drætti um síðustu jól og móðir
hans 2 milljónir hjá DAS árið
1979. Sennilega hefur móðirin
orðið dösuð yfir milljónunum.
Hálft í hvoru
var á Sauðárkróki nýlega
og spilaði á Hótel Mælifelli.
Þegar DV rakst á hljómsveit-
ina kom gítarleikarinn,
Hannes Jón Hannesson, með
þrælskemmtilegt orð yfir
„dinnertónlist". Ekkert hálft
í hvoru með það, Hannes kall-
arslíka tónlist „meltingar-
músík“.
Bankakortið
Bankakortið fræga er aug-
lýst stíft sem tákn um traust
tékkaviðskipti. 1 bankakorta-
auglýsingu til afgreiðslufólks
er það beðið um að athuga
hvort bankakortið sé ekki frá
sama banka og tékkinn, hvort
gildistíminn sé útrunninn,
fæðingarár með tilliti til ald-
urs korthafa og hvort undir-
skriftin á tékkanum sé í
samræmi við rithandarsýnis-
horn á bankakortinu.
Ég segi ekki annað en þetta
er nú meira traustið sem
manni er sýnt.
KEA-öldin
Hjörtur Þórarinsson Eld-
jám, stjómarformaður KEA,
hélt hátíðarræðuna á 100 ára
afmæli KEA við mjólkursam-
lagið á afmælisdaginn 19. júní.
Hann byrjaði á að segja við
menn að ræðan tæki hálftíma
og ef menh yrðu þreyttir gætu
þeir lagst í grasið og slappað
af í sólinni. Húmorí Hirti.
Annars em menn á Akur-
eyri farnir að kalla 100 árin
KEA-öldina. Og því þá ekki
að miða atburði við fyrirtæk-
ið. Til dæmis: Hann fæddist 3
árum eftir KEA.
Feröamenn á Akureyri. Nú tala
allir „reykvisku" I Sjallanum.
Ferðamenn á
Akureyri
Gífurlegur íjöldi ferða-
manna er nú kominn til
Akureyrar og er það vel. Og
þar með breytir Sjallinn líka
um svip. Á sumrin er það
nefnilega þannig að þar eru
fleiri Reykvíkingarogaðrir
ferðamenn en Akureyringar.
Það heyrist líka greinilega.
Guð með KEA
En það var Valur Arnþórs-"
son kaupfélagsstjóri sem setti
hátíðarfundinn við mjólkur-
samlagið. Veðrið var eins og
Valur Arnþórsson. „Guð meö
Kea.“
Umsjón:
Jón G. Hauksson.
best gerist, sói og mikill hiti.
Enda sagði Valur: „Ef menn
hafa verið í vafa um að guð
sé með KEA, þá ættu þeir hin-
ir sömu ekki að vera í vafa
lengur.“
17. júní
Víkurblaðið á Húsavík segir
í fyrisögn á forsíðu að hátíðar-
höldin á þjóðhátíðardaginn
hafi farið vel fram í rigningu.
í sjálfri fréttinni segir: „Aðal-
dagskráin, sem upphaflega
var fyrirhuguð utan dyra, var
færð inn í Félagsheimilið og
var þar þröng á þingi.“
Svo var nú það, og það var
nú svo.
Snældu-Blesi
er kominn á kreik og virðist
hafa sigrast á fótbrotinu
margfræga. 1 Degi í síðustu
viku kom fram að frá þvi í
byijun maí hefðu 14 merar
verið leiddar undir hann og
allt hefði gengið eins og best
verður á kosið.
Jú. fótbrotið hlýtur að vera
gróið.
A róló á Sigló. Gamli Trabantinn stóðst öll hoss og læti barnanna á róluvellinum í veðurblíðunni á Sigló. Og ekki var það
til að draga úr sumarskapinu að hafa frostpinna til að gæða sér á. Trabbi settur i gang,... trabb-trabb-trabb, og frost-
pinninn sleiktur i botn. DV-myndir JGH
Sumar
áSigló
Jón G. Haukssan, DV, Akuieyii
Siglufjarðarbær iðaði beinlínis af lífi
og krafti hressilegs fólks í veðurblíð-
unni þegar við DV-menn sóttum
staðinn heim á dögunum. Fólk rölti
um bæinn, lék badminton uppi á gang-
stétt, sat í sólinni, borðaði ís, snyrti til
í görðunum heima hjá sér, það var
bara að nefna það, því hvarvetna voru
Siglfirðingar í sumarskapi. Hitinn fór
líka upp í 20 gráður þegar best lét.
Og það gerist ekki á hverjum degi á
Sigló.
Bubbi og Bylgja. Tvimælalaust natnið á þessari mynd úr miðbæjarlífinu.
Dæmigerð sumarmynd, fólk í leti situr og rabbar saman i sólinni. Bubbi vegna
þess að á myndinni er Bjöm Ingimarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna i
KS, að ræða við Bylgju Hauksdóttur. fyrirliða kvennaliðsins.
OPIÐ;
VIRKA DAGA 9-18
HÁRGREÐSLUSTOfA
VITASTÍG18A
SÍAAI14760
sukihúð með Cremedas
- besta umhirða sem þú getur veitt húð þinni.
I\IÝTT-|\IÝTT
„B0DY M0USSE"
Frábær nýjung frá
Cremedas, body lotion
í froðuformi, auðveld og
þægiieg í notkun og
húðin verður silkimjúk.
Kentruck
Sænsku gæðalyfti- og pall-
ettuvagnarnir til afgreiðslu
af lager.
LYFTIGETA
■ 1000 KG.
■ | LYFTIHÆÐ UPP
/-m 1 Í235CM.
LYFTIGETA
2000 KG.
Ármúla 1.
Sími 687222