Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 14
14 DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. Frjálst.óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð i lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Hlutverk Hamlets Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, leikur nú hlutverk Hamlets. Þær vefjast fyrir honum spurningarnar, að vera eða vera ekki, að styðja eða styðja ekki Guðmund J. Guðmundsson. Við Svavari blasa tveir kostir, sem honum þykja báðir slæmir. Hann gæti lýst andstöðu við Guðmund J. og krafizt þess, að Guðmundur segði af sér þingmennsku og jafn- vel formannsstöðu í Dagsbrún og Verkamannasam- bandinu. Þetta hafa Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Helgadóttir gert. Þau vilja, að Guðmundur J. segi af sér þingmennsku. Þau segja, að ekki sé stætt á, að þing- maður flokksins hafi tekið við peningum frá forystu- manni í andstöðuflokki og ráðherra að auki, hvað sem líði vinskap þeirra Guðmundar og Alberts. Raunar kann að vaka fyrir þeim báðum, og þó sérstaklega Ólafi Ragn- ari, að losna eridanlega við Guðmund J. sem keppinaut um efstu sæti á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Ólafur Ragnar tekur að vísu ekki þingsæti í bili, meðan Guðmundur J. er tímabundið frá þingmennsku. En horfa skal til lengri tíma. Það var býsna sárt fyrir ÓLaf Ragn- ar Grímsson, þegar hann missti þingsæti sitt í síðustu kosningum. Þótt hann setjist ekki á þing á næstunni, kemur upp ný staða, þegar kosið verður. Þá vilja sum- ir, að Guðmundur J. Guðmundsson verði endanlega úr leiknum. Svavar gæti tekið undir þetta. En sú afstaða yrði honum erfið. Enginn vafi er, að Guðmundur J. hefur um þessar mundir samúð langt út fyrir raðir flokks- manna. Menn úr öllum flokkum lýsa stuðningi við Guðmund, hvað sem síðar verður. Menn hugsa sem svo, að Guðmundur hafi verið sjúkur og hætt kominn. Hann hafi freistast til að taka við fé frá Albert Guð- mundssyni, gömlum vini, og hann hafi alls ekki vitað, hvaðan féð var í raun komið. Ennfremur mundi Svavar Gestsson með andstöðu við Guðmund enn ýfa upp ágreining við alþýðubandalags- mennina í verkalýðshreyfingunni. Þessi ágreiningur var lengi mikill, einkum persónulegur ágreiningur milli Svavars og Ásmundar Stefánssonar, forseta Alþýðusam- bandsins. Þetta setti Alþýðubandalagið í hættu og gerði það lítið trúverðugt sem hugsanlegan samstarfsaðila í ríkisstjóm, sem Svavar hefði nú áhuga á, að gæti orðið. Svavar vill reyna að viðhalda þeim sáttum, sem fyrir nokkru tókust milli forystu flokksins og forystu Al- þýðusambandsins. Svavar Gestsson þarfnast þeirra sátta í átökunum, sem nú standa um stjórn Þjóðvilj- ans, svo að dæmi sé nefnt. Hinn kostur Svavars er að lýsa stuðningi við Guð- mund J. Guðmundsson. Þá kemur upp sú staða, að margir alþýðubandalags- menn eru Guðmundi J. reiðir og telja hann hafa gert illan hlut. Þá kemur ennfremur upp sú staða, að mikil spurning er, hversu lengi samúðin við Guðmund J. end- ist. Eftir nokkra mánuði kann að fara minna fyrir stuðningi almennings við Guðmund, en eftir stendur einhver óljós hugmynd um, að maðkur hafi verið í mysunni. Eitt sýnir staða Svavars nú, þegar allt kemur saman: Alþýðubandalagið er ósamstæður flokkur, illa sundrað- ur. Þar er ekki einungis tekizt á um menn, heldur málefni. Flokkurinn er illa samstarfshæfur. Haukur Helgason. „Þessi regla segir okkur að alþingismenn eigi alls ekki að sitja í bankaráðum.. ." Gjafir oggjöld I dag snýst öll umræða um Haf- skip, Albert Guðmundsson og Guðmund J. Guðmundsson. En þótt einstaklingar og fyrirtæki séu þann- ig í sviðsljósinu má ekki gleyma þeirri staðreynd að hér er annað og meira á ferðinni. Annað og meira sætir rannsókn. íslenskt stjómarfar sætir rannsókn. Pólitískt siðferði í landinu sætir rannsókn. Albert Guðmundsson gegndi á sín- um tíma formennsku í bankaráði Útvegsbankans og stjómarfor- mennsku í Hafskip. Þar rákust saman í einum manni hagsmunir bankans og fyrirtækisins. Að auki var hann alþingismaður og átti að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Leikreglur sem leyfa allt Var Albert Guðmimdsson aðeins í þessari aðstöðu af því að hann er valdasjúkur? Nei. Hann lék eftir leikreglunum. Hann naut stuðnings þáverandi ríkis- stjómarflokka, Framsóknar og Alþýðubandalags, til að komast í bankaráðsformennskuna og vart hafa flokksbræður hans í Sjálfstæð- isflokki greitt atkvæði gegn honum. Sannleikurinn er sá, að Albert hefur notið stuðnings 40-50 þmgmanna til að komast í þessa stöðu. Leikreglumar í því mikla valda- spili, sem leikur með fjöregg íslensku þjóðarinnar, setja stjómmála- og embættismönnum eigin siðferðileg takmörk. Þeim er leyfilegt að halda samtímis embættum og stöðum alls staðar nema í Hæstarétti. Þeim er leyfilegt að þiggja gjafir og greiða- semi eins og hugurinn gimist. Erlendis gilda víðast hvar mjög strangar reglur um þessa hluti. Bandarískir þingmenn verða að skýra opinberlega frá fjármálum og eignum sínum. Kanadískir ráðherr- ar og embættismenn verða að skýra frá öllum gjöfum sem þeir þiggja. Breskir þingmenn verða að láta þess getið í þingræðum sínum ef einka- hagsmunir þeirra tengjast á ein- hvem hátt því máli sem er til umræðu á þinginu. Að hygla eða virðast hygla Hér hafa aðeins verið nefnd þrjú dæmi frá jafhmörgum löndum um aðhaldsreglur fyrir stjómmála- eða embættismenn. Kjallarinn Guðmundur Einarsson formaður Bandalags jafnaðarmanna. Þessi regla segir okkur að Guð- mundur J. hefði aldrei átt að þiggja fé hjá Albert Guðmundssyni. Þótt lög séu ekki brotin þegar menn þiggja fé hjá vinum sínum, vakna grunsemdir um að fjármálaráðherra eignist hönk upp í bakið á verkalýðs- leiðtoganum sem hann mætir við samningsborðið. Grunsemdirnar einar em óþolandi. Þessi regla segir okkur að alþing- ismenn eigi alls ekki að sitja í bankaráðum því gmnsemdir vakna um að þeir noti aðstöðuna til að hygla vinum sínum. Lög eða siðferðiskröfur Það er mikilvægt að átta sig á því að ekki skiptir máli hvort lög hafa verið brotin í dæmunum hér að framan. Það sem skiptir máli er að ekki má leika minnsti vafi á réttsýni og sanngimi stjómvalda. Almenn- „í dag snýst öll umræða um Hafskip, Al- bert Guðmundsson og Guðmund J. Guðmundsson. “ Ein regla er þó ótalin sem alls stað- ar er númer eitt. Hún er þessi: Stjómmála- eða embættismenn mega undir engum kringumstæðum komast í þær aðstæður að einka- hagsmunir þeirra rekist eða virðist rekast á við opinberar skyldur þeirra. Takið eftir orðunum virðist rek- ast. Hér er átt við að ekki megi leika vafi á heilindum viðkom- andi. Ekki má leika vafi á því að opinberar skyldur þeirra gangi fyrir einkahagsmunum. Þessi regla segir okkur að Albert Guðmundsson hefði aldrei átt að taka fé frá Björgúlfi Guðmundssyni handa Guðmundi J. Þótt lög séu ekki brotin, þegar menn safna fé handa vinum sínum, vakna grun- semdir um að forstjóri Hafskips eignist hönk upp í bakið á fjármála- ráðherra þjóðarinnar. Grunsemdim- ar einar em óþolandi. ingur verður að geta borið fúllt og óskorað traust til stjómkerfisins sem á að vera fyrir fólkið en ekki fyrir stjómmálamennina. Erlendis gera menn sér grein fyrir þessu. Hversu oft höfúm við ekki heyrt í fréttmn að ráðherrar hafi orðið að víkja í einhveiju landi vegna þráláts orðróms eða þungra ásakana þótt lagaleg sekt eða sýkna þeirra hafi ekki legið á ljósu. Þar hafa menn beygt sig fyrir þeirri brýnu kröfu að þótt afsögn eða brott- vikning geti verið þungur harmur fyrir viðkomandi einstakling skuli traust almennings á stjómkerfinu ganga fyrir. Á íslandi hafa aldrei fengist settar reglur sem takmarka ásóknina í margfold völd og verðlaun. Hérlend- ir stjómmálamenn hafa ekki viljað takmarka athafnafrelsi sitt. Þeir vilja vera eins og aðgæslulaus böm í sælgætisbúð. Guðmundur Einarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.