Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 22
22 DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir • Guðmundur Torfason skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspymu á móti ÍBV. Hann lyfti boltanum snyrtilega yfir varnarvegg ÍBV og í vinstra markhornið. Skotið var óverjandi fyrir Hörð Pálsson í marki ÍBV sem, eins og sést á myndinni, gerir heiðarlega tilraun til að ná til knattarins. DV-mynd Brynjar Gauti Eyjamenn voru auðveld bráð - Framarar skoruðu þijú mörk þrátt fyrir fjölmörg misnotuð tækífæri Framarar unnu næsta auðveldan sigur, 3-0, á ÍBV á föstudpgskvöldið. Sigur Fram hefði allt eins getað orðið enn stærri miðað við gang leiksins. Það má segja að Framarar hafi vaðið inn og út um vöm ÍBV og var hreint ótrúlegt að sjá hvemig þeir fóm oft með marktækifærin. Þeir skomðu þó þrjú mörk og vom þau öll laglega gerð. Framarar fengu því þrjú stig út úr leiknum og tróna á toppi 1. deildar ásamt Skagamönnum með 14 stig. „Mér líst vel á þetta þetta hjá Fram, þetta em allt spilandi strákar en þeir hefðu þó mátt nýta færin betur í þess- um leik. Mig er farið að klæja í fætuma eftir að spila knattspymu. Ég hef ekki enn unnið íslandsmeistaratit- ilinn en ég vona að það takist núna í sumar með Fram,“ sagði Janus Guð- laugsson sem var mættur í búnings- klefa Fram eftir leikinn og tók þátt í sigurgleðinni með Frömurum. Hann verður löglegur með Fram 28. júní og mun leika sinn fyrsta deildarleik gegn KR mánudaginn 30. júní. Leikurinn fór rólega af stað og það vom Eyjamenn sem vom meira með boltann fyrstu 15. mínútumar. Þeim gekk þó ekkert við að skapa sér mark- tækifæri og það vom Framarar sem áttu fyrsta færi leiksins á 14. mínútu. Þá átti Guðmundur Steinsson gott skot rétt framhjá. Þrem mínútum síðar var mikil bamingur í vítateig ÍBV en leikmönnum Fram tókst ekki að nýta sér það. Á 22. mínútu kom eina færi ÍBV í fyrri hálfleik þegar Ómar Jóhannsson átti lúmskt skot af um 30 metra feri en rétt fiamhjá. Glæsimark Guðmundar • Fyrsta mark Fram kom á 37. mín- útu og það var sérlega fallegt - „a la' Guðmundur Torfason". Framarar fengu þá aukaspymu rétt fyrir utan vítateig. Það var auðvitað Guðmund- ur Torfason eem tók spymuna. Hann lyfti boltanum glæsilega yfir vamar- vegg ÍBV og í vinstra markhomið, óveijandi fyrir Hörð í marki ÍBV. Skotið var ekki mjög fast en hnit- miðað. Einni mínútu síðar fékk Guðmimdur Torfasson kjörið marktækifæri eftir góða sendingu fiá Gauta Laxdal en hann skaut rétt framhjá. Mínútu fyrir leikhlé fékk Guðmundur Torfason enn eitt marktækiferið eftir sendingu frá nafha sínum Steinssyni. En aldrei þessu vant skallaði hann framhjá en Guðmundur Torfason er ekki vanur að misnota svona skallafæri. Framarar með tvö mörk í seinni háifleik • Framarar byijuðu seinni hálfleik eins og þeir enduðu þann fyrri, með stórsókn á mark ÍBV. Þeir náðu að skora strax á annarri mínútu hálf- leiksins. Gauti Laxdal átti þá góða sendingu inn á Pétur Ormslev sem v^r einn og óvaldaður í vítateig Eyja- manna. Hann hafði nógan tíma til að leggja fyrir sig boltann og skoraði með góðu skoti. Sókn Framara hélt síðan linnulaust áfram en þeir voru svo sannarlega ekki á skotskónum að þessu sinni nafiiamir í sókninni hjá Fram. Annað- hvort skutu þeir framhjá eða ágætum markverði IBV, Herði Pálssyni, tókst að veija. • Þriðja og síðasta mark Fram kom á 77. mínútu. Þá fékk Pétur Ormslev boltann inn í vítateig og renndi hann boltanum út á Ormar Örlygsson sem skoraði með nákvæmu skoti. Hörður virtist sjá boltann seint og tókst ekki að veija. Eins og af þessari upptalningu sést þá voru Framarar hreinir klaufar að skora ekki fleiri mörk í leiknum. Þeir nýttu sér vel breidd vallarins og spil- uðu laglega úti á vellinum. En þegar upp að markinu kom þá var eins og Framarar dyttu úr sambandi. Sérstak- lega voru þeir Guðmundur Steinsson og Guðmundur Torfason iðnir við að misnota færin. Þeir áttu ekki í neinum erfiðleikum við að snúa af sér vamar- menn ÍBV en mörkin létu á sér standa að þessu sinni. Pétur Ormslev átti enn einn stórleik á miðjunni enda fékk hann að gera það sem honum sýndist þar. Þá kom Gauti Laxdal sterkur út úr leiknum og átti margar góðar send- ingar. Viðar Þorkelsson var ekki með að þessu sinni en hann meiddist á æfingu í vikunni. Hópurinn hjá Fram er hins vegar stór og það kemur lítið að sök Jþó að-sterka leikmenrr vanti. Ormar Örlygsson kom í staðinn inn í liðið og átti mjög góðan leik. Eyjamenn eru nú í bullandi faO- hættu og verða þéir að taka sig verulega á ef veran í 1. deild á ekki að verða stutt að þessu sinni. Það er helst reynsluleysi leikmanna sem verður liðinu að falli en flesta í liðinu skortir það sjálfetraust sem þarf í erf- iðri keppni eins og 1. deildin er. Það eru helst „gömlu brýnin“, Ómar Jó- hannsson og Jóhann Georgsson, sem eitthvað sýna. Þá er Hörður ákaflega vaxandi markvörður. Dómaii: Óli Ólsen. Áhorfendur: 482. Gul spjöld: Guðmundur Torfason, Ingi Sigurðsson, Ómar Jóhannsson, Bergur Ágústsson. Liðin: Fram: Friðrik Friðriksson, Þorsteinn’ Þorsteinsson, Þorsteinn Vilhjálmsson, Ormar Örlygsson, Pétur Ormslev, Gauti Laxdal, Kristján Jónsson, Jón Sveinsson, Steinn Guðjónsson, Guð- mundur Steinsson og Guðmundur Torfason. ÍBV: Hörður Pálsson, Þórður Hall- grímsson, Jón Atli Gunnarsson, Héðinn Svavarsson, Jón Bragi Am- arsson, Lúðvík Bergsveinsson, Þor- steinn Viktorsson, Jóhann Georgsson, Bergur Ágústsson (Páll Hallgrímsson), Ómar Jóhannsson og Ingi Sigurðsson. Maður leiksins: Pétur Ormslev.-SMJ Óskar Theódórsson skoraði bæði möik Fylkis gegn Sandgerðingum. Hér skorar hann annað þeirra. DV-mynd GS. 3. deild - 3. deild - 3. deild Annar tapleikur hjá Stjömunni Stjaman tapaði sínum öðrum leik í röð þegar liðið mætti ÍR-ingum um helgina. ÍR sigraði, 2-0,-með mörkum Páls Rafiissonar og Eggerts. Grindavík sigraði aftur á móti sinn annan leik í röð er liðið lagði Ármenn- inga að velli með 3 mörkum gegn 1. Ólafúr Ingólfeson, Dagbjartur Vill- ardsson og Hjálmar Hallgrímsson skomðu mörk Grindvíkinga en Jón Gíslason svaraði fyrir Ármann. Fylkir og Reynir, Sandgerði, skildu jöfii á Árbæjarvelli, bæði lið gerðu 2 mörk. Óskar Theódórsson skoraði bæði mörk Fylkismanna en þeir Ómar Bjömsson og Ævar Finnsson jöfhuðu. ÍK sigraði HV þar sem leikmenn HV mættu ekki. Staðan í A-riðli: ÍR 5 4 1 0 11- 3 13 ÍK 5 4 0 1 5- 3 12 Fylkir 5 3 1 1 12- 4 10 Stjaman 4 2 0 2 11- 3 6 Grindavík 5 2 0 3 12- 8 6 Reynir, S. 4 12 1 4-4 5 Ármann 5 0 2 3 3-14 2 HV 5 0 0 5 4-23 0 -JFJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.