Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. Iþróttir 23 Iþróttir Iþróttir Iþróttir I Úrvalsiið Ameríku og „heimslið‘T - í Kalrfomíu 27. júlí Stjömulið Ameríku og „heims- lið“ FIFA leika í Pasadena í Kalifomíu 27. júlí til styrktar sveltandi bömun. Alþjóðaknatt- spymusambandið stendur fyrir leiknum og sagði forseti FIFA, Joao Havalange, Brasih'u, að mestur hluti af tekjum leiksins mundi renna til bama í Mexíkó. Reiknað með að tekjur nemi minnst 250 þúsund dollurum. Eftir HM á Spáni fyrir fjórum árum var efiit til ágóðaleiks og vom tekjur af honum 200 þúsund dollarar. Þegar hafa úrvalsliðin verið valin í leikinn í Pasadena. Þau verða þannig skipuð. Ameríka. Gustavo Femandez, Paraguay, Julio Cesar, Brasilíu, Daniel Passarella, Argentínu, Femando Quirarte, Mexíkó, Di- ego Maradona, Argentínu, Careca, Brasilíu, Manuel Negr- ete, Mexikó, Caligiuri, Banda- ríkjunum, Hugo Sanchez, Mexíkó, Jorge Valdímo, Argent- ínu, Zico, Brasiliu, og Julio Romero, Paraguay. Heimsliðið. Pat Jennings, Norður-írlandi, Hans Peter Bri- egel, V-Þýskalandi, Antonio Cabrini, Italíu, Morten Olsen, Danmörku, Michel Platini, Frakklandi, Sören Lerby, Dan- mörku, Park Chang-Sun, Suður- Kóreu, Bruno Conti, Italíu, Enúlio Butragueno, Spáni, Gary Lineker, Englandi, Mohammed Timoumi, Marokkó og Karl- Heinz Rmnmenigge, V-Þýska- landi. Þjálfari Mexíkó, Júgóslavinn Bora Milutinovic, og Carlos Bil- ardo, þjálfari Argentinu, verða liðsstjórar Ameríku-liðsins. Franz Beckenbauer, V-Þýska- landi, og Johan Cmyff, HolÍandi, heimsliðsins. hsím ■ Morten Olsen, (yrirliðí Dana i | heimsliðinu. Heimsmet í sleggjukasti - Sedykh kastaði 86,66 Yuri Sedykh, Sovétrikjimum, sem verið hefúr besti sleggju- kastari heims um langt árabil, setti í gær heimsmet í greininni, þegar hann kastaði 86,66 metra í landskeppni Sovétríkjanna og Austur-Þýskalands í Tallin. Bætti heimsmet sitt um 32 sentí- metra. Það var 86,34 metrar, sett á móti í Cork á Irlandi fyrir tveimur árum. hsím Hér sést Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olís, afhenda Ellert B. Schram, formanni KSÍ, ávísun fyrir fyrstu greiðslu Olís af bensínsölu. Upphæðin á ávísuninni, 184.635 kr. rennur öll til KSÍ sem mun ekki veita af upphæðinni því starfsemi KSÍ hefur aldrei verið viðameiri og blómlegri. DV-mynd Sveinn Fyrsta mánaðargreiðsla OLÍS stórupphæð fyrir KSÍ - OLÍS einnig með happdrætti til styrktar KSÍ Knattspyrnusamband íslands og Ol- ís hafa gert með sér samning um það að KSÍ fái sem svarar fimm aurum af hverjum bensínlíter sem seldur er á bensínstöðvum OMs um land allt. Hef- ur nú Olís afhent KSÍ fyrstu greiðsl- una fyrir bensínsölu. Þessi fyrsta greiðsla, sem var fyrir bensínsölu í maí, nam 184.635 kr. svo að hér er um verulegar upphæðir að ræða fyrir KSÍ. Þá hefur verið sett í gang sérstakt happdrætti á vegum Olís til styrktar KSI sem mun fá allan hagnað af sölu happdrættismiðanna. Era veglegir vinningar í boði í happdrættinu en upplag miða verður aðeins 40.000. Er ætlunin að sala happdrættismiðanna fari fram með aðstoð aðildarfélaga KSÍ. Jafnhliða happdrættinu verður í gangi keppni sem felur í sér að safna á myndum af landsliðsmönnunum okkar. Verður myndunum dreift á bensínstöðvum Olís og eru glæsileg aukaverðlaun í boði fyrir þá sem ná að safna saman öllu íslenska liðinu. -SMJ Ævintýralegt sigur- mark Þórs gegn FH - Þórsliðið nú skuggi liösins sl. sumar Stefán Amaldsson, DV, Akureyri. Þór txyggði sér stigin þrjú gegn FH í 1. deildinni hér á Akureyri á föstu- dagskvöld í mjög slökum leik, 2-1, þar sem sigurmarkið varð hreint ævin- týralegt rétt undir lok leiksins. En þrátt fyrir það var sigur Þórs sann- gjam þótt það verði að viðurkennast að Þórsliðið nú er aðeins skuggi Þórs- liósins sl sumar. Ekki svipur hjú sjón. Leikurinn var hinn fyrsti á aðalleik- vellinum á Akureyri i sumar, grasvell- inum, og einkenndist talsvert af ytri aðstæðum. Hvasst meðan hann fór fram. FH lék undan vindi í fyrri hálf- leiknum. Var þá betra liðið og leik- menn þess fljótari á knöttinn. I síðari hálfleiknum snerist dæmið alveg við. Þór þú betra liðið. FH skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins þrjár mín. og 45 sekúndur. Gunnar Straumland spymti langt út frá marki FH. Knötturinn fór yfir einn leikmann Þórs, sá næsti „kiksaði" og allt í einu var Ingi Bjöm Albertsson fiír með knöttinn á vítateigslínunni. Allt galopið og Ingi Bjöm skoraði fal- legt mark. Vöm Þórs þama illa á verði og vömin, sem áður var oftast aðall Þórs, er nú oft á tíðum mjög slök. Það var lítið um færi í fyrri hálfleiknum. Helst á 29. mín. þegar Halldór Áskels- son einlék upp allan völl, komst inn í vítateig FH en Gunnar varði vel skot hans. Undir lokin skaut Siguróli Kristjánsson yfir mark FH mínútu áður en Kristján Kristjánsson jafnaði. Hlynur Birgisson fékk sendingu inn í vítateig FH, spymti knettinmn þvert - fyrir mark FH. Þar skoraði Kristján af stuttu færi og mínúta í leikhléið. Með vindinn í bakið vom Þórsarar miklu ákveðnari í síðari hálfleiknum. Halldór komst einn með knöttinn inn í vítateig FH á 47. mín. Hikaði hins vegar og vamarmanni tókst að bjarga í hom. FH bjargaði á marklínu skalla fi-á Siguróla og svo var Gunnar Straumland, markvörður FH, mjög í sviðsljösinu þegar hann varði tvívegis stórvel. Fyrst frá Siguróla, síðan þm- muskot Sigurbjöms Viðarssonar af 30 metra færi. Sex mínútum fyrir leikslok var sig- urmark Þórs skorað. Furðulegt mark. Knettinum spymt inn í vítateig FH og Henning Henningsson, miðvörður FH, spymti. Knötturinn lenti beint í Kristjáni Kristjánssyni, sveif síðan yfir Gunnar markvörð og í markið. Enn gerast ævintýrin. 2-1. Þeir Halldór og Sigurbjöm vom bestu leikmenn Þórs í leiknum. Hjá FH var Gunnar markvörður góður, svo og Ingi Bjöm og Óli. Dan. Liðin vom þannig skipuð. Áhorfendur Ólafsson. r Kepptu í "* Danmörku Hópur frjálsíþróttafólks í Ung- mennasambandi Islands dvaldi um tíma í æfingabúðum í Fuglso í Danmörku og keppti einnig á nokkrum mótum. Álls vom 15 í förinni og hópurinn er nýkominn heim. Helsti árangur íslensku keppendanna á mótunum í Dan- mörku var þessi. Helgi Þór Helgason, USAH, kastaði kringlu 48,50 m, Guð- björg Gylfadóttir, USAH, 33,40 m og Jóna Petra Magnúsdóttir, UÍA, 35,34 m. Lilly Viðarsdóttir, UÍA, hljóp 1500 m á 5:17,3 mín. Friðrik Steinsson, UMSS, hljóp 200 m á 23,7 sek., 400 m á 54,7 sek. og stökk 6,32 m í lang- stökki. Gunnar Sigurðsson, UMSS, stökk 13,68 m í þrístökki. ÓU. Þór. Baldvin Guðmundsson, Sigur- bjöm, Einar Arason, Nói Bjömsson, Ámi Stefánsson, Siguróli, Halldór, Júlíus .Tryggvason, Kristján, Jónas Róbertsson, Hlynur (Sigurður Pálsson 73. mín.). FH. Gunnar, Leifur Garðars- son, Ólafúr Kristjúnsson, Ólafur Jóhannesson, Henning, Guðmundur Hilmarsson, Ingi Bjöm, Ólafúr Dan., Ólafúr Kristjánsson (Magnús Pálsson 65. mín.), Pálmi Jónsson og Kristján Gíslason (Kristján Hilmarsson 70. mín.). 784. Dómari Kjartan Heimsmet í langstökki - 3 yfir 22 m í kúlu Austur-þýski heimsmeistarinn, Heike Dreschler, bætti eigið hcimsmet í langstökki kvenna þegar hún stökk 7,45 metra á miklu alþjóðlegu frjálsiþrótta- móti í Tallin á laugardag. Bætti met sitt um einn sentímetra en það heimsmet, 7,44 m, hafði hún sett í Austur-Berlín 22. septemb- er 1985. Heike var yngsti heims- meistarinn á HM í Helsinki 1983, aðeins 18 ára. Hún keppti ekki á ólympíuleikunum í Los Angel- es frekar en aðrir Austur-Þjóð- veijar. I heimsbikarkeppninni í Canberra í Ástralíu í fýrra hlaut húrx gullverðlaunin. Á mótinu í Tallin vörpuðu þrír menn kúlunni yfir 22 metra og er það í fyrsta skipti í sögunni sem slíkt hefur gerst á móti. Ulf Timmermann, Austur-Þýska- landi, sigraði. Varpaði 22,60 m, sem er aðeins tveimur sentímetr- styttra en heimsmet hans. um Sergei Smimov, Sovétríkjunum, varð annar með 22,24 m. Hann er frá Leningrad. Ekki var getið árangur þriðja manns í fréttaskeyti Reuters. hsím Maður leiksins. Halldór Áskelsson, Þór. hsím Evrópumet í skriðsundi Astrid Strauss, Austur-Þýska- landi, setti Evrópumet í 800 metra skriðsundi á austur-þýska meistaramótinu í Berlín á laug- ardag. Hún synti vegalengdina á 8:26,52 mfnútum og bætti eldra heimsmet sitt um na?stum tvær sekúndur. Það var 8:28,36 mín., sett á móti í Magdeburg 26. maí 1984. Keppni í metsundinu nú var gífúrlega hörð. Það var rétt und- ir lokin sem Astrid Strauss tn'ggði sér sigurinn. Komst fram úr Katja Hartmann sem einnig náði betri tíma en gamla heims- metið var. Hún synti á 8:27,35 mín. I 400 m skriðsundinu varð Astrid að láta sér nægja annað sætið. Þar sigraði Heike Fried- rich á 4:06,84 mín, sem einnig er nýtt Evrópumet. Það var sl. fimmtudag. hsím _ La mmm mmm mmm mma mmmm mmm KNATTSPYRWU- ÁHUGAMENN Höfum til sölu HM getraunaseðla frá KA. Þeir fást í iR-heimilinu, Stekkjarbakka, gegnt Alaska, milli kl. 17 og 22 mánudag og þriðjudag. Verð kr. 500.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.