Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 9
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
9
UtlöncJ
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Vændi til
vandræða í Kína
Kínversk stjómvöld hafa nú boðað
mjög hertar aðgerðir til að stemma
stigu við vændi sem hefur aukist í
Kína á undanfornum árum þrátt fyrir
að slíkt sé með öllu bannað í alþýðu-
lýðveldinu.
„Vændi er andfélagslegt og því ætti
að útrýmasagði Ruan Chongwu,
ráðherra öryggismála, á fundi með
fréttamönnum nýverið.
Hann sagði að þessi ósómi hefði aft-
ur komið upp á yfirborðið undanfarin
ár vegna mikillar fjölgunar fólks í
stórborgum og aukins frjálsræðis í
samskiptum Kínveija og útlendinga.
Ruan sagði að mjög strangt væri
tekið á melludólgum og vændiskonur
væm settar í endurhæfingu. Hann
vildi ekki segja hve margar vændis-
konur hefðu verið handteknar.
Vændi var bannað með lögum árið
1949 er kommúnistar komust til valda
í Kína en hefur alltaf verið til staðar
í stærri borgum. Vestrænir menn, sem
komið hafa til Kína, segja að leigubil-
stjórar og starfcfólk á hótelum hafi
boðið þeim þjónustu vændiskvenna.
Þar til í september á síðasta ári, er
íhaldssamur meðlimur stjómmálaráðs
kínverska kommúnistaflokksins hélt
harðorða ræðu um vændi og klám á
fundi í stjómmálaráðinu, mátti ekki
minnast á vændisvandamálið opin-
berlega.
Rykaðir ökumenn
í Austur-Þýskalandi
Heimsmeistarakeppnin i knatt-
spyrnu, sem nú fer fram í Mexíkó,
hefur valdið mikilli aukningu á ölvun
við akstur í Austur-Þýskalandi, að því
er lögregla þar í landi segir. Hefur
umferðarslysum einnig fjölgað mikið.
Síðan keppnin í Mexikó hófet hefur
drukknum ökumönnum fjölgað um
7% frá þvi sem venjulegt er.
Austur-Þjóðverjum mistókst að
komast í úrslitakeppnina í Mexíkó en
milljónir manna horfa samt sem áður
á beinar útsendingar leikja þaðan og
þær standa yfirleitt fram á rauðanótt.
í dagblaðinu Berliner Zeitung var
sagt frá ökumanni einum sem hafði
drukkið sex flöskur af bjór og tvo
snapsa áður en hann fór að sofa en
það var nægilegt til þess að of mikið
áfengi mældist í blóði hans daginn
eftir þegar hann var stöðvaður af lög-
reglu.
„Það er greinilegt að margir öku-
menn átta sig ekki alveg á þeirri
ábyrgð sem á þeim hvílir núna meðan
á heimsmeistarakeppninni stendur.
Það er eina skýringin á þessum aukna
ölvunarakstri á morgnana'," hafði
blaðið eftir lögreglumanni einum.
Falklandseyjastríð
í Mexíkó
Enskir knattspyrnuaðdáendur réð-
ust i gærkvöldi með grjótkasti og
flöskukasti að Argentínumönnum sem
fógnuðu sigri landsliðs síns gegn Eng-
lendingum fyrr um daginn. Ur varð
stuttur götubardagi sem lögreglan
leysti upp með áhlaupi. Engin alvarleg
meiðsli urðu á mönnum.
Gera þurfti að smávægilegum sárum
nokkurra úr báðum hópum og um tíu
manns hlutu aðeins alvarlegri sár, að
sögn lögreglu.
Átökin byrjuðu þegar um 75 Argent-
ínumenn voru að yfirgefa Azteka-
leikvanginn, þar sem leikurinn fór
fram, dansandi við hljómfall mikillar
trommu.
15-20 manna hópur Englendinga,
sem hafði falið sig undir brú, réðst
skyndilega að Argentínumönnunum
sem margir voru í stuttermabolum
með áletruninni „Falklandseyjar eru
argentínskar".
Argentínumennimir rúlluðu upp
fánum sínum og notuðu stangimar
sem barefli. Eltu þeir síðan Englend-
ingana, sem vom miklu færri, með
barefli sín á lofti.
Loks kom um 300 manna lögreglulið
til hjálpar Englendingum sem áttu
orðið mjög í vök að verjast.
Ómissandi neðan
iarðarhagkerfi
Perú:
Asakanir stjóm
arandstöðu um
fjöldamorð
Syrgjandi fjölskyldur biðu fyrir
utan Lurigancho fangelsið í Lima
þar sem ríkisstjómin hefur fyrir-
skipað rarmsókn á atburðum þeim
er urðu 124 vinstrisinnuðum
skæmliðum, er þar sátu inni, að
bana.
Grátandi konur hrópuðu nöfn
manna sinna og annarra ættingja
sem féllu í átökum við hermenn á
fimmtudaginn.
Talsmenn hersins segja að a.m.k.
156 fangar hafi beðið bana í átök-
unum í Lurigancho og E1 Fronton
fangelsunum. Óopinberar tölur
benda til þess að mannfall sé nær
því að vera 300 manns.
Ríkisstjómin hefur ásakað sam-
tök maóista um að hafa komið
átökunum af stað til að sverta
stjómina meðan á heimsþingi sós-
íalista og jafhaðarmanna stendur,
en það fer nú fram í Lima.
Leiðtogi stjómarandstöðunnar í
Perú hefur ásakað herinn um að
hafa myrt 60 fanga í Lurigancho
fangelsinu eftir að þeir höfðu gefist
upp fyrir hermönnum.
Aðstandendur fanga, fyrir utan Lurigancho fangelsið, i óvissu um afdrif
ættingja sinna.
cÆadtmtia * hárgreidslu-
Skipholti 21 — Sími 25380 og snyrtistofa
fótaaðgerðir
andlitsböð
handsnyrting
húðhreinsun
klipping
permanent
strípur
litanir o.fl.
Opið mánud. — föstud. kl. 13 - 19
Neðanjarðarhagkerfi í Evrópu
blómstrar þrátt fyrir spár sérfræðinga
um að það myndi að engu verða er
kreppa áttunda áratugarins væri yfir-
staðin og viðskiptalíf næði sér aftur á
strik.
Tímaritið Newsweek segir í skýrslu,
sem birt var í dag, að hið svonefhda
svarta hagkerfi stæði fyrir um það bil
10% af heildarþjóðarframleiðslu í Ev-
rópu.
Á Ítalíu, sem hefur stærsta neðan-
jarðarhagkerfi í Vestur-Evrópu, em
meira en þrjár milljónir manna tengd-
ar neðanjarðarhagkerfinu og það
stendur fyrir um 20% af þjóðarfram-
leiðslu, segir í skýrslunni.
í Bretlandi er þetta hlutfall 6-8%
og í Vestur-Þýskalandi er það 8-12%.
Ástandið er þó miklu verra austan
tjalds. í Ungveijalandi vinna 70%
manna, að minnsta kosti að hluta til,
fyrir utan hið löglega hagkerfi.
Tímaritið segir að ríkisstjómir og
verkalýðsfélög séu í öngum sínum að
reyna að ná tökum á svarta hagkerf-
inu og margir viðurkenni jafhvel
mikilvægi þess.
Frá Vestur-Þýskalandi berast þær
fregnir að ráðuneyti eitt hafi á síðasta
ári ráðið byggingafyrirtæki sem síðan
réð ólöglegan undirverktaka til að
byggja við húsnæði ráðuneytisins.
BODDIHLUTIR - DRIFLIÐIR - VATNSKASSAR
- Mikið úrvai boddívarahluta, bæði til viðgerða eftir
árekstur og til ryðbætinga.
- Komplett vatnskassar í flestar gerðir bila.
- Drifliðir, bæði lausir liðir og komplett öxlar í marg-
ar gerðir bíla.
- Aðalljós, stefnuljós og fl. í nokkrar gerðir bíla.
Póstsendum.
S/F
DL0JLAI1 JDl
SKEIFUNNI 5-108 REYKJAVÍK (91) 33510- 688510.