Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Síða 26
26
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Iþróttir
lþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Svavar Markússon i keppni á árum áður. DV-mynd S.
Minningarhlaup um
Svavar Markússon
- á vegum Búnaðarbankans og KR
Svavar Markússon, KR, vsir um
langt árabil fremsti hlaupari íslands á
millivegalengdum, átti íslandsmet í
800 m, 1000 m, 1500 m og míluhlaupi
og vann glæsta sigra heima og erlend-
is. Eftir að hann hætti keppni var
hann mjög virkur í starfi fijálsíþrótta
á íslandi, stjómarmaður í FRÍ og KR.
Hann lést langt um aldur fram 1976,
aðeins 41 árs að aldri.
Frjálsíþróttadeild KR og Búnaðar-
banki íslands hafa ákveðið að efha til
fyrsta minningarhlaups um Svavar
Markússon næstkomandi miðvikudag,
25. júní, á ftjálsiþróttavellinum í Laug-
ardalnum. Hlaupið er 1500 metrar og
er 20 bestu hlaupurum íslands á vega-
lengdinni boðið að taka þátt í því.
Fyrirhugað er að minningarhlaupið
verði árlegur viðburður. Keppt verður
í fleiri greinum á mótinu á miðviku-
dag, 100 m, stangarstökki, hástökki,
langstökki og kringlukasti karla, 100
m grindahlaupi, 400 m hlaupi, kringl-
ukasti og hástökki kvenna. Mótið
hefst kl. 20.
Svavar Markússon var lengi starís-
maður Búnaðarbankans og þar síðast
aðstoðarbankastjóri. Búnaðarbank-
inn hefur gefið veglega bikara, sem
keppt verður um á mótinu, og er sér-
lega vandað til gripsins í minningar-
hlaupinu.
hsím
Bættu sig í
Lillehammer
Þeir Guðmundur Sigurðsson og Sig-
uijón Valmundsson náðu sínum besta
árangri á ftjálsíþróttamóti í Lilleham-
mer í Noregi 14.júní. Guðmundur hljóp
1500 m á 3:54,6 mín. og Sigurjón stökk
7,08 m í langstökki. Þeir eru meðal sex
félaga UBK í Kópayogi sem eru í
keppnisferð í Noregi. Á mótinu í Lille-
hammer hljóp Guðrún Amardóttir, ný
hlaupastjama í UBK, 200 m á 24,9
sek. og Berglind Erlendsdóttir á 25,9
sek.
Á móti í Osló hljóp Guðrún loo m á
12,33 sek., Berglind 400 m á 58,6 sek.,
Guðmundur 1500 m á 3:56,4 mín. og
Sigurjón stökk 6,90 m í langstökki.
Akureyringurinn Hjörtur Gíslason,
sem nú starfar sem læknir í Noregi
og keppir fyrir norskt félag, keppti á
mótinu. Hljóp 110 m grindahlaup á
ágætum tíma, 14,83 sek.
ÓU/hsím.
„Þessi gömlu bein
geta ennþá hlaupið
- sagði Carl Lewis. Hljóp á 9,91 sek. í meðvindi
„ Það var virkilega gaman hér í
dag. Þessi gömlu bein geta ennþá
hlaupið,“ sagði skærasta stjaman í
fijálsíþróttum, Bandaríkjamaðurinn
Carl Lewis, eftir að hann hafði orðið
bandarískur meistari í tveimur grein-
um á meistaramótinu í Eugene,
Oregon, á föstudag. Hann hljóp 100 m
á 9,91 sek. en meðvindur var of mikill
til að afrekið fai staðfestingu. Það er
fjórði besti tími sem náðst hefur í
heiminum í meðvindi. Lewis, sem
hlaut fem gullverðlaun á ólympíuleik-
unum í Los Angeles fyrir tveimur
árum, er nú orðinn 24 ára. Það þykir
nokkuð hár aldur hjá spretthlaupara
og þess vegna talaði hann um „gömlu
beinin". Kalli sigraði einnig í lang-
stökki, stökk 8,67 m, en það var sama
sagan þar. Meðvindur of mikill. Hann
stökk aðeins íjórum sentímetrum
lengra en Mike Conley, þrístökkvar-
inn frægi. Mike stökk 8,63 m. Fimmti
stökkvari í heimi til að stökkva yfir
28 fet (8,53), en meðvindur of mikill.
Lewis náði besta stökki sínu í fjórðu
tilraun, 19 mín., eftir að hann hafði
sigrað í 100 m hlaupinu. Larry
Myricks varð þriðji með 8,33 m.
Meistari í 4. sinn
Carl Lewis skráði nýjan kafla í
• Carl Lewis - meistari í tveimur
greinuri á föstudag.
ftjálsíþróttasögu USA þegar hann
sigraði í 100 m hlaupinu. I fjórða skipti
sem hann verður bandarískur meistari
á vegalengdinni. Það hafði engum te-
kist áður- ekki einu sinni Jesse
Owens. Lewis þurfti talsvert fyrir sigr-
inum að hafa. Að venju var hann
nokkuð aftarlega eftir viðbragðið og
það var ekki fyrr en 15 metra frá
marklínunni að hann náði Lee McRae.
Eftirleikurinn auðveldur, Kalli var um
metra á undan í mark. Lee varð annar
á 10,02 sek. og Harwey Glance þriðji
á 10,04 sek. Heimsmethafinn á vega-
lengdinni, Calvin Smith, komst ekki i
úrslitin, þar sem hann brá tvívegis of
snemma við í undanúrslitum og var
dæmdur úr leik.
Ashford þriðja
Það vakti mikla athygli að heims-
methafinn og ólympíumeistarinn,
Evelyn Ashford, varð aðeins í þriðja
sæti í 100 m hlaupi kvenna. Úrslita-
hlaupið gífurlega spennandi og nær
útilokað að sjá hver kom fyrst í mark.
Aðeins millímetramunur. Pam Mars-
hall sigraði á 10,80 sek. Alice Brown
önnur á 10,84 sek. og Ashford þriðja
á 10,85 sek. Tímamir ekki löglegir
vegna meðvinds.
John Brenner varð meistari í kúlu-
varpi, varpaði 21,09 m, eða nákvæm-
lega sama og íslandsmet Hreins
Halldórssonar er. Greg Tafralis varð
annar með 20,89 m. Carol Cady sigraði
í kringlukasti kvenna, 62,72 m, Louise
Ritter í hástökki, stökk 1,93 m. Greg
Foster varð meistari í 110 m grinda-
hlaupinu á 13,26 sek. Vindur löglegur
þá. hsfrn
„Varð steinhissa þegar
Ijóstvarðaðégsigraði
- sagði Chariie Simpkins sem stökk 17,91 m í þristökki
„Ég vissi að ég gat sigrað kappana
sem hlotið hafa miklu meira umtal en
ég í fjölmiðlum. Ég hef æft mjög vel
en varð þó steinhissa þegar ljóst var
að ég hafði sigrað - komst í fyrsta
sætið í síðasta stökkinu. Mér fannst
það langt en ekki það langt að það
nægði til sigurs," sagði Charlie Simpk-
ins, eftir að hann hafði stokkið 17,91
m og sigrað í þrístökki á bandaríska
meistaramótinu í Eugene í Oregon á
laugardag. Það er annað lengsta stökk
í sögu þrístökksins en Simpkins fær
árangur ekki skráðan sem löglegan
þar sem meðvindur var of mikill. Hann
átti áður fyrr heimsmetið innanhúss.
Mike Conley varð annar í þrístökkinu
með 17,84 m og heimsmethafinn, Willie
Banks, varð að láta sér nægja þriðja
sætið - stökk 17,52 metra. Heimsmet
hans er 17,97 m. Meðvindur var einnig
of mikill þegar þeir náðu sínum besta
árangri í Eugene.
„Ég var ekki vel undirbúinn fyrir
þetta hlaup. Er ekki í nægri úthalds-
æfingu en það kemur þegar líður á
sumarið," sagði Carl Lewis eftir að
hann varð aðeins í fjórða sæti í 200 m
hlaupinu á meistaramótinu. Aldrei
þessu vant náði hann góðu viðbragði
og var fyrstur í beygjunni. Síðan dró
mjög af honum.
„Ég varð svolítið skrítinn í höfðinu
þegar ég haföi sigrað og unnið Kalla,“
sagði Floyd Heard, tvitugur háskóla-
stúdent, sem sigraði í hlaupinu á 20,03
sek. Meðvindur var of mikill. Dwayne
Evans varð annar á 20,12 sek. Kirk
Baptiste, sem varð annar á vegalengd-
inni á eftir Carl Lewis á ólympiuleik-
unum í LA, varð þriðji á 20,14 sek. og
Carl fjórði á 20,30 sek.
Reynt við USA-met
Mjög góður árangur náðist í mörgun
greinum á mótinu á laugardag þó
vindur væri nokkur. Mike Tully
reyndi að setja nýtt bandarískt met í
stangarstökki - tókst þó ekki að
stökkva yfir 5,91 metra en sigraði á
5,80 m. Earl Bell varð annar, stökk
5,70 m. Joe Dial, sem á bandaríska
metið, 5,90 m, þriðji. Stökk einnig 5,70
m.
Johnny Gray náði bcsta hcimstímanum í
ár þegar hann sigraði í 800 m hlaupinu á 1:44,
73 mín. Hafði hann yfirburði. Stanley
Redwine varð annar á 1:45,86 mín. Gamli
kappinn, Henry Marsh, varð meistari í 3000
m hindrunarhlaupinu, þegar hann sigraði á
góðum tima, 8:19,16 mín., eftir harða kcppni
við Jim Cooper, 8:19,88 mín., og Farley Ger-
ber, sem varð þriðji á 8:20,07 mín.
John Powell, sem lengi hefur verið í eld-
línunni og verður 39 ára á miðvikudag,
sigraði í kringlukasti - kastaði 65,94 m. Þar
var sentímetrastríð. Rick Meyer varð annar
með 65,86 m. Arangur í spjótkastinu var mjög
slakur. Tom Petranoff varð meistarí. Kastaði
hann þó ekki nema 76,32 m. Bob Roggy varð
annar með 76,00 m og Brían Crouser þríðji
með 75,08 m.
í 400 m hlaupinu varð Darrell Robinson
meistarí á 44,47 sek. eftir hörkukeppni við
Roddie Haley, sem varð annar á 44,50 m.
Walter McCoy varð þriðji á 45,07 sek. Steve
Scott sigraði í 1500 m hiaupinu á 3:42,41 mín,
Jim Spivey varð annar á 3:42,99 mín. í spjót-
kasti kvenna sigraði Helena Uusitalo, Finn-
landi, kastaði 58,44 m eða talsvert styttra en
Islandsmet Irisar Grönfeldt er. Þá sigraði
Carol Lewis, litla systir Carls, í langstökki
kvenna. Stökk hún 6,93 m en meðvindur var
of mikill.
hsím
Sumarmöt öldunga í
Sumarmót öldunga fór fram i Laug-
ardal sfðastliðinn þriðjudag. Kepp-
endur voru 20. Mótið var haldið
vegna þátttöku íslands í Evrópu-
meistaramótinu í Malmö 26. júlí -
2. ágúst i sumar. Þar keppa 7 Islend-
ingar. Á mótinu í Laugardal voru
athyglisverð afrek unnin.
Keppnisflokkar: Konur, 35-39 ára.
Karlar, 35-39 ára, 40-44, 45-49, 50-
54, 55-59 og 60-64 ára.
Úrslit:
Karlar:
Fl. 200 m hlaup Sek.
40 Trausti Sveinbjörnsson UBK 25,6
Ölafur Guðmundsson KR 26,0
50. Guðmundur Hallgrimsson UÍA 26,1
400 m hlaup
40. Trausti Sveinbjörnsson UBK 57,8
50. Guðmundur Hallgrímsson UÍA 64,0
10.000 m hlaup Mín.
40. Ægir Geirdal Gerplu 39:49,8
60. Jón Guðlaugsson HSK 42:57,6
Hástökk
35. Jón ívarsson HSK 1,48
55. Sigurður Friðfinnsson FH 1,45
Laugaidal
Kringlukast
Fk Kg M
35. Guðni Sigfússon KR 2,0 32,50
40. Ólafur Guðmundsson KR 2,0 30,22
45. Ólafur Unnsteinsson HSK 2,0 37,14
Jón Þ. Ólafsson lR 2,0 36,50
50. Jón Magnússon lR 1,5 35,12
60. Marteinn Guðjónsson ÍR 1,0 32,86
Sleggjukast
40. Jón ö. Þormóðsson fR 7,2 41,84
50. Jón J. Magnússon ÍR 6,0 51,06
Bjöm Jóhannsson UMFK 6,0 40,10
60. Marteinn Guðjónsson ÍR 5,0 34,04
Ó1.U.
Siggi Einars varð þriðji
Sigurður Einarsson spjótkastari
varð í þriðja sæti á alþjóðlegu móti í
frjálsum íþróttum sem háð var í síð-
ustu viku. Sigurður kastaði spjótinu
73,62 metra. Sigurvegari varð Svíinn
Dag Wennlund en hann kastaði 76,10
metra.
Eggert Bogason kringlukastari er
nálægt því að ná lágmarkinu fyrir
Evrópumótið sem fram fer f Stuttgart
í sumar. Á kastmóti KR nýverið kast-
aði Eggert kringlunni 58,26 metra en
lágmarkið er 60 metrar. A sama móti
kastaði Guðrún Ingólfsdóttir kringlu
50,72 metra og Soffia Rósa Gestsdóttir
kastaði 41,04 metra sem er fjórða
lengsta kast íslenskrar konu.
-SK.