Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Page 42
42
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Ken Kercheval
sá hinn sami og leikur hinn
þrautseiga Cliff Barnes í Dall-
as-þáttunum ógnarvinsælu,
gekk fyrir skömmu í það heil-
aga. Hin heppna heitir Ava
Fox og hafa þau búið saman
í mörg ár. Brúðkaup þeirra fór
fram með mikilli leynd og það
var ekki fyrr en i samkvæmi
sama dag, sem haldið var á
vegum framleiðanda Dallas-
seríunnar, að þau tilkynntu
um þennan löggerning sinn.
Þegar undruninni og ham-
ingjuóskaflóðinu linnti buðu
þau öllum í giftingarveislu í
hús sitt í Hollywood Hills. Var
þar glatt á hjalla langt fram
eftir nóttu.
John
McEnroe
tennisstjarnan skapheita, hef-
urað undanförnu sýnttilburði
í þá átt að láta gamlan draum
sinn rætast. McEnroe hefur
lengi langað að reyna fyrir sér
sem rokksöngvari og nú hefur
hann verið í óða önn við að
læra á gítar. Tennisstjarnan
hefur heldur ekki haft kennara
af verri endanum, Eddie van
Halen hefur verið með McEn-
roe í einkatímum og fer
kennslan fram á heimili
McEnroes.l Sá hængur var þó
á að kennslustundirnar voru
svo háværar að nágrannarnir
gerðu með sér bandalag og
fengu tennisstjörnuna til að
lækka I tækjunum. Hugsa
nábúar McEnroe's nú með
hryllingi til þess ef hann gerir
alvöru úr rokkaradraumi sín-
um.
Jóakim
Danaprins
sem er sá yngri af prinsunum,
varð 17 ára laugardaginn 7.
júní. Lítið var um dýrðir í Dan-
mörku af því tilefni enda hann
ekki jafnmikið í sviðsljósinu
og krónprinsinn, bróðir hans.
Hann er þó á förum til Ástral-
íu I því skyni að læra um
landbúnað. Mun prinsinn
dvelja hinum megin á hnettin-
um næstu 6 mánuði og koma
heim reynslunni ríkari og von-
andi mun fróðari ef að líkum
lætur.
Jón Páll dró sendiferðabfl með 38 börnum
Mikið var um dýrðir á eins árs af-
mæli veitingastaðarins American
Style og margt sér til gamans gert.
Fjöldi manns var mættur til að fylgj-
ast með allsérstæðu afmælismóti sem
staðurinn gekkst fyrir. Keppt var í
sendiferðabifreiðardrætti og reyndu
7 keppendur með sér. Þrautin var sú
að draga sendiferðabifreið ákveðna
vegalengd á sem skemmstum tíma.
Mikið gekk á og menn spöruðu ekki
átökin. Svitinn spratt fram á enni
keppenda en að lokum stóðu uppi 3
kraftakarlar sem áttu eftir að keppa
til úrslita. í verðlaun voru matarút-
tektir fyrir 5000,3000 og 1000 kr. eftir
því í hvaða sæti menn lentu. Úrslita-
keppnin var jöfn og spennandi en að
lokum stóð aðeins einn uppi sem sig-
urvegari, sá hét Guðjón og var hinn
mesti berserkur. Jón Páll Sigmars-
son kraftajötunn stjórnaði drættin-
um af mikilli röggsemi en þegar
keppninni var lokið gat hann ekki
stillt sig um að reyna líka. Var bíll-
inn þá fylltur af börnum og þegar
hann var fullfermdur hófst Jón Páll
handa. Við ramman reip var að draga
en þrátt fyrir að bíllinn væri drekk-
hlaðinn náði Jón Páll að toga bílinn
áfram og var þessu þrekvirki hans
óspart fagnað af viðstöddum.
Gullfoss og Geysir á myndbandi fyrir ferðamenn
Farfuglamir eru ein fyrsta vor-
koman sem við íslendingar verðum
varir við á hverju ári. í kjölfar þeirra
koma aðrir fuglar, ferðamenn.
Ferðamannastraumurinn hingað til
lands hefur stóraukist á undanföm-
um árum og heldur víst áfram að
aukast. En hingað koma ekki ein-
göngu ferðamenn sem ætla að dvelj-
ast hér í lengri eða skemmri tíma.
Landið er vinsæll áningarstaður,
hvort sem menn em á leið í austur
eða vestur, koma með flugvél eða í
skipi. Er þá yfirleitt stansað hér til
að taka eldsneyti eðaná í birgðir sem
kunna vera af skornum skammti.
Ferðalangarnir stoppa þá hér í stutt
an tíma og kynnast því litlu.af landi
og þjóð nema afgreiðslufólki og
verslunum. Allir vilja eiga minjagrip
Rússneska skemmtiferðaskipið sem stoppaði hér.