Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 45
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. 45 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós wmmm wmMÉ ggigl SflS iiip WiÉmM mmkmm w5Sm>. m§Éa& WvÉMma wm Tvífari Jóns Páls? Hann er óárennilegur þessi afkom- andi Þorgeirsbola sem þarna hleypur með manngreyið í eftirdragi. Mynd þessa er að fínna í norsku blaði í dálki sem kalla má: „Margt getur skemmtilegt skeð“. Óneitanlega er maður sá sem reynir að halda aftur af bola líkur Jóni Páli. Þetta mun þó ekki vera hinn eini sanni Jón Páll enda mundi hann aldrei láta eitthvert naut draga sig um víðan völl. Sennilega er þetta þegar öllu er á botninn hvolfit fjarskyldur ætt- ingi kraftakarlsins enda eigum við íslendingar víst ættir að rekja til frænda okkar í Noregi. Elisabet er alltaf grönn og nett. Konungleg megrunarráð Á tímum megrunarkúra og líkams- þjálfunar hafa augu Breta beinst í síauknum mæli að drottningu sinni og líkamlegu atgervi hennar. Allir vilja vita galdurinn á bak við það að hún vegur í dag jafnmikið og fyr- ir 30 árum. Elísabet II. er nú um sextugt, hún hefur eignast 4 börn og hefur hvítar og beinar tennur þrátt fyrir að hafa á hverjum degi dagskrá sem sennilega er martröð fyrir „kal- oríuteljara". Árangur Elísabetar byggist á ákveðnum reglum og mikl- um viljastyrk. Ef fólk vill prófa hinn konunglegu megrunarráð þá er bara að fylgja þeim eftir og sjá hvort þetta á bara við fólk með blátt blóð í æðum. 1) Hellið aldrei sósu yfir matinn ykk- ar. Elísabet hefur síðan í bamæsku neytt matar síns án sósu og þ.h. 2) Borðið vel í hádeginu. T.d. kalt kjöt og salat. Næringarríkur hádeg- ismatur dregur úr þörfinni fyrir snarl í eftirmiðdaginn. 3) Veldu þér ákveðin föt sem öryggis- ventil á eigin þyngd. Ef fótin fara að þrengja að hið minnsta þá skaltu strax fara í megrunarkúr, sama hvað vigtin segir. 4) Drekktu mikið af vatni yfir dag- inn. 5) Áður en þú ferð í samkvæmi skaltu vera búinn að ákveða nokkum veg- inn hve mikið þú ætlar að láta ofan í þig- 6) Þekktu veikleika þína. T.d. leyfir Elísabet sér alltaf þann munað að fá sér eitt stykki af uppáhaldssúkkulaði sínu á hverjum degi. 7) Skildu ávallt smávegis eftir á disk- inum þínum. Það er góð æfing í sjálfsögun. 8) Borðaðu hægt og talaðu aldrei við aðra um þyngd þína. George Michael vill breyta ímynd sinni „Ég drekk alltof mikið og verð allt- of oft dauðadmkkinn. En þannig get ég gleymt vandamálunum. Þegar maður er kominn í það eru vanda- málin ekki til og allt er svo skemmti- legt - daginn eftir eru hlutirnir orðnir verri en nokkru sinni fyrr.“ Orð þessi mælir hinn 22 ára gamli George Michael sem hefur í 4 ár ver- ið annar helmingur Wham-dúettsins geysivinsæla. Þetta átrúnaðargoð fjölda ungl- inga er ekki jafnglaður og áhyggju- laus eins og mætti ætla. Hann er þvert á móti einmana og óhamingju- samur. Líf poppgoðsins er greinilega ekki einungis dans á rósum og gæfan er fallvölt. „Ég gat ekki endalaust lifað eftir þeirri ímynd sem mér hafði verið sköpuð," segir söngvarinn og bætti síðan við að það hefði verið ástæðan fyrir því að Wham er nú að syngja sitt síðasta. „Ég vildi ekki sífellt vera að leika hlutverk hins sykursæta unga manns og það sagði ég Andrew Ridgeley. Hann skildi sjónarmið mitt og okkur var ljóst að Wham myndi bráðum heyra til for- tíðinni," segir Georg Michael. Nú eiga þeir Wham-drengir aðeins eftir að spila saman á nokkrum kveðjutónleikum og munu þeir allir standa yfir í 6 klukkustundir. Vin- sældir Wham eru miklar ef marka má þá gífurlegu aðsókn sem er í miða á hveija einustu tónleika. „Wham hefur verið líkast ævintýri og ég veit vart aura minna tal. Þegar velgengn- in hófst fyrir 4 árum vorum við ungir, glaðir og sætir og markaður- inn þarfnaðist einmitt þannig hljómsveitar þá stundina," heldur söngvarinn áfram. Hann segist nú geta keypt það sem hann vill - nema hamingju. Hann segist nú hata allar þær neikvæðu hliðar sem eru á lífi stjarna. George Michael segist ein- ungis vilja vera hann sjálfur en ekki bara einhver sem fólk glápir á. Hann segist hafa ímugust á því kvenfólki sem sífellt hlaupi á eftir stjörnunum og gefi allt fyrir að eiga nótt með þeim. Hann hefur ákveðið að skapa sér nýja ímynd. Hann hefur látið lita hárið dökkt og rakar sig ekki. Nú er hinn sykursæti George Michael horfinn en það verður töffarinn Ge- orge Michael sem mun leika inn á plötur í sumar með Arethu Franklin og Michael Jackson. „Á tónlistar- sviðinu hefur mér aldrei gengið betur en persónulega hefur mér aldrei liðið verr,“ segir söngvarinn. Honum er ljóst að hann verður að koma stjórn á líf sitt. Hann dreymir um að hætta að drekka og finna sér konu sem vill hann sem persónu en ekki sem poppgoð. Hann er einn af vinsælli tónlistarmönnum jarðarinnar og það væri synd að sjá alla þá hæfileika sem í honum búa fara í hundana. Wham-dúettinn er að syngja sitt síð- asta um þessar mundir. Nú ætlar söngvarinn að breyta um ímynd. Robert Redford varð víst alveg æfur þegar hann fékk svokallaða „stjörnumeðhöndlun" á flug- vellinum í Los Angeles. Stjarnan var á leið til New York þegar hryðjuverkaóttinn reis sem hæst og þegar komið var að málmleitartækinu bað hann öryggisvörðinn um að leita frekar í töskunni. Ástæð- an var sú að Redford hafði þar filmur og vildi ekki láta gegnumlýsa töskuna af ótta við að þær skemmdust. Vörð- urinn leit á leikarann góð- kunna og sagði síðan: „Þetta er í lagi, haltu bara áfram". Redford brást hinn reiðasti við og sagði þetta enga leit og heimtaði að fá að tala við yfir- manninn á staðnum. Þegar hann bar að var Redford enn í vígaham og benti þeim á hve auðveldlega hann hefði getað smyglað byssu inn í flugvélina og sagði að svona vinnu- brögð gerðu það að verkum að honum væri illa við að fljúga. Verðirnir sögðust hafa hleypt honum í gegn af því þeir þekktu hann en hann sagði það vera enga afsökun. Redford sagði að allir ættu að vera jafnir þegar öryggisgæsla væri annars vegar og heimtaði að á sér yrði leitað. Urðu menn nú við tilmælum hans, kom þá í Ijós að ekkert varhugavert var að finna í fórum Redfords og áhyggjur hans því ástæðu- lausar! Ólyginn sagði... Peter Falk sá sem lék Columbo leynilög- regluforingja hér á árum áður, er farinn að leggja málaralist fyrir sig. Þetta nýja áhugamál hefur alveg heltekið leikarann og teiknar hann mörg módel á dag. Falk leggur stund á „croquis" eða hraðteikningu og eru öll hans módel nakið kvenfólk. Ekki furða að hann sé áhugasamur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.