Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Sandinistar banna útgáfii
eina stjórnarandstöðublaðsins
Sandinistar í Nicaragua hafa lýst yfir hertari ákvæöum neyöarlaga er giit hafa í landinu aö undanförnu í kjölfar þeirr-
ar ákvöröunar Bandaríkjaþings að auka aðstoð við contraskæruliða. Hermenn sandinista á eftirlitsferð við landamæri
Nicaragua og Honduras.
Yfirvöld í Nicaragua lokuðu í gær-
kvöldi ritstjómarskrifstofum eina
eftirlifandi stjómarandstöðublaðs
landsins, La Prensa, og bönnuðu útr
komu þess.
Yfirvöld í Managua hafa í kjölfar
ákvörðunar Bandaríkjaþings um stór-
aukna aðstoð við contraskæmliða lýst
yfir hertari ákvseðum neyðarlaga er
gilt hafa í landinu að undanfómu.
Bandarískt blóð
Daniel Ortega, leiðtogi sandinista,
fordæmdi ákvörðun Bandaríkjastjóm-
ar um stóraukna aðstoð við contra-
skæmliða í viðtali við bandaríska
sjónvarpsstöð í gærkvöldi og sagði að
ef fram færi sem horfði um aukna
aðild Bandaríkjastjómar að átökum
sandinista og contraskæruliða, mætti
brátt búast við því að fyrstu banda-
rísku hemaðarráðgjafamir tækju að
falla í Mið-Ameríku.
Ortega lýsti í gær yfir hertari
ákvæðum neyðarlaga í landinu og
hvatti þjóð sína til að vera á verði
gagnvart útsendurum Bandaríkja-
stjómar er nú reyndu hvað þeir gætu
til að grafa undan þjóðaröryggi.
Haft var eftir talsmanni í innan-
ríkisráðuneytinu í Managua í gær-
kvöldi að lokun La Prensa væri hluti
af hertari reglum neyðarlaga. La
Prensa hefur undanfamar vikur mátt
sæta harðri ritskoðun stjómvalda.
Eina stjórnarandstöðublaðið
La Prensa hefúr verið eina dagblað
Nicaragua er haldið hefúr uppi gagn-
rýni á ríkisstjóm sandinista og hefur
verið eitt útbreiddasta dagblað lands-
ins.
La Prensa var einnig málsvari
stjómarandstöðu og gagnrýni á ríkis-
stjóm einræðisherrans Anastasíó
Somoza áður en hann hrökklaðist frá
völdum árið 1979.
Ortega varði þá ákvörðun ríkis-
stjómar sinnar að banna útgáfu La
Prensa í viðtali við bandaríska sjón-
varpsstöð í gærkvöldi og sagði að
sandinistar myndu gera allt er í þeirra
valdi stæði til að koma í veg fyrir
hvem þann áróður stjómarandstæð-
inga er grafið gæti undan öryggi
ríkisins.
„Eining er
ekki dauð“
- segir Lech Walesa
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
hinnar bönnuðu verkalýð='u'e.'fingar
í Póllandi, neitaði því í gær að Eining
væri liðin undir lok. Sagði hann að
hugmyndir hreyfingarinnar hefðu enn
mikil áhríf í Póllandi.
„Nei það er ekki búið að jarða Ein-
ingu,“ sagði Walesa í viðtali við
ítalska blaðið II Tempo.
„...Vandamálið hjá okkur nú er að
gera okkur grein fyrir því hver af
markmiðum okkar em orðin að raun-
vemleika, og hvenær hægt er að
hrinda hinum sem eftir em í fram-
kvæmd,“ bætti hann við.
Walesa sagði að það væri ekki mark-
mið Einingar að taka völdin í Póllandi
og vildu samtökin ekki stofna friði í
Evrópu í neina hættu og þaðan af síð-
ur heimsfriðnum.
Friðarverðlaunahafi Nobels 1983
sagði að miklar líkur væm á stuðn-
ingi almennings við mótmæli einingar
ef óánægja ykist með efnahagsástand-
ið.
Hann hefúr sótt um leyfi til að heim-
sækja Italíu í næstu viku, til að sækja
alþjóðlega friðarráðstefnu. Það var
ekki ljóst í gær hvort leyfið yrði veitt.
Þetta yrði fyrsta utanlandsferð Wa-
lesa síðan herlög vom sett í Póllandi
áríð 1981.
Lech Walesa segir síður en svo alian kraft úr Einingu. Hann hefur nú sótt um
leyfi til aö heimsækja Ítalíu og yrði það fyrsta utanför hans frá því herlög
voru sett 1981.
Maóistar myrtu
fjóra í Ayacucho
Yfirvöld í Perú sögðu í morgun að
skæmliðar maóista í ríkinu Ayacuc-
ho í suðvesturhluta landsins hefðu
drepið fjóra bændur í hefndarskyni
fyrir árás stjómarhersins á skæm-
liðafangelsi í síðustu viku.
Skæmliðar hótuðu því fyrr í vik-
unni að drepa tíu flokksmenn í
stjómarflokki Alans García forseta
fyrir hvem þann skæruliða er félli
fyrir kúlu hermanna stjómarhersins.
Yfirvöld segja að 159 skæmliðar
hafi látið lífið í árás stjómarher-
manna á þrjú fangelsi stjómarinnar
þar sem skæmliðar höfðu efht til
uppreisnar en talið er fullvíst að tala
látinna sé að minnsta kosti helmingi
hærri.
Sjö ferðamenn létu lífið og fjörutíu
særðust í mikilli sprengingu í Cuzco-
héraði í gærkvöldi í lest skömmu
áður en hún lagði af stað fullhlaðin
farþegum áleiðis til fomleifanna í
Machu Picchu í Andesíjöllum.
Skæruliðar maóista liggjandi á grúfu eftir handtöku í El Frontón fangelsinu
i Perú. Skæruliðar segjast ætla að hefna sín grimmilega fyrir árás stjómar-
hersins á þrjú fangelsi þar sem stjórnarandstæðingar vom hafðir í haldi
í síðustu viku.
íriand:
Tvísýnar skílnaðarkosningar
Búist er við því að úrslit í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um það hvort leyfa eigi
skilnaði á írlandi verði tvisýn.
Fréttir hafa borist um það að kjör-
sókn í gær hafi verið í dræmara lagi
en kosið var um það hvort leyfa skyldi
skilnað þar sem hjónaband hefði verið
í molum í að minnsta kosti fimm ár.
Síðustu skoðanakannanir fyrir
kosningar bentu til þess að meirihluti
fólks væri því andvígur að leyfa skiln-
aði, en ríkisstjóm landsins hefurbarist
hart fyrir þvi að fá tillöguna sam-
þykkta. Menn í stjómarflokkunum
höfðu í gær áhyggjur af því að slæm
útkoma út úr þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni myndi verða til þess að kosning-
um yrði flýtt en þær eiga að vera í
síðasta lagi í nóvember 1987.
Dick Spring, aðstoðarforsætisráð-
herrá landsins, vísaði því á bug í gær
að úrslitin gætu haft einhver áhrif á
það að kosningum yrði flýtt.
Ríkisstjómin styðst nú ekki lengur
við meirihluta á þingi.
„Ríkissfjómin hefur nú lagt fram
breytingartillögu við stjómarskrána
til að gefa fólki kost á því að breyta
henni,“ sagði hann og bætti því við
að þetta hafði ekkert með aðrar gjörð-
ir stjómarinnar að gera.
„Við höfum verk að vinna og við
ætlum okkur að ljúka því,“ sagði
Spring að lokum.
Sprengingar í Baskahéruðum
Tveir menn særðust, annar þeirra
lífehættulega, er sprengja sprakk við
hafharmannvirki í borginni Bilbao á
Norður-Spáni í morgun.
Skömmu áður særðist lögreglumað-
ur lítillega er sprengja sprakk við
útibú bandaríska 3-M fyrirtækisins í
Bilbao. Var lögreglumaðurinn að
kanna skrifetofuhúsnæði fyrirtækis-
ins, eftir að hafa fengið tilkynningu
um að sprengja væri falin í húsakynn-
unum, er sprengingin átti sér stað.
Yfirvöld telja fullvíst að aðskilnað-
arsamtök baska, ETA, beri ábyrgð á
sprengingunum.