Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 25. JÚLl 1986.
Helgi Seljan: Ekki aftur í þingframboð.
„Aðeins fyrir
ofurmenni að
sitja lengur“
- segir Helgi Seljan
„Ég skýrði rnínum félögum frá því
fyrir meir en ári að ég ætlaði ekki að
sækjast eftir endurkjöri á Alþingi í
næstu kosningum," sagði Helgi Seljan,
alþingismaður Alþýðubandalagsins á
Austurlandi.
„Ég tók þessa ákvörðun af ýmsum
persónulegum ástæðum. En ég tel
reyndar að það sé ekki nema fynr of-
urmenni í pólitík að sitja á þii.gi
lengur en í hálfan annan áratug án
þess að staðna eða missa tengsl við
kjósendur sína.
Ég hef ekki hugleitt hvað tekur við
hjá mér, það er ljóst að það er ekki
auðhlaupið í mitt gamla starf við
kennslu, þetta er orðinn það langur
tími.“
Helgi Seljan er fimmtíu og tveggja
ára gamall og hefur setið á þingi síðan
1971.
- ás.
Ríkisstjómin í gær.
Frumvarp um
eignaraðild
útiendinga
Á ríkisstjómarfundi í gær lagði
iðnaðarráðherra fram frumvarp
um breytingar á iðnaðarlögum.
Frumvaipið fjallar um eignarað-
ild útlendinga í fyrirtækjum hér
á landi. Framkvæmdastjóm Al-
þýðubandalagsins hefur mælt
gegn samþykkt þessa frumvarps.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
útlendingar geti átt meirihluta í
fyrirtækjum hér á landi en með
sérstöku leyfi frá iðnaðarráð-
herra. Einnig að erlent hlutafé-
lag, sem veittur hefur verið
réttur til að starfa hér á landi,
geti fengið leyfi til að reka iðnað
hér. Þá er einnig gert ráð fyrir
að erlendur aðili sem hefur feng-
ið leyfi til iðnrekstrar eigi rétt
til að eiga fasteignir hér á landi
í þágu iðnrekstrar.
Framkvæmdastjóm Alþýðu-
bandalagsins sendi fiá sér til-
kynningu þar sem þessu
frumvarpi er harðlega mótmælt.
„Með framkvæmd tillögu iðnað-
arráðherra væri stigið enn eitt
skref á þeirri breut að afhenda
útlendingum úrshtaáhrif í ís-
lensku efnahags- og atvinnulífi.
Reynslan af samskiptum við
Alusuisse ætti að vera víti til
vamaðar í þeim efnum,“ segir
m.a. í samþykktinni.
-APH
Hætta fjórir þing-
menn Framsóknar?
- Líkur á að tvö sæti losni á Norðuriandi eystra
Stjómmál
Þingflokkur Framsóknar gæti tekið miklum stakkaskiptum ettir næstu kosningar.
Líkur em til að fjónr þingmenn
Framsóknarflokksins gefi ekki kost á
sér í næstu kosningum samkvæmt
heimildum DV. Þeir em Stefán Val-
geirsson, Ólafur Þórðarson, Ingvar
Gíslason og Þórarinn Siguijónsson.
Ingvar og Stefán era þingmenn
Norðurlandskjördæmis eystra. Ingvar
er sextugur að aldri og búinn að sitja
í 25 ár en Stefán er orðinn 68 ára gam-
all. Búast má fastlega við að Guð-
mundur Bjamason hreppi fyrsta sætið
á lista Framsóknarflokksins þar
nyrðra en hörkuslagur gæti orðið um
hin tvö sætin, sérstaklega ef svo fer
að tveir þingmenn hætti.
Gefur Valur kost á sér?
Jón G. Hauksson, blaðamaður DV á
Akureyri, kannaði málið nyrðra:
Guðmundur Bjamason þingmaður
er nú í augum flestra framsóknar-
manna sterki maðurinn í kjördæminu.
Valgerður Sverrisdóttir, formaður
Kjördæmissambands framsóknar-
manna, er einnig oft nefnd til sögunn-
ar. Þess má geta að hún situr í stjóm
Sambands íslenskra samvinnufélaga.
Það er þó helst talið geta komið í veg
fyrir að Valgerður fari fram að hún
eigi ekki heimangengt vegna fjöl-
skyldu sinnar og setji það fyrir sig að
sitja syðra á vetn m.
Margir spyija sig að því hvort Valur
Amþórsson kaupf> lagsstjóri ætli í
framboð. Endalausar sögur em um
slíkt. Framsóknarmenn telja sjálfir
ekki útilokað að hann fari fram en
samt ekki sennilegt. Enda þótt fáir
flokksmenn telji sig vita um fyrirætl-
anir Vals em margir sem álíta að
framboð hans styrki flokkinn í kjör-
dæminu.
Hjá Framsókn er einnig mjög minnst
á Jóhannes Geir Sigurgeirsson, 36 ára
bónda. Hann þykir mjög frambærileg-
ur og hefur látið til sfn taka vegna
kvótamálsins í landbúnaðinum og
starfar fyrir Stéttarsamband bænda.
Eins þykir það styrkja flokkinn að
hafa bónda í baráttusætinu.
Auk þessa hefur DV hlerað syðra
að Bjami Hafþór Helgason (höfundur
Reykjavíkurlagsins) og Jón Sigurðar-
son hjá Sambandinu séu líklegir í
framboð fyrir Framsókn.
Fer Guðmundur G. gegn Har-
aldi?
Altalað er að Steingrímur Her-
mannsson telji Guðmund G. Þórarins-
son sterkari í fyrsta sætið í Reykjavík
en Harald Ólafsson sem skipaði sætið
síðast. Ekki ber að útiloka þann mögu-
leika að Steingrímur taki sætið sjálfur
en í því sambandi verður að minna á
að Framsóknarflokkurinn er langt frá
því ömggur með mann í Reykjavík
og því ef til vill ekki fysilegt fyrir for-
sætisráðherra að skipta á ömggu sæti
á Vestfjörðum fyrir óvissa framtíð í
höfuðborginni.
Finnur Ingólfsson, formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna hefur
hvatt unga menn til að bjóða sig fram
og verður því ugglaust með í slagnum.
Níels Árni fram gegn Jóhanni?
Framsóknarmenn hafa ekki þing-
sæti í Reykjaneskjördæmi en þar hefur
Níels Ámi Lund áhuga á að fara fram
að þvf er heimildarmenn DV töldu.
Jóhann Einvarðsson hefur hins vegar
verið starfssamur í flokknum í kjör-
dæminu undanfarið. Hann sagði í
samtali við blaðamann DV að hann
ætlaði að sækjast eftir fyrsta sætinu
að öllu óbreyttu. Ljóst er því að Níels
Ámi Lund fær ekki efsta sætið bar-
áttulaust ef hann hefur áhuga á því.
Vera kann að Helga Jónsdóttir, að-
stoðarmaður forsætisráðherra, hafi
áhuga á að reyna fyrir sér á Reykja-
nesi. Eiginmaður hennar, Helgi H.
Jónsson fréttamaður sem verið hefur
í framboði í kjördæminu, sagði í sam-
tali við DV að hann hefði ekki í hyggju
að gefa kost á sér.
Drífa Sigfusdóttir, bæjarfulltrúi í
Keflavík, og Inga Fríður Kjartans-
dóttir úr Kópavogi gætu verið líklegir
prófkjörskandídatar.
Ólafur Þ. líklega ekki áfram
Steingrímur Hermannsson er vita-
skuld sjálfkjörinn í efsta sæti flokksins
á Vestfjörðum ef hann flytur sig ekki
um set. Ólafur Þ. Þórðarson hyggst
ekki gefa kost á sér til áframhaldandi
þingmennsku, samkvæmt heimildum
DV, og raunar er það svo að hann á
sáralitla möguleika á að fljóta inn á
þing út á annað sætið eftir breyting-
amar á kosningalögunum. Dagbjört
Höskuldsdóttir er nefhd sem kandídat
í sæti ofarlega á listanum.
Hættir Þórarinn?
Framsóknarmenn em engan veginn
ömggir með að fá tvo menn inn á
Suðurlandi. Sterkur orðrómur er á
kreiki um að Þórarinn Sigurjónsson
fari ekki fram. Jón Helgason ráðherra
gæti komist á þann hátt úr fallhættu
en það þykir auðvitað ekki góð latína
að ráðherra falli í kosningum. Þórar-
inn Sigurjónsson sagði í samtali við
DV að hann myndi tilkynna hvorf
hann færi fram eða ekki á viðeigandi
vettvangi þegar að því kæmi. Guðni
Ágústsson er talinn líklegur til að
sækjast eftir sæti ofarlega á lista.
Unnur Stefánsdóttir úr Kópavogi gæti
einnig gert það.
Alexander Stefánsson verður sextíu
og fjögurra ára gamall í haust en mun
engu að síður líklegur til að gefa áfram
kost á sér í efsta sætið á Vesturlandi.
Ekki er brottfararsnið á Davíð Aðal-
steinssym heldur en Jón Sveinsson og
Steinunn Sigurðardóttir gætu sóst eft-
ir sætum ofarlega.
Páll Pétursson á Norðurlandi vestra
er ekki eins umdeildur og í síðustu
kosningum er stofriaður var BB listi
til höfuðs honum. Stefán Guðmunds-
son, sem sat í öðm sæti, heldur líkast
til áfram en gæti átt undir högg að
sækja þegar í kosningar verður komið.
Halldór öruggur eystra
Austurland er tryggt vígi Framsókn-
ar en mörgum finnst ólíklegt að
flokknum haldist á öllum þingmönn-
um sínum í næstu kosningum. Tómas
Ámason er kominn í Seðlabankann
og það kæmi því að öllu eðlilegu í
hlut Halldórs Ásgrímssonar að leiða
listann í næstu kosningum. Jón Kristj-
ánsson gæti flust í annað sætið en svo
gæti farið að áhugi væri á að koma
konu í annað eða þriðja sæti.
- ás.
Norðurland eystra:
Ámi, Halldór og Steingrímur áfram?
Jón G. Hauksscn, DV, Akureyii
Sjálfstæðismenn telja að Halldór
Blöndal sé ömggur með þingsæti sitt
í Norðurlandskjördæmi eystra, enn
innan flokksins ríkir ekki einhugur
um Bjöm Dagbjartsson. Telja ýmsir
að Tómas Ingi Olrich menntaskóla-
kennari fari fram en hann hefur verið
mjög áberandi innan flokksins að und-
anfömu.
Minna heyrist um hugsanlegar
breytingar í efstu sætum hjá Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi en ríkis-
stjómarflokkunum tveimur. Það er
altalað að Ámi Gunnarsson skipi efsta
sætið hjá Alþýðuflokknum en minna
heyrist um aðra. Flokkurinn vann sem
kunnugt er stórsigur í bæjarstjómar-
kosningunum á Akureyri og hefur því
vaxandi fylgi.
Steingrímur Sigfusson þykir ömgg-
ur með efsta sætið hjá Alþýðubanda-
laginu. Hann nýtur mikilla vinsælda
hjá flokksmönnum. Annað sætið er
talið verða í höndum Svanfríðar Jón-
asdóttur á Dalvík en hún hefur mjög
látið til sín taka í bæjarmálum þar að
undanfömu og skipaði eitt af efstu
sætunum á listanum í síðustu kosn-
ingum.
- ás.