Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Side 13
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
13
Oruggast að
sjáHum sér
Ef þú þarft að gangast undir upp-
skurð og þarft á blóðgjöf að halda
geturðu ekki verið gjörsamlega ör-
uggur um að sleppa við hættuleg
smit nema blóðið sé komið úr sjálfum
þér.
Hættan á því að sýkjast af sjúk-
dómnum alnæmi í gegnum blóðgjöf
er um það bil 1:10.000 eða minni en
hættan á því að deyja í aðgerð vegna
svæfmgar. Bandaríska heilbrigðis-
stoíhunin hefur reiknað út að færri
en 120 af þeim 8 milljónum Banda-
ríkjamanna sem árlega gefa blóð séu
með alnæmisveiruna. Þeir sleppa í
gegnum forrannsókn blóðbankanna
vegna þess að þeir eru með smit á
frumstigi en geta samt borið sjúk-
dóminn áfram með blóði sínu.
Margir geta átt á hættu að smitast
vegna blóðgjafarinnar vegna þess
að sjúkrahúsin nota ekki blóðið eins
og það kemur fyrir heldur bijóta það
niður í einingar eins og rauð og
hvít blóðkom og blóðflögur sem síð-
an er notað eftir þörfum. Þannig
geta fleiri en einn sjúklingur fengið
blóðhluta úr einum og sama blóð-
gjafanum og fengið í sig alnæmi-
sveiruna.
Eigin blóðgjöf
Bandaríska heilbrigðisstofhunin
dregur í efa að nokkru sinni verði
hægt að ábyrgjast fullkomlega að
sjúklingar smitist ekki við blóðgjöf
og því mælir stofnunin með eigin
blóðgjöf, að sjúklingar fái blóð úr
sjálfum sér hvenær sem það er
mögulegt. Þetta er hægt að fram-
kvæma eftir ýmsum leiðum.
42 daga geymsluþol
Ein leiðin er að tekið sé blóð úr
sjúklingi áður en hann fer í upp-
skurð. Hægt er að geyma blóð í 42
daga sem þýðir að venjulegur sjúkl-
ingur getur látið taka úr sér allt að
sex einingum af blóði sem er oftast
það magn sem sjúklingurinn þarfh-
ast við uppskurð. Þetta á ekki
einungis við heilsuhraust fólk á
bestá aldri.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að böm
allt niður í átta ára aldur og sjötug-
ir hjartasjúklingar geta hæglega
gefið sjálfum sér blóð, svo lengi sem
þeir fá blóðaukandi jámgjöf til þess
að koma í veg fyrir blóðleysi. Skipu-
leggja verður blóðgjöfina þannig að
síðasta blóðtakan sé að minnsta
kosti þrem dögum fyrir uppskurðinn.
Önnur leið er eins konar blóð-
þynning sem fólgin er í því að tappa
blóði af sjúklingi í upphafi aðgerðar
en gefa honum í staðinn saltvatns-
upplausn á meðan á aðgerðinni
stendur. Að henni lokinni er blóðinu
dælt í sjúklinginn á ný. Þannig yfir-
gefur sjúklingurinn skurðstofuna
með eigið heilbrigt blóð sem er hlað-
ið af súrefnismettuðum, rauðum
blóðkomum.
Blóöið hreinsað og notað aft-
ur
Þriðja leiðin er svo loks sú að allt
blóð sem kemur frá sjúklingi á með-
an á aðgerðinni stendur er sogið
jafhharðan upp, hreinsað á sérstak-
an hátt og síðan gefið sjúklingnum
á ný eftir því sem á þarf að halda.
Þessa aðferð er ekki hægt að nota
ef um kviðarholsaðgerð er að ræða
vegna sýkingarhættu.
Þessi aðferð hefur verið notuð með
góðum árangri við hjartaaðgerðir á
Fairfax sjúkrahúsinu í Arlington,
Virginiu. Arangurinn hefur verið
minni ásókn í blóð frá blóðbönkun-
um og færri aukaverkanir eftir
aðgerðir, eins og lágur blóðþrýsting-
ur og hiti, sem tefur oft á tíðum fyrir
bata sjúklinganna.
gefa
blóð
Eigin blóðgjöf ver sjúklinga ekki
eingöngu gegn alnæmisveimnni
heldur veitir þeim vöm gegn sýking-
um, eins og t.d. svokallaðri NANB
lifrarsýkingu, sem valdið getur
ólæknandi lifrarsjúkdómi eins og
skorpulifur. I bandarískum skýrslum
segir frá fómarlambi bifreiðarslyss
sem fékk eina einingu blóðs úr sýkt-
um blóðgjafa. Lífi þessa sjúklings
var bjargað síðar með lifrarigræðslu.
Vísindamenn vita lítið um þennan
sjúkdóm sem orsakar hvorki A- eða
B-gerð lifrarbólgu. Bandarískir blóð-
bankar hafa á stefnuskrá sinni að
rannsaka blóðgjafa framtíðarinnar
með tilliti til þessarar tegundar lifr-
arsjúkdóma.
Talið er að ekki sé hægt að koma
algjörlega í veg fyrir smit með þessu
móti. Reiknað er með að blóðgjöfum
muni þannig fækka um 5%, verð á
blóði muni hækka en samt er enn
möguleiki á að tveir þriðju hlutar
blóðgjafanna beri þessar hættulegu
veirur áfram í aðra sjúklinga.
Það rennir enn frekari stoðum
undir vinsældir eigin blóðgjafar sem
bandaríski Rauði krossinn og sam-
band bandarískra blóðbanka hefur
lagt blessun sína yfir. Þessar stofn-
anir mæla samt alls ekki með því
að fólk geymi eigið blóð á lager í
„frysti“-geymslum blóðbankanna í
því tilfelli að það þyrfti einhvem
tímann á því að halda í framtíðinni.
Ekki er heldur mælt með því að
sjúklingar biðji vini og vandamenn
sína um að gefa sér blóð.
Rannsóknir hafa sýnt að slíkir
blóðgjafar eru langt frá þvi að vera
ömggari en blóðgjafar almennt. Þeir
gætu meira að segja verið minna
öryggir: Fólk kemur sér stundum
ekki að því að viðurkenna við skyld-
menni sín að það noti eiturlyf eða
hafi átt í samkynja ástarævintýri.
Þýtt og endursagt úr The Economist.
-A.BJ.
Langsamlega áhættuminnst er að fá sitt eigið blóð þurfi maður á blóðgjöf að halda. Oft er hægt að koma þvi
við þegar sjúklingar þurfa að gangast undir aðgerð sem vitað er um i tima.
Holl húsráð
Gat á gólfteppireu
Hafi einhver verið svo oneppinn að
brenna smágat á gólfteppið er hægt
að bæta það á þennan hátt: Renndu
teppaburstanum yfir teppið þangað til
þú hefur náð dálítilli teppaló. Síðan
hnoðar þú lónni saman í hnökra á
. stærð við gatið, berð lím á hnökrann
og þrýstir honum niður í gatið. Síðan
nuddar þú skósóla yfir blettinn þangað
til allt hefur jafnað sig.
Jógúrtþeyta
Ef ætlunin er að þeyta ijóma, en
þeytirjómi ekki til á heimilinu, er ráð
að blanda saman 'A lítra af jógúrt, 3
eggjahvítum og 150 grömmum af strá-
sykri. Þeyttu eggjahvítumar uns þær
verða stífar, blandaðu sykrinum sam-
an við og síðan jógúrtinni. Þetta
bragðast ljómandi vel, sérstaklega
með ávaxtaeftirmat.
Skraufþurr
gróðuimold
Ekki þýðir að vökva ofan frá, ef
moldin er orðin skraufþurr í pottinum,
vatnið hripar bara beint niður í ská-
lina. Betra er að stinga pottinum á
kaf í vatn smástund og setja hann síð-
an á disk þar sem moldin getur sogið
vatnið í sig neðan frá.
Rauðvínsblettir
á teppi
Blautir blettir eru þurrkaðir með
pappír, þvegnir síðan með svampi og
köldu vatni og þurrkaðir með þurrum
klút. -RóG.
Fjallalambið
lækkar
í verði
Þar sem nýtt verð er komið á
allt kindakjöt í landinu lækkaði
að sjálfsögðu einnig verðið á fjalla-
lambinu sem við sögðum frá á
neytendasíðunni í gær. Þá kostaði
fjallalambið 234 kr. kg. 6 kg voru
í kassanum sem kostaði því 1592
kr.
Verðið var lækkað í gær um
20%. Því kostar þessi kassi í dag
tæpar 1300 kr. -A.BJ.
Neytendur
Pilturinn hafði safnað átta miðum en fengið neitun um plötu er á staðinn var
komið. Verslunarstjórinn segir að hér hafi verið um einhvem misskilning að
ræða.
Fær fría plötu
„Átta miðar = ein plata“ segir á
miðum sem hljómplötuklúbbur
Kamabæjar hefur gefið út undanfarin
ái'. Meðlimir plötuklúbbsins hafa feng-
ið einn miða í hvert skipti sem þeir
hafa keypt plötu og getað safriað sér
átta slíkum miðum og gegn framvísun
þeirra fengið eina plötu fría. Ungur,
óánægður piltur kom hingað á Neyt-
endasíðuna og sagðist hafa fyrir
skömmu lagt leið sína í plötuklúbbinn
með átta miða upp á vasann en fengið
neitun um plötu vegna þess að plötu-
klúbburinn væri hættur. Að vonum
var hann ekki sáttur við þetta þar sem
hann hafði safnað sínum átta miðum
í góðri trú um að fá plötu.
Nevtendasíðan hafði samband við
Jóhann Ásmundsson, verslunarstjóra
plötuverslunar Kamabæjar við Rauð-
arárstíg. þar sem plötuklúbburinn var
til húsa, og sagði hann að hér væri
um einhvem misskilning viðkomandi
afgreiðslumanns að ræða. Hlutaðeig-
andi ætti fullan rétt á að fá sína plötu
gegn framvísun miðanna þó að plötu-
klúbburinn væri hættur.
-Ró.G.
Þetta er lítil klemma sem fest er á öryggisbeltið. DV-mynd Óskar öm.
Öryggisbelta-
hnífur
Því hefur stundum verið fundið örygg-
isbeltum til foráttu að komið getur
fyrir að fólk festist í beltunum í slysum
við ákveðnar aðstæður. Nú er komið
á markaðinn lítil klenuna, tæki sem
fest er á öryggisbeltið. I þessu tæki er
lítill hnífur sem hægt er að skera bel-
tið í sundur með.
Inni í klemmunni er einnig hólf fyrir
upplýsingar um viðkomandi öku-
mann, blóðflokk hans og aðrar
nauðsynlegar upplýsingar. Óli H.
Þórðarson, framkvæmdastjóri Um-
ferðarráðs, segir í umsögn sinni um
þetta litla tæki að hann hafi haft það
á öryggisbeltinu í bíl sínum og það sé
ekki truflandi á neinn hátt.
Öryggisbeltahnífurinn er frá Aust-
urríki, er seldur hér á bensínstöðvum
Esso og bílavöruverslunum. Hann
kostar 250 kr. út úr búð.
-A.BJ.