Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986.
Lesendur
Það ætti að banna karate
Bréfritari telur að banna eigi karate alveg eins og box og byssur.
Vinsældalisti
rásar 2
ekki marktækur
Bjöm Kristjánsson skrifar:
Mig langar til þess að koma á
framfæri vegna vinsældalista
hlustenda á rts 2 að síðan hann
byrjaði hafa fkstir vitað að hann
er ekki marktækur fyrir íimm
aura. Það er ekki möguleiki að ein
hljómsveit geti komið allri plötu
sinni í einu á topp 10. Það er ekki
möguleiki nema þá með einhverju
svindli. Mér finnst til dæmis skrít-
ið að lagið Þrisvar i viku skuli
geta komist á toppinn í einu stökki,
er það ekki bara vegna þess að
söngvarinn í Bítlavinafélaginu er
með þátt á rás 2? Svona hræðilega
leiðinlegt lag ætti í mesta lagi að
komast í 27. sæti.
Svo er annað, mér finnst Herbert
Guðmundsson alveg pottþéttur
söngvari. Ef maður pælir i því er
Herbert eini íslenski söngvarinn
sem gerir plötur sínar af alvöm.
Þetta em vandaðar plötur, góðir
textar og lög og svo er hann með
bestu hljóðfæraleikarana. Ég vil
óska Herbert góðs gengis með
næstu plötu sem verður ömgglega
alveg frábær.
Sigurður vill að íslendingar ferðist meira með strætó.
Spurningin
Hver er uppáhalds-
maturinn þinn?
Bryndís Berghreinsdóttir nemi: Það
er nú það, ætli það sé ekki svínasteik.
Sigurvin Brynjólfsson sjómaður: Það
er svo margt sem mér finnst gott en
ætli það sé ekki einna helst roast-
beef.
Ingveldur Pálsdóttir
afgreiðslustúlka: Uppáhaldsmatur-
inn minn er nautasteik.
Pétur Þórðarson nemi: Það er curry.
Ágúst J. Elíasson kjötafgreiðslumað-
ur: Ætli það sé ekki svínahamborg-
ari.
Guttormur Sigurðsson vélvirki: Ég
veit nú ekki, það væri helst gott
nautakjöt.
„Komið í
Sigurður Harðarson skrifar.
Eg var á leið í vinnuna í strætó og
veitti því athygli hve margir em einir
á ferð í bílum sínum.
Það er auðvitað mjög þægilegt að
hoppa upp í bíl og keyra í vinnuna
en þetta kostar sitt. Bíll og bensín
strætó“
kosta gjaldeyri.
Ég og annað fiskvinnslufólk höfum
ekki efni á þessum munaði því við
fáum helmingi lægri laun en við eigum
skilið.
Góðir íslendingar, keyrið þessar
beyglur ykkar út og komið í strætó.
3620 4079 skrifar:
Við íslendingar höfurn löngum reynt
að varast marga erlenda ósiði, til
dæmis vopnaburð og box svo eitthvað
sé nefnt.
Eitt hefur okkur þó alveg sést yfir
en það er karate. Merkir orðið karate
ekki að drepa eða leyfi til að drepa?
Ég held að box sé bamaleikur í saman-
burði við karate. Mér skilst að högg
þau sem kennd em miðist við að hitta
á viðkvæma staði mannslíkamans sem
geta orsakað dauða eða örkuml. Allir
virðast geta fengið að læra þetta, í það
minnsta er þetta aðalæðið hjá smá-
strákum.
Mínir guttar, 6 og 8 ára, em algjör-
lega með karate á heilanum og er
Bmce Lee aðalhetjan þó hann sé nú
látinn, auminginn, af völdum karate.
Anna hringdi:
Eins og við öll vitum þá rignir mik-
ið hér á landi. Finnst mér því furðulegt
að ég skuli aldrei sjá fólk með regn-
hlíf. Það er að vísu staðreynd að oft
fylgir rigningunni hávaðarok en það
er nú samt ekki alltaf, þeir dagar koma
Kjósandi hringdi.
íbúamir í fjölbýlishúsinu Vestur-
bergi 138-142 tóku sig til, máluðu og
snyrtu og gerðu fínt í kringum hús
sitt. Eftir stendur við húsið spennustöð
nokkur í eigu borgarinnar og er hún
afar illa útlítandi og þarfhast málning-
ar.
Þrátt fyrir ítrekaðar óskir íbúa í
grenndinni hafa forráðamenn Raf-
Ég held að þetta sé orðið mjög alvar-
legt mál og það vantar greinilega öll
lög yfir þessa grein. Við stöndum hér
berskjölduð þvi við vitum ekki hvað
hér er á ferðinni en ég skal standa við
það hvar og hvenær sem er að karate
er ekki síður hættulegt vopn en hnífur
og byssa i návígi sé það í höndum
manns sem kann tæknina og getur
ekki hamið skap sitt.
Ég vil leyfa mér að skora á ráða-
menn þjóðarinnar að kynna sér hvað
hér er á ferð og þá að banna karate
eða koma lögum yfir þetta vopn sem
gæti allt eins verið búið að kála fleir-
um en vitað er.
Ég vil að lokum þakka DV fyrir
framlag þess til málefhaflutnings al-
memiings því það er alltaf nauðsynlegt
að allir fái að láta skoðun sína í ljósi.
sem vel er hægt að nota regnhlíf.
Fyndist ykkur ekki þægilegt að geta
komið inn úr rigningunni án þess að
vera hundblaut? Það er engin skömm
að því að nota regnhlíf.
Takið ykkur til og kaupið regnhlíf.
magnsveitunnar daufheyrst við
bænum okkar að fá þennan skúr mál-
aðan.
Nú hefur borgarstjórinn okkar
gengið fram fyrir skjöldu um að hafa
allt fínt á 200 ára afinæli Reykjavíkur.
Útvegi hann okkur málningu til að
mála skúr þennan mun heldur ekki
homa í penslunum hjá okkur.
Það er engin skömm að nota regnhlif.
„Þorir fólk ekki
að láta sjá sig
með regnhlrf?
Vegna 200 ára
afmælis
Reykjavíkur