Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1986, Side 27
FÖSTUDAGUR 25. JÚLl 1986.
39
„Hann er alveg rosalega gráðugur og hefur ekki mikiö fyrir því aö sporörenna fimm eða sex kríuungum a einu
bretti,“ sagöi Magnús sem sést hér mata veiöibjölluna. Mynd KAE
Vík í Mýrdal:
Veiðibjalla í fóstri
„Ég náði í hann niður á sanda og
hann hefur verið héma síðan,“ sagði
Magnús Hafsteinsson, sonur sveitar-
stjórans í Vík í Mýrdal. Magnús er
með veiðibjölluunga í fóstri og þó
fuglalífið í Vík sé líflegt eru heim-
alningar sem þessi fremur óalgengir.
Unginn, sem er um 3 vikna gamall
og fremur óásjálegur ásýndum, er orð-
inn mannelskur og hefur Magnús nóg
að gera við að útvega honum æti. „Ég
gef honum aðallega fisk eða kríuunga.
Það er nóg af dauðum kríuungum sem
hægt er að finna handa honum og
hann gleypir þá í einum bita,“ sagði
Magnús.
Veiðibjallan hefur aldrei verið talinn
fagur fugl en þessi ungi á þó orðið
marga aðdáendur í Vík, sem fylgjast
spenntir með vexti hans og þroska.
-S.Konn.
Veiðibjölluunginn spókar sig i garðinum hjá sveitarstjóranum og virðist una
hag sinum hið besta. > Mynd KAE
Siguriaunm vorn 250
kíló af dúfhakorni
Nýlega gengust Visa ísland og Bréf-
dúfhafélag Reykjavíkur fyrir dúfna-
kappflugi. Um 150 dúfur í eigu 19 aðila
víðs vegar af landinu reyndu með sér
og fólst leikurinn í því að ná sem bestr
um meðalhraða. Dúfunum var sleppt
í Vík í Mýrdal og reyndist sú hlut-
skarpasta fljúga á 50 kílómetra hraða
á klukkustund. Þykir það frekar slök
útkoma en skýringin liggur sjálfeagt
í frekar óhentugu flugveðri. Sigurdúf-
an flaug að Bræðraparti við Engjaveg
í Laugardal og er í eigu bræðranna
Stefáns og Hannesar Jónssona. Hlutu
þeir 250 kíló af dúfriakomi í verðlaun
sem er ekki amalegt þegar marga
munna er að metta. JFJ
Sigurdúfan náði 50 kílómetra hraða á
klukkustund.
Kolbrún Skaftadóttir og Hanna Elíasdóttir í nýju versluninni.
Blái fugHnn
Opnuð hefur verið í Pósthússtræti
13 verslunin Blái fuglinn. Eigendur
em Hanna Elíasdóttir og Ingvar
Sveinsson. Verslunarstjóri er Kolbrún
Skaftadóttir.
Blái fuglinn hefur umboð fyrir amer-
íska vörumerkið Maidenform. sem
framleiðir undirfatnað. og einnig
einkasölu í Revkjavík og nágrenni á
vörum eftir þekktan. danskan hönnuð.
Bitte Kai Rand. Þá hefur Blái fuglinn
umboð f>TÍr breska skó, Gina. Boðið
er upp á náttkjóla úr silki og öðrum
efnum svo og létta kjóla. spari- og sam-
kyaémiskjóla.
Blái fuglinn verslar einnig með
brúðarkjóla mun verslunin þjóna
landsbyggðinni með þvi að senda
brúðarkjóla út á land.
Hönnuðir innréttinga Bláa fuglsins
eru Guðrún Margrét Ólafsdóttir og
Oddgeir Þórðarson innanhússarki-
tektar. Beyki sf. smíðaði innréttingar
og Kristinn Daníelsson sá um lýsingu.
Ökuleikni BFÖ-DV:
Enn vantar konur í
Nú er farið að síga á seinni hluta
Ökuleikni Bindindisfélags öku-
manna og DV. Nú er aðeins suðvest-
urhornið eftir, Selfoss, og svo verður
síðasta undankeppnin á bindindis-
mótinu í Galtalækjarskógi um
verslunarmannahelgina.
Keflavík var fyrsti staðurinn á
suðvesturhominu og fór keppnin þar
fram sl. mánudag. í ökuleikninni
mættu 12 keppendur til leiks, þar af
aðeins 2 konur. Enn virðast konur
vera hálfbangnar við að vera með
en forráðamenn ökuleikninnar
halda því fram að keppnin sé ekki
síður fyrir konur en karla og þar að
auki sé keppt í sérkarla- og kvenna-
riðlum.
í karlariðlinum voru það greini-
lega umferðarspurningamar sem
gerðu gæfumuninn. Aðeins örfáar
sekúndur skildu tvo efstu keppendur
að, færri en þau refsistig sem kepp-
andinn í öðru sæti fékk fyrir um-
ferðarspumingamar.
Það var Ómar Borgþórsson á Niss-
an Cherry sem sigraði með 153
rofsistig. Annar varð Kári Gunn-
laugsson á Toyota Corolla með 161
refsistig. Hann fékk 25 refsistig fyrir
umferðarspumingamar og missti
þar með af 1. sætinu.
í þriðja sæti varð Vilhjálmur
Ragnarsson á Volvo 245 með 194
ökuleiknina
Ómar Borgþórsson ók Nissan-bilnum sínum af miklu öryggi og tékk aöeins
2 villur í brautinni. Hann krækti sér í gullið með naumindum og verður
því fulltrúi Keflvikinga i úrslitum ökuleikninnar í haust og mun að sjálf-
sögðu reyna að krækja sér í Mazda 626 bilinn sem Bilaborg hf. mun gefa
fyrir villulausan akstur i úrslitunum.
refsistig og i þriðja sæti varð Birgir
R. Birgisson með einni sekúndu lak-
ari árangur eða 79 refsistig. Sama
spenna var uppi á teningnum í vngri
riðlinum. Þar munaði einungis einni
sekúndu á tveimur efstu keppendum.
Már Wardum rétt náði að merja sig-
ur með 99 refsistig en Sverrir Þ.
Magnússon varð að láta sér nægja
siltrið með 100 refsistig slétt. Þá
munaði aðeins 6 sekúndum á Sverri
og Eyjólfi Snædal Aðalsteinssyni
sem varð þriðji með 106 refsistig.
Að venju gaf reiðhjólaverslunin
Fálkinn hf. verðlaunin i reiðhjóla-
keppninni og bamablaðið Æskan
gaf öllum keppendum bækur að eig-
in vali en í ökuleikninni voru það
Keflavíkurverktakar, sem gáfú verð-
launin. og vilja forráðamenn öku-
leikninnar nota tækifærið til að færa
þessum fyrirtækjum þakkir fyrir
stuðninginn.
EG
Guölaug Þorkelsdóttir var lengi að ákveða hvort hún ætti að vera með en
sér varla eftir því nú að hafa verið með. Hún ók brautina léttilega og fékk
fyrir bragðiö gullið.
réfsistig. Vilhjálmur lenti í harðri
baráttu við Kristófer Þorgrímsson
er ók Mitsubishi sendibíl en Kristó-
fer fékk einni sekúndu lakari
árangur og varð því að láta sér
nægja 4. sætið.
I kvennariðli voru aðeins tveir
keppendur, eins og fyrr sagði, og
voru það Guðlaug Þorkelsdóttir á
Daihatsu Charade og Margrét
Gunnlaugsdóttir á Toyota Corolla
Liftback. Guðlaugu tókst að komast
upp fyrir Margréti og fékk því gullið
en Margrét varð að láta sér nægja
silfrið.
Keppnin á reiðhjólunum var mjög
jöfh og spennandi. Þá má geta þess
að sigurvegari í eldri riðlinum er nú
með 6. besta árangur yfir landið. Það
var hann Gísli Valgeir Guðmunds-
son. Hann fór brautina villulaust,
sá eini í keppninni í Keflavík. Hann
fékk 53 refsistig alls. Sigurður Óli
Kristjánsson varð annar með 78