Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 16
16 LAuIjARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. Nauðungaruppboð annað og síðasla á fasteigninni Nökkvavogi 40, kjalllara.þingl. eigandi Ágúst Kjartansson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. kl. 10.30. Uppþoðs- þeiðendur eru Baldur Guðlaugsson hrl., Utvegsþanki íslands, Iðnaðarbanki íslands hf. og Gjaldheimtan í Reykjavík. _______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hjarðarhaga 17, kjallara, þingl. eigandi Skipafélagið Víkur hf„ fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. kl. 16.15. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og tollstjórinn i Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Framnesvegi 61, 3.t.v„ þingl. eigandi Ástríður Þorsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl„ Landsbanki íslands, Þorfinnur Egilsson hdl„ Sigurður G. Guðjónsson hdl. og Skúli J. Pálmason hrl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð - á fasteigninni Hringbraut 84,1. hæð, þingl. eigandi Óli Kr. Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 15.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Grandavegi 39, 2. hæð, þingl. eigandi Sverrir Sigurðsson o.fl., fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 15.45. Uppboðsbeiðend- ur eru Gjaldheimtan í Reykjavik og Jón Ingólfsson hdl. ___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Fálkagötu 17, 2. t.h., þingl. eigandi Ellen E. Úlfarsdóttir Klin- ger, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 14.30. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik, Nauðungaruppboð á fasteigninni Dugguvogi 23, efstu hæð, þingl. eigandi Jóhann Þórir Jóns- son, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 10.45. Uppboðs- beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Hafsteinn Sigurðsson hrl„ Útvegsbanki Islands, Guðjón Ármann Jónsson hdl„ Othar Örn Petersen hrl„ Iðnlánasjóður, Jón Þóroddsson hdl„ Páll Arnór Pálsson, Guðríður Guð- mundsdóttir hdl„ Jón G. Briem hdl. og Ingólfur Friðjónsson hdl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Sörlaskjóli 32,1. hæð, þingl. eigandi Hjörtur Halldórss. og Aldís Sigurjónsd., fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki islands, Baldur Guð- laugsson hrl„ Árni Einarsson hdl„ Veðdeild Landsbanka íslands, Valgeir Pálsson hdl„ Klemens Eggertsson hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík og Ásgeir Thoroddsen hdl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hjarðarhaga 11,1 .h.t.h„ þingl. eigandi Magnús Ingimundars. og Brynhildur Ingvars, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild Lands- banka íslands. ______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík, Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Reykjavíkurvegi 29, 1. hæð, þingl. eigandi Magnea J. Matthíasdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjud. 16. sept. 1986 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Baldvin Jóns- son hrl. ______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Ásgarði 36, þingl. eigandi Jón Hermanns- son, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 14.00. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Kvistalandi 19, þingl. eigandi Elísabet Gunn- arsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Marklandi 10, 1.th„ þingl. eigandi Einar Friðriksson, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Ævar Guðmundsson hdl. __________ Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Met Kára á Tatna- jökli í heims' metabók Guinness Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Hið stórkostlega íslandsmet Kára Elísonar, 168 kíló í bekkpressu, sett í 1950 metra hæð uppi á Vatnajökli, fer líklegast í heimsmetabók Guinn- ess. För kraftlyftingamannanna frá Akureyri upp á jökulinn og löglegt lyftingamót - með þremur dómurum - er líka í sjálfu sér met. Geggjuð hugmynd sem á eftir að fljúga um heimsbyggðina. Afrek var unnið. Söguleg stund. Átta jeppum var ekið upp á Bárðarbungu, lóðin út og laggo - upp fóru þau í 8 stiga frosti og skafrenningi. Lyftingamennimir í stuttbuxum og treyjum, aðrir kapp- dúðaðir í jöklaklæði. Flosi átti hugmyndina „Eg fékk hugmyndina að mótinu í fyrravetur,“ segir Flosi Jónsson, einn jöklafaranna og formaður lyft- ingaráðs Akureyrar sem hélt mótið. Flosi er gullsmiður, 31 árs, uppalinn í Kópavogi en hefur búið á Akureyri síðastliðin tíu ár. Flestir hlógu í upp- hafi að hugmyndinni um jökla-mótið. Nú s jr enginn eftir því að hafa farið. „Mann tóku í fyrstu mjög dræmt í þetta allt saman, trúðu hreinlega ekki að þetta væri hægt. Að vísu datt mér fyrst í hug að halda kraft- lyftingamót einhvers staðar á há- lendinu, en sú hugmynd sló ekki í gegn. Þá datt mér einhver jökullinn í hug. Hofsjökull kom strax í hug- ann, hann er nær, en fyrst á annað borð var verið að fara út í þetta, hugsaði ég með mér; hvers vegna ekki stærsti jökull Evrópu, sjálfur Vatnajökull?“ Davíö Scheving sagði strax já En menn voru famir að hitna, bráðna fyrir jöklamótinu. Nú var bara að hefjast handa. „Ég hringdi í Davíð Scheving hjá Sól hf.,“ segir Flosi. „Honum fannst þetta auðvitað geggjuð hugmynd og ákvað strax að styrkja okkur. Hann gerði okkur þetta kleift." Nú, heljarmennin og herskarinn sem fylgdi þeim, jöklaflotinn mikli, lögðu upp á vit ævintýrisins frá íþróttahöllinni föstudagskvöldið 5. september, klukkan hálfsjö. Ekið var á þremur bílum upp Bárðardalinn og inn í Gæsavötn. Þar bættust fleiri í hópinn, menn eins og „Fjalla- Eyvindur", þekktur fjallagarpur og , Dóri Jó (Halldór Jóhannesson). Þeir kokgleyptu við ferðinni. Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Ymsir Gist í einkaskála Baldurs Sá sem stjómaði för var Baldur Sigurðsson, gamalreyndur fjalla- maður frá Akureyri, þekkir Vatna- jökul, ekki síst Bárðarbunguna, eins og lófann á sér. Án hans hefðu kraftajötnamir ekki lagt í hann. Að sjálfsögðu gistu allir í einkaskála Baldurs aðfaranótt afreksins. Flosi hefur orðið: „Við komum frekar seint í skálann, klukkan var að verða hálfeitt um nóttina og ferðahrollur í mannskapnum. Við lögðum allt kapp á að fá hita í skál- ann. Eftir það lögðumst við til svefns. En viti menn, klukkan fjögur um nóttina fengum við gesti. Tveir nátt- hrafnar bönkuðu upp á, læddust inn og lögðust til svefns á eldhúsgólfinu. Fyrir sváfu þá 20 manns í skálanum. En næturgestirnir voru tveir jeppa- menn sem höfðu heyrt af för okkar og drifið sig í að taka þátt í gillinu.“ Adrenaiínið farið að renna Eftir klukkutíma svefn brá nætur- gestunum heldur en ekki í brún. Vekjaraklukkan hringdi, klukkan var fimm að morgni. Ræs, allir upp. Nú var það sjálfur jökullinn. Ekkert hik. Spennan í hámarki, adrenalínið var farið að renna. Eldsprækir menn hituðu sér kakó og morgunkaffi. Allt var orðið klárt. Frá skálanum var ekið klukkan hálfsjö á þessum ógleymanlega laugardagsmorgni, 6. september. Mikill hugur var í mönnum. Sólin var farin að gægjast fram. Það gekk allt að óskum. En í 1400 metra hæð kom í ljós að einn kappann, Austin Gipsy, vantaði. Hann var dálítinn spöl fyrir neðan. Gamli Gipsyinn hafði misst bensíntankinn undan sér. Vanir menn sneru við og „græjuðu" tankinn. Áfram var haldið. Það tafði nokk- uð hvað kerrurnar undir lóðin og Svalann sukku í snjóinn, ekkert skrítið, farangur upp á eitt og hálft tonn. Þetta kom þó allt saman með kalda vatninu, eins og sagt er. Var að ganga í geggjaö veður „Um klukkan tíu um morguninn var farið að skafa dálítið og kortéri seinna leist okkur ekkert á blikuna. Var ferðin fyrir bí, spurðum við sjálfa okkur? Við vorum komnir í 1950 Jöklakötturinn Kári Elison hnýtir skóþveng sinn áöur en hann leggur til atlögu við lóöin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.