Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 13. SEPTJíMBER 1986. Fimmtíu ár frá því Pourqoui pas? fórst við Mýrar Fyrir fimmtíu árum lagði úr höfn í Reykjavík stórt og glæsilegt þrí- mastrað seglskip. Þetta var franska hafrannsóknarskipið Pourqoui pas? og var ferð þess heitið til Kaup- mannahafnar. Skipið hafði oft áður komið til Reykjavíkur og íslendingar höfðu mætur á því og leiðangurs- stjóra þess, hinum heimskunna vísindamanni og íslandsvini, dr. Jean Charcot. Fjörutíu manna áhöfn var á skip- inu: fimm vísindamenn, sjö yfirmenn og tuttugu og átta óbreyttir sjóliðar, allir fullir tilhlökkunar að halda heim að loknum vel heppnuðum leið- angri. En það átti ekki fyrir Pour- qoui pas? að liggja að ná landi í heimahöfn. Þessi ferð reyndist hinsta ferð þessa glæsta skips. Pourqoui pas? fórst við Mýrar í aftakaveðri sem gekk yfir landið þann 16. sept- ember 1936 og með því þrjátíu og níu menn, þar á meðal dr. Charcot. Aðeins einn úr áhöfninni, þriðji stýrimaður, Eugene Gonidec að nafni, þá tuttugu og níu ára gamall, komst af við illan leik í þessu sjó- slysi, einhverju því mesta sem orðið hefur við íslandsstrendur. Franskt herskip, Vauquelin, kom til Reykjavíkur í gær til að minnast þessa hryggilega atburðar. Allt gengur vel - hvers vegna ekki? Fréttin um hin hörmulegu örlög Pourqoui pas? vakti heimsathygli, enda skipið talið hið mesta fyrir- myndar rannsóknar- og leiðangurs- skip og dr. Charcot var heimskunnur vísindamaður. Hann var fæddur í París árið 1867 og hafði ungur hafið vísindastörf. Dr. Charcot hafði meðal annars fúndið strandlengjur sem enginn vissi um áður og hann komst lengra suður í Suðuríshafið á skipi en nokk- ur annar hafði komist. Pourqoui pas? var smíðað fyrir Charcot 1908 og réð hann nafhi þess en Pourqoui pas? þýðir nánast: hvers vegna ekki? Sagt er að það hafi ver- ið orðtak dr. Charcots við förunauta sína: Allt gengur vel - hvers vegna ekki? Dr. Charcot var af mörgum nefndur göfugasti vísindamaður heims og hann var öllum harmdauði sem hann þekktu, ekki síst fslendingum. Dr. Charcot var mikil fslandsvinur og heimsótti landið oft. Honum þótti vænt um ísland og íslendinga og þeim um hann. Dr. Charcot var með- al annars sæmdur fálkaorðunni hér og eftir dauða hans var honum reist- ur minnisvarði sem Ríkarður Jóns- son myndhöggvari gerði og stendur fyrir framan jarðfræðihús Háskól- ans. Óveðrið brestur á Pourqoui pas? var að koma úr rannsóknarleiðangri til Suður- Grænlands. Bilunar hafði orðið vart í hjálparvél skipsins og var danska varðskipið Hvidbjomen fengið til að draga það til Reykjavíkur þar sem gert var við ketil þess. Að viðgerð lokinni hélt skipið úr höfn og var veður hið besta. En blik- ur voru á lofti. Djúp lægð nálgaðist landið og spáð var sunnan hvass- viðri eða stormi um allt land þegar líða tæki á kvöldið. Óveðrið hitti Pourqoui pas? fyrir um sexleytið um daginn þann 15. september en þá var skipið nýlega komið fyrir Garðskaga. Var þá ákveðið að snúa við og halda aftur til Reykjavíkur og liggja þar í vari uns veðrinu slotaði. Fyrstu vísbendingar um þetta sorg- lega slys tóku að berast að morgni miðvikudagsins 16. september. Bónd- inn í Straumfirði, Guðjón Sigurðs- son, hafði farið ásamt átján ára gömlum fóstursyni sínum, Kristjáni Þórólfssyni, að huga að heysætum snemma mörguns og komu þeir þá auga á skip er sýnilega hafði strand- að á Hnokka, en svo er kallað kollótt sker framundan Straumfirði sem kemur upp á fjöru. Engin hjálp úr landi Guðjón gerði Slysavamafélaginu viðvart og sagði jafnframt að engri hjálp yrði viðkomið úr landi sakir brims. Það var klukkan hálfníu. Slysavamafélagið gerði þegar ráð- stafanir til þess að skip yrðu send á vettvang. Kom það því til leiðar að vélbáturinn Ægir frá Akranesi fór á staðinn með línubyssu og önnur björgunartæki. Jafnframt fóru á vettvang varðskipið Ægir og danska varðskipið Hvidbjomen. í fyrstu var ekki fullvíst hvaða skip þetta var en líkur bentu til þess að þetta væri Pourqoui pas? því það sást úr landi að um þrímastrað segl- skip var að ræða. Síðar fréttist að farið væri að reka úr skipinu, meðal annars björgunarhring með nafni þess. Vegna veðurofsans komust varð- skipin Ægir og Hvidbjornen ekki lengra en upp að Þormóðsskeri en upp úr hádeginu tókst vélbátnum Ægi að komast alveg upp að skips- flakinu. Gátu björgunarmenn þá gengið úr skugga um að enginn væri lifandi á flakinu. Var þá hafist handa við að ná líkum skipverja. Bjargað við illan leik Er Guðjón bóndi fór heim að bæ að tilkynna slysið varð Kristján, fóstursonur hans, eftir niðri við ströndina. Veitti hann þá athygli rekaldi sem bar að ströndinni. Sá hann fljótlega að þetta mundi vera landgangur skipsins og lá maður hálfur á honum. Án þess að hugsa um hættuna stökk Kristján í sjóinn og náði taki á hendi mannsins. Skall þá yfir ólag sem hreif þá báða með sér. Um síðir tókst svo Kristjáni að ná taki á klettanibbu og halda sér með- an fjaraði undan þeim. Stóð hann þá upp, þreif hálfineðvitundarlausan mannínn og gat komið honum fyrir á klettasyllu og kleif sjálfur upp á eftir. Skömmu síðar kom svo Guðjón á vettvang og hjálpuðust þeir að við að bera manninn upp brekkuna heim að bænum. Sú ferð varð skipbrots- manninum erfið, enda var hann allþjakaður. Var hlúð að honum eft- ir föngum í Straumfirði. Eftir nokkurn svefn hresstist maðurinn og vildi hann þá óðar fara niður í fjöru og sjá líkin er rekið hafði. Varð honum mjög um þá sjón. Gonidec stýrimaður var sá eini sem komst lífs af og því einn til frásagnar um þetta hörmulega slys og aðdrag- anda þess. Villst af leið Skerið Hnokki er um hálftíma róð- ur frá ströndinni. Kunnugir segja að ef Pourqoui pas? hefði rekið fram hjá þessu skeri hefði það komist alveg upp í landsteinana því innan við skerið var alldjúpt og hefði skipið þá komist á stórskipaleiðina inn að Straumfirði. Eins og fyrr var sagt hafði skipið snúið undan veðrinu en menn áttu erfitt með að átta sig á af hverju skipið var á þessum slóðum. Voru uppi um það getgátur meðal far- manna að skipverjar hefðu ekki Síðasta myndin sem tekin var af hafrannsóknarskipinu Pourqoui pas? Tekin er skipið lét úr höfn í Reykjavík þann 15..september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.