Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. Rokkspildan Þúsund sinn Hvergi í alheiminum skipast veður jafnskjótt í lofti og í tónlistarheimin- um. Menn eru eða eru ekki í hljóm- sveitum, hljómsveitir byrja og hætta eða byrja aldrei og hætta aldrei. Á ýmsu gengur. í þessum heimi eru veður vólynd eins og annars staðar í veröldinni. I júníbyrjun sagði Davíð Freyr Traustason, söngvari Raddarinnar, skilið við félaga sína. Það var skömmu eftir að Röddin hafði tekið upp sjónvarpsþáttinn sem sýndur var í gær. Hinir þrír halda merki Raddar- innar á lofti en Davíð leitaði á önnur mið. Hann hafði upp á gömlum skólabróður sínum úr sex ára bekk, Ingólfi Sigurðssyni. Ingólfur hafði leikið með hljómsveitunum Konsert og Lalla og ljósastauragenginu. Tví- menningarnir fengu fjóra aðra úr þessum bílskúrsgengjum til liðs við sig. Þar með var öllum undirbúningi lokið. Rauðir fletir litu dagsins ljós. Fjórir foringjar „Mig langaði einfaldlega til að spila öðruvísi músík,“ segir Davíð um úrsögn sína úr Röddinni. „Þetta var fyrst og fremst tónlistarágrein- ingur. Það voru fjórir foringjar í bandinu. Enginn gaf sig. Það besta í stöðunni var að hætta og snúa sér að öðru.“ Leið Davíðs lá í Rauða fleti. Hann syngur sem fyrr, Ingólfur lemur trommumar, á gítömm eru Kolbeinn Einarsson og Bragi Bragason, Berg- ur Mór Bernburg leikur á hljómborð og Hermann Jónsson blokkar bass- ann. Allir nema Davíð hafa fram að þessu æft í bílskúrum og látið það gott heita. „Þá vantaði herslumuninn til að koma einhveiju í framkvæmd," segir Davíð um meðspilara sína. Þeir sam- sinna því. „Dalli var sú vítamín- sprauta sem við þurftum. Við höfum fram að þessu einungis spilað ó skólaskemmtunum og álíka sam- komum. Rauðir fletir marka að því leyti nýtt upphaf fyrir okkur í tón- listinni. Þetta er annað og meira en við höfum fengist við áður.“ íslandsmet í byrjun Hljómsveitin hefur æft linnulítið frá því í júní. Fyrstu tónleikar sveit- arinnar voru á afmælishátíðinni á Amarhóli í ágúst, þeir stærstu í ís- landssögunni. „Þetta var góð byijun. Við lærðum mikið á þessum fyrsta konsert. Þama komum við auga á ýmislegt sem við erum að lagfæra núna.“ Fleiri tónleikar hafa fylgt í kjölfar- ið, á Borginni og í Bæjarbíói. Á þessum tónleikum hafa Rauðir fletir leikið með bandi Bjama Tryggva og Vunderfoolz. En fyrstu sjólfstæðu tónleikar sveitarinnar verða á Borg- inni á fimmtudaginn kemur. Er það ekki í fullmikið ráðist? Stórir verða stærri „Kannski, við ætlum a.m.k. að reyna. Flestar hljómsveitir sem em að byrja taka ekki þessa áhættu. Við emm búnir að reyna mikið að fá ungar hljómsveitir til að spila með okkur. Það hefur gengið afar illa.“ Davíð tekur af skarið. „Að þessu leyti finnst mér lítið að gerast í tón- list á íslandi. Þeir stóm verða stöðugt stærri á meðan flestir ungir tónlistarmenn halda að sér höndum. Þessu viljum við breyta. Hljómsveit- ir verða að hafa trú á því sem þær em að gera. Menn eiga að koma sér út úr bílskúmnum og skapa sín tæki- færi sjálfir." Eldmóður í ungum mönnum eða staðreynd málsins? Rauðir fletir ætla að minnsta kosti að gera eitthvað í málunum. Þeir sexmenningar fara í stúdíó strax um næstu helgi. Gróðafyrirtæki? „Það er tímabært að koma plötu út,“ segja þeir, fullir sjálfstrausts, þrátt fyrir að enn hafi ekki fundist útgefandi. „Útgefandi, já, við gefum plötuna út sjálfir ef ekki vill betur. Við komum vafalaust til með að tala við rótgrónu útgáfufyrirtækin hér og kanna viðbrögð. En þessa stund- ina erum við með hugann við óþekktan aðila sem hefur sýnt hljóm- sveitinni áhuga. Þessi aðili er spenntur fyrir að gefa plötuna út og standa veglega að útgáfunni.“ Þessi athafnamaður er að hugsa sig um. Hann ætlar að hlýða á tónleik- Rauðir fletir, að gítar og bassaleikara undanskildum. Sjálfstæðir tónleikar á Borginni á fimmudagskvöldið. ana á fimmtudagskvöldið og taka síðan ákvörðun. Það skildi þó ekki vera að einkaaðili sæi leiðir til að græða á íslenskri rokktónlist, þvert ofan í staðhæfingar hljómplötufyrir- tækjanna? Stöndumst kröfur Ákvörðunin hefur vitaskuld tölu- verða þýðingu fyrir hljómsveitina. Útgefendur liggja ekki á lausu. Eins og er vona hljómsveitarmeðlimir það besta og æfa fyrir tónleikana á Borg- inni. Þetta eru fyrstu sjálfstæðu tónleikar sveitarinnar. Hún ó nokk- uð undir að vel takist. Sexmenning- amir eru hvergi smeykir. „Það sem við erum að gera er að vissu leyti nýtt hér á landi,“ segir Davíð. „Okk- DV mynd Óskar ur finnst þetta efni standast þær kröfur sem markaðurinn gerir í dag. Aðalatriðið er 'að gefast ekki upp. Góður mólsháttur segir að gæfan fylgi stórhuga mönnum. Við trúum því.“ -ÞJV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.