Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986.
9
Áfangakerfið
festist í sessi
Síðustu ár hefur skólamenn grein á um hvort
betra sé að skipuleggja nám í framhaldsskólum
samkvæmt hefðbundnu bekkjakerfi eða áfanga-
kerfi.
Áfangakerfið var fyrst reynt í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð árið 1972 og hefur verið tekið
upp af flestum skólum sem síðan hafa verið
stofnaðir. Áfangakerfið þýðir að nemendur geta
í stórum dráttum ráðið námshraða og áherslum
í náminu. Á móti kemur að nemendur skiptast
ekki niður í hópa eða bekki sem fylgjast að í
náminu og verða fyrir vikið rótlausari í náminu.
Einnig hefur því verið haldið fram að nemend-
ur geti með útsjónarsemi komist léttar frá
náminu ef það lýtur áfangakerfi en ef þeim er
gert að ljúka náni hvers árs áður en áfram er
haldið. Almennt er viðurkennt að bekkjakerfið
veitir meira aðhald en það heftir um leið frelsi
til að skipuleggja námið eftir hæfileikum og
getu hvers og eins.
Sá kostur hefur m.a. orðið til þess að í vetur
á að reyna vísi að áfangakerfi á síðasta náms-
ári í nokkrum grunnskólanna. Á sama tíma er
rætt um að endurbæta áfangakerfi framhalds-
skólanna þannig kostir bekkjakerfisins komi
þar fram, í það minnsta í upphafi náms.
Við ræddum við þijá skólamenn um skipulag
náms í framhaldsskólunum og horfur á breyt-
ingum í náinni framtíð. Meiningar eru deildar
en hitt þó ljóst að á næstu árum á áfangakerfið
eftir að festast betur í sessi er verið hefur.
GK
Örnólfur Thorlacius.
Höldum fast
viö áfanga-
kerfiö
- segir Örnólfur Thorlacius, skólameistari MH
„Það hafa ekki komið fram alvarleg-
ar hugmyndir um að hafna áfanga-
kerfinu. Hins vegar erum við
skólamenn alltaf ósáttir við eitthvað,
sem hetur fer, annars breyttist ekk-
ert,“ sagði Örnólfur Thorlacius,
skólameistari Menntaskólans við
Hamrahlíð.
„Nú fyrir veturinn höfuð við aðeins
endurskoðað einstaka áfanga en það
er ekki um gagngera uppstokkun að
ræða.“
Áfangakerfið, sem nú er í stórum
dráttum notað í framhaldsskólum,
varð á sínum tíma til í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Þar var það
fyrst notað haustið 1972 um leið og
ákveðið var að leggja hefðbundið
bekkjakerfi niður. Þegar Hamrahlíð-
arskólinn var stofnaður fyrir 20 árum
var bekkjakerfið tekið upp að hætti
framhaldsskólanna sem fyrir voru.
Áfangakerfið var á sínum tíma
mjög umdeilt og talið að andstæðing-
unum boða hnignun menntunar í
landinu. Reynslan hefur þó orðið sú
að æ fleiri skólar hafa tekið það upp.
Fjölbrautaskólarnir hafa fylgt því
þrátt fyrir að efasemdarraddir um
ágæti þess hafi aldrei þagnað. Einn
af vanköntunum er að tengsl nem-
endanna við skólann verða sjaldan
jafnsterk og þegar þeim er skipað í
bekki. Hins vegar er námsefnið í
áfangakerfinu í höfuðdráttum það
sama og þegar náminu er skipt niður
eftir bekkjum.
„I upphafi var ramminn um
áfangakerfið sá sami og í bekkjakerf-
inu,“ sagði Örnólfur Thorlacius.
„Það sem vinnst við áfangakerfið
fyrir nemendur er meiri sveigjanleiki
og meiri möguleikar fyrir hvem og
einn að ráða námshraða sínum. Hins
vegar eru nemendur óneitanlega
meira einir á báti í náminu. Við höf-
um nú í haust tekið upp stuttan
námsáfanga með námsráðgjöf og
kynningu á skólanum til að auka
tengsl nemendanna við hann,“ sagði
Ömólfur Thorlacius. GK
einstakur jeppi, einn eig-
andi, glæsilegur bíll meö
fjölda aukahluta.
e Ramcharger 1978,
aðeins 60.000 km,
sjálfskiptur, vökvastýri o.fl.
Skipti á ódýrari.
sérflokki
GMC árg. 1978, yfirbyggður
hjá R. Valssyni, vönduð
klæðning, sjálfskiptur,
vökva- og veltistýri, rafdrifn-
ar rúður o.fl. Lítið ekinn, einn
eigandi - skipti á ódýrari.
Wagoneer 1978, 8 cyl., sjálf-
skiptur, vökvastýri. Mjög
fallegur bíll í góðu
Skipti á ódýrari.
Cherokee 1979, sjálfskiptur,
vökvastýri, jeppi á góðu
verði og kjörum eða skipti á
ódýrari bíl.
Opið í dag 1-5
CHRYSLER SK®DA úytiS?,
JÖFUR
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi