Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. 5 dv Fréttir Prdfkjörsfyrir- komulagið skiptir mig engu - segir Albert Guðmundsson Agnar Friöriksson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, og Hörður Einarsson stjómar- formaður á fundi með Bendjedid, forstjóra Air Algerie. Pílagrímaflugi Amarflugs lokið Emilo Castro er framkvæmdastjóri Alkirkjuráðsins. Hann er frá Uruguay. Emilo predikar í Dómkirkjunni á sunnudag á spænsku. Þórður Öm Sigurðsson túlkar. Guðsþjónustunni verður útvarpað. Kirkju- leiðtogar sækja okkur heim Æðsta stjóm Alkirkjuráðsins fundar hér á landi í næstu viku. Alls koma til landsins um sextíu manns frá öllum helstu kirkjudeildum nema rómversk- kaþólsku kirkjunni. Gestir koma úr öllum heimsálfum. Fundimir verða haldnir i Bústaðakirkju. Pétur Sigur- geirsson biskup, Ólafur Skúlason dómprófastur og sr. Auður Eir taka á móti gestum í upphafi fundar kl. 11 á mánudagsmorguninn. Gestimir verða viðstaddir guðsþjón- ustur í kirkjum Reykjavíkur og nágrennis á sunnudag. Þeir predika í sumum kirkjum, annars staðar flytja þeir ávörp og hitta safnaðarfólk. Alkirkjuráðið var stofiiað árið 1948 og var dr. Jakob Jónsson fúlltrúi ís- lensku kirkjunnar á stofhfundinum. Nú em um þijú hundrað kirkjudeildir i hundrað löndum innan ráðsins. Rúm- lega 400 milljónir manna teljast til þess. Ráðið starfar í mörgum deildum að hjálpar- og þróunarmálum, fræðslu- og safhaðarmálum og guðfræði- og kristniboðsmálum. Lokaathöfii fundarins verður í Langholtskirkju á föstudagskvöld. Fundarmenn taka virkan þátt í guðs- þjónustunni sem markast af ólíkum hefðum kirkjudeildanna. Hrafnkell A. Jónsson: „Hef ekki áhuga á að bæta við verkefna- listann“ „Ég er kjörgengur eins og allir 18 ára og eldri íslendingar. Ég gæti því alveg eins lent í framboði eins og flest- ir,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson, forseti bæjarstjómar og settur bæjarstjóri á Eskifirði, í samtali við DV, aðspurður hvort hann ætlaði í framboð fyrir Al- þýðuflokkinn í kjördæminu, en það hefur flogið fyrir að undanfömu. Hann vildi þó ekkert frekar gefa út á málið nema það að eins og staðan væri nú sæi hann enga ástæðu til að bæta við verkefrialista sinn. Hvort víumar hefðu verið bomar í hann varðandi framboð sagði hann að hann færi í framboð ef hann sjálfúr hefði áhuga. „Annars hafa framboðsmál lít> ið sem ekkert komið til tals hér á Eskifirði enn,“ sagði Hrafhkell. -KÞ „Ég fer galvaskur í þetta prófkjör enda skiptir það mig engu máh hvernig fyrirkomulag er á prófkjör- um. Ég hef aldrei skipt mér af þvi þótt þetta form sé ekki eftir mínu höfði,“ sagði Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra í samtah við DV. „Ég ætla ekki í framboð," sagði Katrín Fjeldsted, borgarstjómarfúll- trúi Sjálfetæðisflokksins, í samtali við DV. „Ég er alveg ákveðin í því að fara fram og ég opna kosningaskrifstofú núna eftir helgina," sagði Bessí Jó- hannsdóttir. Hún sagðist í prófkjöri fyrir sið- ustu alþingiskosningar hafa náð 12. sæti, verið önnur af tveimur konum Hann sagði að tveir aðrir mögu- leikar kæmu til greina fyrir sig: Að fara ekki í prófkjör eða að fara fram sjálfúr. Þar sem þeir tveir kostir væra ekki vænlegir nú hefði hann ákveðið að fara i þetta prófkjör Sjálf- stæðisflokksins. -KÞ Katrín sagði að það hefði verið orðað við sig að fara í prófkjör flokksins nú en hún hefði ekki áhuga. sem voru meðal þeirra tólf efetu. „Við konur stefnum að þvi að koma þremur konum í níu efetu sætin og ég hef trú á því að okkur takist það, að minnsta kosti fer ég galvösk í slaginn," sagði Bessí Jó- hannsdóttir. -KÞ Amarflug flutti alls 52 þúsund far- þega í pílagrímaflugi sínu fyrir ríkis- flugfélag Alsír. Var þetta stærsti samningur erlends flugfélags um slíka flutninga í Norður-Afríku þetta árið, að því er fram kemur í frétt frá félag- inu. Pílagrímaflugið hófst 20. júlí. Lauk því 7. september. Notaði Amarflug fimm DC-8-þotur, sem hver tók 250 farþega, i ferðum sínum milli Alsír og Jeddah í Saudi-Arabíu. Að auki flaug Amarflug á sama tíma umtalsvert áætlunarflug fyrir Air Al- gerie milli Alsír og Frakklands. Alls störfuðu 170 manns af fimmtán þjóðemum að þessu verkefni Arnar- flugs. Aðalbækistöðvar starfsmanna vora í Jeddah. Við lok verkefnisins sátu þeir Hörð- ur Einarsson, stjómarformaður Amarflugs, Agnar Friðriksson fram- kvæmdastjóri og Goði Sveinsson fund með forstjóra Air Algerie, Slimane Bendjedid, og öðrum ráðamönnum flugfélagsins. Segir í frétt Amarflugs að Alsírmenn hafi þar lýst yfir mikilli ánægju með alla framkvæmd verkefri- isins. -KMU Giæsisigiing TS MAXIM GORKI 25 000 BRT í sumaryl um Miðjarðarhafið 10. okt. - 27. okt London 10. október. Flogið beint til London og gist þar eina nótt á góðu hóteli. Miðjarðarhafið 11. október. Nú flogið til Genúa á Ítalíu þar sem stigið er um borð í glæsifleyið Maxim Gorky og siglt um Miðjarðarhafið í sól og sumaryl. Lúxusfley Maxim Gorícy er 25.000 brúttótonna lúxus- far- þegaskip og tekur 700 farþega sem þjónað er af um 450 manna áhöfn. í skipinu eru sundlaugar, veitinga- staðir, barir, dans- og diskósalir, kvikmyndasalir, íþróttaaðstaða með hvíldarbekkjum, skokkbrautir o.m.fl. Það þarf mörg orð til að lýsa glæsilegum mat og þjónustu, við sleppum því að sinni. Ævintýrasigling Skipið siglir frá Genúa til Pírus í Grikklandi, þaðan liggur leiðin til Kusadi í Tyrklandi, síðan til grísku eyjarinnar Rhodos sem óþarft er að kynna. Næst er komið við á Kýpur og þaðan farið til Alexandríu í Egyptalandi, haldið áfram til Möltu og Túnis og loks komið aftur til Genúa á Ítalíu þann 25. október. Skoðunarferðir. Á öllum viðkomustöðunum verður boðið upp á spennandi og skemmtilegar skoðunarferðir sem gefa fólki innsýn i menningu þessara landa og öllum helstu atburðum liðinna alda lýst á söguslóðum. Til dæmis undrum Egyptalands, stórbrotinni sögu og náttúrufegurð Grikklands, Tyrklands og Kýpur. Verð frá kr. 89.000. Innifalið í verðinu er flug og gisting í London, flug til Genúa og fimmtán daga sigling með fullu fæði um borð í lúxusfleyi. Þetta er ferð sem enginn sannur „siglingaunn- andiu má missa af. Bjóðum góða greiðsluskilmála. onMtK FERÐASKRIFSTOFA,HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 Umboö a Islandi fyrir opnon dinersclub 40joU international „Hef ekki áhuga“ - segir Katrín Fjeldsted „ÆUa gal- vósk fram segir Bessí Jóhannsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.