Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. 7 Eiturlyfín skelfa stjórn Gorbatsjovs Langt er síðan Sovétmenn lýstu eiturlyfjavandanum sem sérstöku vandamáli vestrænna ríkja. Eitur- fíkn ungmenna á Vesturlöndum var talin vísbending um hnignun í vestr- inu. Á sama tíma átti allt að vera í sómanum fyrir austan tjald. Nú þyk- ir hins vega sýnt að Sovétmenn hafi ekki veitt því athygli að þeir voru sjálfir með tímasprengju í bakgarð- iniun. í fyrra skar stjórn Gorbatsjovs upp herör gegn ofneyslu áfengis. í ár hefur baráttan beinst að eiturlyfjun- um sem enginn vissi að væru til vandræða í Sovétríkjunum. En nú hafa stjórnvöld hellt yfir almenning áróðri gegn eiturlyfjum. Stefnan er greinilega að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í hann. Öllum er ljóst að eiturlyfjavandinn er hverfandi í Sovétríkjunum hjá ógninni sem stafar af ótæpilegri áfengisdrykkju. Því er ekki laust við að mönnum þyki stjórnvöld fara of- fari í baráttunni. Þríraffjórumán hjálpar Það þykir sérkennilegt að í áróð- ursherferðinni er enginn hörgull á upplýsingum um vanhæfni heilbrigð- isyfirvalda til að fást við vandann. Heilbrigðisráðherra Sovétlýðveldis- ins Rússlands hefur lýst því yfir að 75% eiturlyfjaneytenda í því ríki, sem er það stærsta að Sovétríkjun- um, eigi enga möguleika á læknisað- stoð. Lögreglumaður, sem fæst við að uppræta eiturlyfjasölu, hefur einnig viðurkennt að lögreglan standi sig illa í að hefta dreifingu eitursins. Yfirlýsingar af þessu tagi benda til nýrra siða á stjórnarheimilinu í Moskvu. Frá því snemma á síðasta áratug hefur verið vitað að eiturlyf eru framleidd í Asíuríkjum Sovétríkj- anna til sölu innanlands. Ekkert var þá gert í málinu. Núna er hins vegar verið að rifja upp sögur írá þessum tíma í sovéskum blöðum. í Sovétríkjunum getur neysla eit- urlyfja varðað allt að 10 ára fangelsi. Ræktum eiturlyíja getur hins vegar kostað frelsissviptingu í tvö ár. Þrátt fyrir viðurlögin er opinberlega við- urkennt að 80% eiturlyfjanna á sovéska markaðnum séu upprunnin á samyrkjubúum. Það er víst langt síðan sovéskir bændur fundu út að það getur verið ábatasamt að rækta réttar plöntur á réttum stöðum. Enginn veit hve margir eiturlyfja- neytendur eru í Sovétríkjunum. Fyrir tveim árum var opinberlega viðurkennt að 2500 Sovétmenn ættu við þetta vandamál að stríða. Nýlega var þó haft eftir háttsettum manni í heilgrigðisþjónustunni að „eitur- lyfjaneytendum hefði fjölgað veru- lega á síðustu árum.“ Þögn um Afganistan Sögusagnir hafa lengi gengið um eiturlyfjaneyslu meðal sovéskra her- manna í Afganistan. Um þessar sögur hefur þó ríkt þögn í sovéskum fjölmiðlum á sama tíma og sögur um neysluna innanlands hafa komist í hámæli. Sovétfræðingar benda á að umræð- an um eiturlyfin á þessu ári sé hluti af breyttri stefnu stjónvalda í innan- ríkismálum yfirleitt. Æ oftar sjást ummæli þess efnis að Sovétkerfið hafi staðnað og hrífi ekki lengur með sér ungt fólk til baráttu fyrir sælu- ríkið. Eiturlyfin eru talin eitt af einkennum firringarinnar sem hijáir unga fólkið. Þetta eru sömu rökin og voru notuð til að skýra eiturlyfja- vandann á Vesturlöndum. Fyrsta skrefið í baráttunni við eit- urlyfin er að viðurkenna vandann. Stjórnvöld í Sovétríkjunum hafa þegar gert það. Hitt kann að reynast jafnerfitt að gera ungmennin frá- hverf eiturlyfjunum og að kenna þeim fullorðnu að drekka mjólk í stað vodka. The Economist/GK Landið helga - Egyptaland og Róm Ævintýraferð sem aldrei gleymist Sögustaðir Biblíunnar - Jerúsalem - Betlehem - Hebron - Betania - Olíu- fjallið - Jeríkó - Dauðahafið - Nasaret - Galíleuvatn - Tel Aviv. Ekið um bedúínabyggðir Sinaieyðimerkur - Kairo pýramídamir miklu - siglt á Níl - Suður-Egyptaland - Luxor - Kamak - Asswan - Ítalía - Róm- - Napolí - Pompei - Kapri. Vel skipulögð rólegheitaferð um fög- ur lönd og ógleymanlega sögustaði. - Ógleymanleg jól og áramót. Aðraz ferðir okkar: Kanaríeyjar, Enska ströndin, og Benidorm: Tenerife: Beint leicjuflug 18. sept. 2 vikur eða 3 Brottför alla laugardaga frá 1. nóv., vikur. blenskir fararstjórar. Fjöl- 10 daga, 17 daga og 30 daga ferðir.’ breyttar skemmti- og skoðunarferðir. Splunkunýir og glæsilegir gististaðir. íslenskir fararstjórar. Mallorca: Leiguflug 18. sept. 2, 3 eða 4 vikur, hótel með morgun- og kvöldmat kr. 29.840,- 2. okt. 3 eða 4 vikur. íslensk- ir fararstjórar. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Dagar í Amster- dam á heimleið. Fjölbreyttar skemmti- ferðir. og skoðunar- — HIKBBWa =SOLRRFLUG Vesturgötu 17, Reykjavík Símar 10661, 22100 og 15331 OPIÐ TIL KL. 41 DAG Leiðin liggur til okkar í verslunarmiðstöð vesturbæjar. /A A A A A A ■ A, TT V/SA =3 3U: _j l: ^ c u -j LL i— U ytj£2Clí)1> " fflÚTlil'lintti Hringbraut 121 Sími 10600 Innkaupastj órar athugið! Þríhjólin vinsælu, margar gerðir. Dúkkuvagnar, ásamt mjög miklu úrvali af leikföngum og gjafavörum. Pantið tímanlega fyrir jólin. INGVAR HELGASON HF. VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.