Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Page 19
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. 19 Pinochet send- ix lögxegluna á smáböxn Tómhentir standa þeir fyrir framan heimili sitt í Santa Rosa í Chile. Rene, sem er ellefu ára, og fjögurra ára gamall bróðir hans, Juan. Þeir eru þekktustu götuspilararnir í Santiago, unnu eitt sinn fyrstu verð- laun í samkeppni skemmtikrafta sem chileanska sjónvarpið efndi til og með peningunum, sem þeir fengu fyr- ir að spila á götum og torgum, framfleyttu þeir sjálfum sér og átta manna fjölskyldu sinni. Fólkið, sem fór um miðbæ Santiago, elskaði þá. Hið sama verður ekki sagt um lög- reglu Pinochets herforingja sem segir það stríða á móti reglum að fleiri en fimm safnist saman á götu. Þess vegna lagði lögreglan hald á trommur Juans og Rene og eyðilagði þær. „Nú eigum við enga möguleika á að vinna okkur inn pening,“ segir Rene dapur. Sjá drauga um allt Þeir bræður spiluðu af hjartans lyst alþýðutónlist sem íbúar Sant- iago þekktu og þótti vænt um. Þessir hæfileikaríku og geðþekku bræður og tónlist þeirra færðu gleði í annars yfirspennt umhverfið. Götutónleikar þeirra löðuðu að fjölda fólks sem safnaðist í kringum þá og naut tón- listarinnar og klappaði drengjunum lof í lófa. En það var einmitt það sem var svo hættulegt. Allavega finnst Pinochet það. í dag er það forboðið í Chile að standa saman á götu og hlýða á götu- leikarana. Það er með naumindum að fólk kemst upp með að stoppa á götu til að tala við náungann. Spennan er svo mikil í Chile í dag að lögreglan þolir ekki einu sinni jafnhættulausa samkomu og fólk að hlusta á börn spila músík. Pinochet og hans menn sjá drauga um allt. Hótað fangelsisvist Rene skelfur enn af hræðslu þegar hann rifjar upp þann dag sem lög- reglan tók þá bræður. „Við stóðum á torginu og spiluðum eins og venju- lega þegar ég heyrði mömmu hrópa: „Hlaupið þið. Lögreglan er að koma!“ En hvað átti ég að gera? Hvert átti ég að hlaupa? Ég var af- skaplega hræddur.“ Farið var með þá á næstu lögreglu- stöð og þar máttu þeir horfa á lögreglumennina rífa trommumar þeirra í tætlur. „Ég gleymi þessu aldrei," sagði Rene. „Einn lögreglu- mannanna, sem kallaður er Stóri Lögreglan svipti Aguiiar-fjölskylduna lifibrauði sinu. „Verðum við nú að stela?“ spyr fjölskyldufaðirinn. Juan er aðeins fjögurra ára. Þó hef- Bræðurnir Rene og Juan eru þekktir götuspilarar í Chile. En lögreglunni i ur hann tvisvar sinnum verið Chile er lítið um svoleiðis fólk gefið og handtók þá bræður. handtekinn af lögreglu Pinochets. Fótur, sagði við mig að ef hann næði mér aftur við að spila þá myndi hann setja bæði mig og mömmu í fangelsi." Rosa Aguilar, mamma Rene og Juan, sagði að Rene hefði brotnað saman og grátið eftir þennan atburð. I langan tíma á eftir ætlaði hann ekki að þora að ganga í skólann og sjái hann lögreglumann frýs hann af hræðslu, segir hún. Svarthvítt sjónvarp og dag- draumar Þetta var í annað skiptið sem þeir bræður lentu í lögreglunni. Fyrra skiptið var fyrir ári, en þá tók lög- reglan mildilega á þeim, sennilega vegna þess þá voru drengimir ný- búnir að vinna til verðlauna í sjónvarpskeppninni um vinsælasta skemmtikraftinn. En að vera þekktir hjálpaði Rene og Juan ekki í seinna skiptið. „Það hafði lögfræðingur samband við okkur og bauðst til að hjálpa en við höfðum ekki efni á því,“ sagði atvinnulaus faðir bræðr- anna. Fjölskyldan býr í Santa Rosa sem er eitt illræmdasta hverfið í Sant- iago. Heima eru fjögur börn og fjórir fullorðnir sem kúldrast saman í þremur pínulitlum herbergjum. Stof- an er máluð í bláu og þegar strákarn- ir hafa ekkert að gera sitja þeir þar og horfa á svarthvítt sjónvarp og láta sig dreyma um betri tíma. er hræddur við tvo litla stráka sem spila eins og englar. dagbladet/vaj Neyðumst til að stela Fjölskyldan kemst vart af án tekn- anna sem Juan og Rene öfluðu. Af þeim fjórum milljónum sem fylla flokk vinnufærra manna í Chile er um það bil fjórðungur atvinnulaus. Aguilar er einn þeirra. Hann fær tvö þúsund og fimm hundruð pesos í bætur aðra hverja viku sem er svipað og Juan og Rene þénuðu á einni helgi með götuspilinu. „I fyrra gátum við önglað saman tuttugu þúsund pesosum og fyrir þá peninga byggðum við þetta litla hús,“ sagði Aguilar. „En í dag er erfiðara að vera á götunum því lög- reglan er alltaf á eftir strákunum og reyndar öllum götusölum. Möguleikamir á að sjá fyrir sér og sínum eru næstum engir. Maður hrekst kannski út í þjófnað. Við er- um jú svöng." Svo sannarlega daprar framtíðar- horfur. Allt vegna þess að Pinochet SHflMTU Bfa/|/L Bílinn í salinn I Bíl b bilasalí 3 fl höí/in Lágmúla 7 (bakhús) Sími: 688888 800 ferm sýninearsalur og bíllinn er farinn. BMW 316 og 323 I árg. 1983. Nýja línan (rá BMW. eklnn 83 þús. milur. Stórglæsflegur lúxusvagn meö öllum búnaði. Alveg einstakur bíll sem tekið er eftir. tærslu. Sport árg. 1981 og 1984. Opið mánud.-föstud. frá kl. 9-19, laugardaga frá kl. 10-18. Simi 68 - 88 - 88 Subaru 4x4 sL árg. 1982, ektnn að- elns 40 þús. km. Eigum einnlg árg. 1983-1 Mazda RX-7 árg. 1980 og 1981. Mjög falleglr sportbilar. Golf GTI árg. 1982, ekinn 73 þús. Chevrolet Corvetta L-88 H! perfor- km, sóllúga, sportfelgur, litað gler, mance árg. 1977. Bfll sem hægt er 5 gfra. Skipti á ódýrari bil. að fara með myndlna af I Hollý. HÁRLAGNINGARFROÐA MEÐ HÁRNÆRINGU Það er þess virði að kanna hvað SHAMTU getur gert fyrir þitt hár. SHAMTU hárlagning- arfroða með næringu heldur hárlagningunni frjáislegri og léttri og fer vel með hárið. SHAMTU HÁRLAGNINGARFROÐA MEÐ HÁRNÆRINGU fyrir: SVenjulegt hár Feitt hór m Slitið hár |f; Einnig ein teg. ^ sérstaklega fyrir karlmenn. Undirstrikaðu glæsileik hársins með: (SHflMTU) Heildsala: Kaupsel Laugavegi 25 S: 27770 og 27740

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.