Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. 21 Gonidec ásamt lifgjafa sinum, Kristjáni Þórólfssyni. Til hægri er svo land- gangurinn sem Gonidec náði svo traustu taki á. Þar sem Pourqouis pas? bar að landi er einn hættulegasti strandstaður allrar strandlengju íslands. Skerjagarðurinn við Mýrar nær langt út frá ströndinni og þar hafa orðið mörg hörmuleg sjóslys. Faxaflói Hnold0^ Akrám iorgarfjör&ur Líkin í fjörunni. Fremst má sjá lík dr. Charcots. áttað sig rétt á vitum og því villst af leið. Þeir hefðu tekið Akranesvita fyrir Gróttuvita og skipsmenn því ekki vitað hvert þeir fóru. Frásögn Eugene Gonidec af at- burðum næturinnar renndi frekari stoðum undir þessa skoðun manna. Árekstur við Hnokka Gonidec var á vakt frá miðnætti til klukkan fjögur þessa örlagaríku nótt. Að vaktstöðu lokinni fór hann undir þiljur og hugðist leggja sig. En lætin í veðrinu komu í veg fyrir allan svefn og Gonidec fór aftur upp á stjórnpall. Skipherra og dr. Charc- ot voru einnig á stjómpalli. Stormur- inn var óskaplegur og fékkst ekki við neitt ráðið. Samkvæmt frásögn þriðja stýrimanns mun skipið hafa villst af leið og rekið stöðugt undan vindi. Skömmu eftir að Gonidec kom aft- ur upp á stjórnpall var hann sendur undir þiljur eftir sjókorti. Hann telur að það hafi verið um klukkan kortér gengin í sex sem hann kom aftur upp og í þeim svifum steytti skipið á skeri. Sáu þeir af stjórnpallinum að þeir vom komnir inn í mikinn skerja- klasa. Leki kom að skipinu og vél þess stöðvaðist. Ætluðu skipverjar þá að fara að nota dælurnar en þær gengu ekki. Vom þá undin upp segl, stór- segl og fokka. En nú sentist skipið í öldurótinu, svo að segja af einu sker- inu á annað, uns það steytti á skerinu Hnokka, nú af meira afli en nokkm sinni fyrr. Brotnaði þá framstefni Pourqoui pas? svo mjög að sýnt var að ferð þess yrði ekki lengri. Taldi stýrimaður að klukkuna hefði þá vantað um það bil kortér í sex. Bjargi sér hver sem best hann getur Skipveijar höfðu þá allir fengið björgunarbelti eða bjarghring og sumir höfðu flotholt á handleggjun- um. Var strax hafist handa við að leysa björgunarbátana en fljótlega kom í ljós að ekkert gagn yrði í þeim. Sumum hvolfdi en aðrir brotnuðu strax eða sukku. Það síðasta sem Gonidec heyrði til skipherrans var að hann sagði skip- verjum að hver yrði að reyna að bjarga sér sem best hann gæti. Sá hann jafnframt hvar dr. Charcot gekk undir þiljur til káetu sinnar til að leysa úr haldi vin sinn, mávinn. Mávur þessi hafði komið fljúgandi til þeirra þegar skipið var við Græn- land og hafði dr. Charcot á honum mikið dálæti og kallaði hann aldrei annað en vin sinn. En þegar svona var komið bjargaði hann mávinum upp á þiljur svo hann gæti fleygur farið ferða sinna þegar skipverjar vom komnir í heljargreip- ar. Ötrúleg björgun Gonidec hafði í fyrstu ætlað um borð í einn stóm bátanna en hann slóst utan í skipið og brotnaði í spón. Gekk hvert ólagið af öðm yfir skipið og hreif mennina útbyrðis hvem á fætur öðmm. Eugene Gonidec tók einnig frá borði og kastaði hrotsjór honum nokkuð frá skipinu. Náði hann að komast í litla doríu en henni hvolfdi fljótlega. Synti hann þá stuttan spöl og náði í bjálka en skömmu síðar sá hann landgöngubrú skipsins á floti og náði í hana. Greip hann traustu taki um bnina og hélt _________________________________-c því enn er honum var bjargað í lend- ingu í Straumfirði. Þetta var ótrúleg björgun, svo ekki sé meira sagt, og sögðu kunnugir í Straumfirði og þar í grennd að það hefði gengið kraftaverki næst að maðurinn skyldi komast lifandi í land. i Brekkan þakin líkum í Morgunblaðinu þann átjánda september 1936 er að finna eftirfar- andi frásögn Árna Óla blaðamanns af aðkomunni í Straumfirði. „Öll lík, en þau em 22, sem fundist höfðu er hér var komið við sögu, hafa verið flutt að Straumfirði. Þau hafa verið lögð hlið við hlið í túnbrekku skammt frá bænum. Er lík dr. Charcots í miðju. Hann er klædd- ur bláum ferðafötum með svart hálsbindi, á gulum leðurstígvjelum. Flest em líkin alklædd. En af klæðnaði nokkurra verður sjeð, að mennirnir hafa klætt sig í flaustri. Sum em líkin berfætt. Lík skipslæknisins Parat er með óbrotin gleraugu. Ef nokkur líkanna væm ekki með sár á höfði, er líkast því, sem þarna séu menn sofandi, því ró og friður er í svip þeirra, en engin angist. Um alla strandlengjuna á Álftanesi og í Straumfirði em nú haugar af rekaldi. Þar em stór flök af skipinu, bátabrak og bjálkar. Innan um þetta eru brotin hús- gögn, skápar og skrifborð, skúffur og hillur, bjarghringir og fatnaður. Þar eru brot af allskonar vísindaá- höldum og smáhlutir ýmsir, kerti og brúður, eða annað smálegt, sem skip- verjar hafa haft sér til gamans.“ Nötraði af geðshræringu í Morgunblaðinu þann nítjánda er svo að finna frásögn Árna óla af því er fundum Gonidec og franska ræðis- mannsins bar fyrst saman eftir slysið. „Hann var í fötum sem honum höfðu verið lánuð af bænum, og voru honum alltof stór, því að hann er lágur maður, en hnellinn að sjá og herðabreiður. Berhöfðaður var hann, ’ og flaksaðist kolsvart hárið í storm- inum. Þegar hann sá franska ræðismann- inn fór hann að hágráta og nötraði af ekka og geðshræringu. Köfnuðu fyrstu orðin í hálsi hans, en hann jafnaði sig þó furðu fljótt og fór að segja frá slysinu í stórum dráttum. En hvað eftir annað rann út í fyrir honum og varð lítið sam- hengi í frásögninni. Var það síst furða, þar sem hann var svo að segja nýsloppinn úr hinum ægilegasta lífs- háska og hafði misst alla félaga sína, 39 talsins, í einu vetfangi. Var auð- sjeð og auðheyrt að hann var alls ekki með sjálfum sér.“ Allt fólkið í Straumfirði hafði tekiðv' ástfóstri við Gonidec og hann ekki síður við það. Þetta mátti glöggt sjá er hann kvaddi. Hann gat ekki látið tilfinningar sínar í ljós með orðum en hann faðmaði hvern mann grát- andi að sér og kyssti á báðar kinnar. Gengnar fjörur Næstu dagana eftir strandið voru fjörur gengnar á Mýrum en ekki fiindust fleiri lík. Franski sendiherr- ann hafði gefið fyrirmæli um að allt sem ræki úr skipinu skyldi hirt og það sem heillegt reyndist af vísindaá- höldum og persónulega muni skip- verja skyldi senda til Frakklands. Annað máttu bændur hirða og var ákveðið að hafa ekki uppboð á ‘ strandgóssinu. Til stóð að vélbáturinn Ægir tæki lík mannanna og flytti þau út fyrir skerjagarðinn þar sem Hvidhjornen tæki við þeim og flytti þau til Reykja- víkur. Vegna veðurs reyndist það ekki framkvæmanlegt og var afráðið að Ægir sigldi með lík skipverja til Akraness. Ekki reyndist heldur unnt að færa líkin yfir í Hvidbjornen á Akranesi og varð úr að bæði vélbáturinn og varðskipið sigldu í var inn á Viðeyj- arsund og voru líkin færð yfir í . Hvidbjomen þar og stefnan síðan ' tekin á Reykjavík. Franska stjómin sendi herskipið L’Audacieux og flutningaskipið L’Aude til þess að sækja lík skip- verja af Pourqoui pas? Áður en líkin vom flutt um borð fór fram íjölmenn minningarathöfii í Landakotskirkju. -VAJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.