Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. 9 Ferðamál Ferðaskilríkin á öraggum stað - Þú getur orðið fyrir raeiriháttar óþægindum og vandræðum á ferðalagi ef þú annaðhvort týnir passanum þín- um eða ef honum er stolið frá þér. Sömuleiðis er ekkert grín að lenda í því að týna eða láta stela frá sér ferð- afé sínu. Þess vegna hafa fyrirhyggjus- amir ferðalangar hannað öryggisvasa þar sem hægt er að geyma ferðaskil- ríki og fjármuni sína á öruggan hátt. Ýmsar gerðir eru til af svona örygg- isvösum, einnig eins konar öryggis- belti. Við rákumst á uppskrift að vasa sem hafður er á belti og annan sem hafður er á leggnum undir buxnaskál- minni. Efnið getur verið annaðhvort rú- skinn eða annað sterklegt efrii, t.d. gallabuxnaefiú. Nauðsynlegt er að verða sér úti um smellur og töng til þess að festa smellumar og á leggvas- anum eru þrír rennilásar. í fljótu bragði virðist einfaldara að útbúa vasann sem fer á beltið og sauma hann hreinlega við belti sem til er. -A.BJ. Verslað handa konunni eriendis Öryggisvasinn á beltinu. Vasinn verður að vera sniðinn eftir stærðinni á passan- um. Leggvasinn virðist flóknari í tilbúningi en beltisvasinn en er örugglega ekkl siður öruggur. Hvað áttu að koma með heim handa konunni þinni þegar þú kemur úr við- skiptaferð frá útlöndum? Þeir sem fara oft til útlanda eru flest- ir hættir að gera þar einhver stórinn- kaup. Nú fæst hér á landi orðið flest það sem er til í útlöndunum og mikil verslun ferðamanna heyrir sögunni til. Samt er það nú alltaf svo að fólk kemur heim með einhverja smáhluti til að gleðja sína nánustu og eru menn á viðskiptaferðalagi engin undantekn- ing þar frá. En það sem viðskiptamað- urinn kemur með heim handa konunni sinni getur verið mjög þýðingarmikið atriði ferðarinnar því eiginkonan, sem ekki hefúr fengið að koma með, bíður spennt eftir gjöfinni sem hennar heitt- elskaði færir henni. Því er mjög þýðingarmikið að vanda valið. Það sem engin kona þolir eru sérs- takir minjagripir frá viðkomandi landi eða þjóðbúningar og þjóðlegir skart- gripir. flmvötn frá framandi löndum og framleiðendum eru einnig á bann- listanum. Vilji eiginmaðurinn kaupa ilmvatn þá skal hann ekki taka neina sjensa í þeim efnum heldur kaupa dýr, þekkt, frönsk merki og ekkert annað. Ilm- vatnið verður líka að vera ekta, ekki „toilette" eða „cologne", annað gæti verið móðgandi. Maðurinn verður að gera sér það ljóst að konan sem hefur beðið hans getur hafa gert sér ótrúle- gustu hugmyndir um hann í útlöndum og er því oft mjög viðkvæm fyrir öllu sem hann snertir er hann kemur til baka. Allt ekta og fínt er mjög æskilegt og verður að sjást að eytt hafi verið talsverðri summu í gjöfina. Leðurvör- ur, eða til dæmis silkiblússa, eða silkiklútur frá einhverju fínu merki, er því mjög heppilegt í þessum til- gangi. Fallegur silki- eða bómullar- undirfatnaður getur gert undur fyrir hjónabandið, einnig baðolía sem verð- ur að vera frá góðum framleiðanda. En þeir sem fara mjög títt til útlanda og hafa gert það í mörg ár geta lent í vandræðum. Hver einasta eiginkona verður ánægð með að fá eitthvað reglulega gott matarkyns. Eins og alls kyns gimilega osta, ljúffenga kæfú í fallegum leirkrukkum, líbanskar hnetur og grískt hunang. Konfekt og sjaldgæfir ávextir eru einnig tilvaldir. Konur eru flestar fyrir alls kyns blóm og plöntur og væri sniðugt að koma með sjaldgæf fræ til baka, það er eitt- hvað rómantískt við framandi plöntu sem til er orðin með þessari leið. Umfram allt, ekki minjagripi og vandið valið. -Ró.G. Samkvæmisdansar, suðux- ameriskir dans- ar, bamadansar (yngst 4 áira), free-style, diskó jass. Tangó-námskeið (argentínskur og nú- tíma), gömludansanám skeið. Innritun daglega í Reykjavík: 20345, 74444 og 38126 kl. 13-19. Keflavik, Njarðvik, "Grindavik, Garður og Sandgerði: 92-8249 kl. 18-20. D ANSSKOiX ASTVALOSSON AR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.