Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986. Nauðungaruppboð á fasteigninni Smiðshöfða 6, þingl. eigandi Rafafl s.v.f., fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík, Sigriður Thorlacius hdl. og Iðnlánasjóður. Borgarfógetaembaettið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Kvistalandi 3, þingl. eigandi Ámi Gíslason, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 15.15. Uppboðsbeiðend- ur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Landsbanki islands og Guðmundur Óli Guðmundsson hdl. ____________Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Starmýri 2, búðarpláss, þingl. eigandi Ella Halldórsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. __________________Borgarfógetaembaettið i Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Funafold 35, þingl. eigandi Halldór J. Ólafsson, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólafur Axelsson hrl. og Veðdeild Landsbanka is- lands. Borgarfógetaembaettið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hverafold 118, þingl. eigandi Sveinn Kjartansson, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept 1986 kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur eru Ari ísberg hdl., Ólafur Gústafsson hri., Jón Ólafsson hrl., Jón Eiríksson hdl., Gísli Baldur Garðarsson hrl„ Ámi Guðjónsson hrl„ Veðdeild Landsbanka íslands, Skúli Bjarnason hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Borgarfógetaembaettið í Reykjavík. BRAUTARHOLTI 33 - SIMI: 6212 40 MMC Pajero SW árg. 1984, hvítur, VW Jetta CL árg. 1982, rauð- ekinn 60 þús. km, verð 760.000,- sans., ekinn 63 þús. km. Verð 220.000,- VW Golf C árg. 1984, blásans., MMC L 200 pallbill árg. 1985, dís- ekinn 30 þús. km. Verð 340.000,- II, blásans., ekinn 50 þús. km. Verð 560.000,- Subaru station árg. 1984, grá- MMC Galant GLS árg. 1985, sans., ekinn 36 þús. km. Verð brúnsans., ekinn 32 þús. km. Verð 450.000,- 500.000,- G0TT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á STAÐNUM TÖLVUVÆDD ÞJÓNUSTA RÚMGÓÐUR SÝNINGARSALUR — REYNDIR SÖLUMENN — OPIÐ: Mánud.-föstud. kl. 9.00-18.30. Laugard. kl. 10.00-17.00. Ferðamál Ódýrtflug í Þýskalandi Þeir sem verða á ferðinni í Þýska- landi, en hyggjast ferðast til annarra staða, ættu að athuga þann möguleika að ferðast með flugi frekar en með lest. Ýmis góð tilboð verða á næstunni. Fyrst má geta miða sem kallast Flieg & Spar-Tarif og hægt er að fá á hinum ýmsu flugleiðum og er verðið um helmingi lægra en verð venjulegs flug- miða. Sé keyptur þannig miði verður að fastsetja heimkomudag líka og vera minnst viku í ferðinni. Flug til London fram og til baka geturðu til dæmis fengið fyrir 6000-7000 krónur. Svipaður miði er Super-Flieg & Spar-Tarif en þá verður að bóka farið minnst viku fyrir brottför. Þessi miði er um 60 prósent ódýrari en venjuleg- ur flugmiði. Henti þér að ferðast bara um helgi þá er Wochenendtarif-miðinn sniðug- ur fyrir þig. Þá er bara hægt að fá flug á laugardögum og sunnudögum og sparast um helmingur miðað við venjulegt verð. Leiti hugurinn á suðlægar slóðir má alltaf athuga með „ferðir á síðustu stundu,,. Þá geturðu kannski fengið vikuferð til Mallorca með hóteli og morgunmat fyrir 10-12 þúsund krón- ur. Sértu i Munchen þá hringdu í 089/288329, í Dusseldorf 0211/4216431, í Hamborg 040/6523648 og í Köln 0221/505075. -Ró.G. Fóistu eitthvað 1 í sumarfríinu? Leifur Þorsteinsson liffræðingur: „Já, ég fór heilmikið. Gekk inn á fjöll en lengstu ferðimar vom í Þórs- mörk og Landmannalaugar. Ég reyni að ferðast eins mikið um landið og ég mögulega get. Af stöðum hérlendis held ég einna mest upp á Landmanna- laugar, þangað er alltaf skemmtilegt að koma, sérstaklega í góðu veðri. í vor ferðaðist ég í 3 vikur um Norð- urlönd starfs míns vegna en mér finnst alltaf sérstaklega gaman að vera í Suður-Noregi. Mér leiðast borgir og bæir, stórborgir finnast mér hræðileg- ar, ekki síst ef ég þarf að keyra þar Ása Hjartardóttir húsmóðir: „Nei, ég hef ekkert farið í sumar. I fyrra fór ég í stuttar ferðir út úr bæn- um um helgar. Annars hef ég ferðast heilmikið hringinn í kringum um landið. Einnig hef ég ferðast mikið erlendis en síðast var ég í Kanada og var það alveg stórkostlegt. Yfirleitt hef ég ekki farið í langar ferðir til útlanda heldur 10-15 daga sem hefur verið stórfínt. Næst langar mig að fara enn meira um ísland og skoða þá staði eins og Dimmuborgir og Mývatn. Það eru svo fallegir staðir víða á landinu sem er alveg yndislegt að koma á og skoða “ Ferðapunktar.. Kajaka- ferðir Ævintýramenn margir hverjir mundu örugglega glaðir vilja komast í kajakaferð um Mexíkóflóa. Skipu- lagðar ferðir hefjast 4. janúar 1987 frá La Paz sem er um 1.000 kílómetra sunnan við San Diego. Allar nánari upplýsingar um ferð- imar sem og um aðrar kajakaferðir fást hjá: Baja Expeditions Box 3725 San Diego Califomia 92103 U.S.A. -Ró.G. Wimble- don næsta sumar Það er ekki of snemmt að fara að huga að miðum á næsta Wimbledon tennismót sem verður 22. júní til 5. júlí 1987. Eftirspum eftir miðum á mótið er alltaf gífurleg og er sannar- lega ekki ráð nema i tíma sé tekið. Þeir sem vilja tryggja sér miða ættu að skrifa til: The England Secretary All-England Lawn Tennis and Croquet Club Church Road Wimbledon London SW19 5AE England Miðaverð er 900-1.800 krónur, það fer allt eftir leikjum. -Ró.G. í IÚtU til Ind- lands Þeir sem hafa ekki enn tekið sum- arfríið sitt en geta séð af sjö vikum á næstunni ættu kannski að athuga með rútuferð til Indlands. Farið verður frá London en viðkomustaðir verða Frakkland, Italía, Júgóslavía, Grikk- land, Tyrkland, Iran, Pakistan og endað á Indlandi. Ferðin tekur sjö vikur og er terðast í fullkomnum rútum með góðri að- stöðu, eldhúsi og svo framvegis. I hverri rútu er gert ráð fyrir 18 manns en túrinn kostar um 40.000 krónur. Farið verður í þessar ferðir fram í desember en á sumrin er allt of heitt til rútuferða á þessar slóðir og þykja næstkomandi mánuðir ákjósanlegir til fararinnar. Nánari upplýsingar: Travel Overland Tours Barerstrasse 90 8000 Munchen 40 Deutschland. -Ró.G.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.