Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER T986. 15 Eftir að hann heimsótti Öræfinga sumarið 1925 sannfærðist hann um að úrræði þeirra í lífsbaráttunni sönnuðu þessa kenningu. Honum þótti líka einsýnt að Islendingar yndu aldrei til langframa í þéttbýli. „Óbyggt víðlendið myndi kalla á þá, sem framtakssamastir væru og frá- bitnastir kösinni“ skrifaði hann. Niður með brýrnar Þetta eru skoðanir sem hátt bar í nýrómantískum bókmenntum þessa tíma. Þar má til nefna Gróður jarðar eftir Knut Hamsun sem þá naut mik- illa vinsælda á íslandi. Halldór Laxness og Guðmundur Hagalín urðu síðar hvor með sínum hætti til að andæfa þessu sjónarmiði en það er önnur saga. Sigurður mátti þola nokkrar háðs- glósur vegna dýrkunar sinnar á Öræfingunum sem hopuðu ekki „á hæli þó að Skeiðará brjóti landið neðra og jökullinn búi yfir ógnum sínum bak við fellin“. Ragnar Ein- arsson Kvaran taldi ráðlegast, ef íylgja ætti skoðunum Sigurðar, að flytja „dálítinn jökulstúf úr Vatna- jökli og skella honum niður þar, sem mætast Ámes- og Rangárvallasýsla og sprengja upp brýrnar á Ölvusá og Þjórsá". Ungir menn og gamlir Ragnar taldi sig mæla fyrir munn „hinna órómantískari yngri manna“. Sigurður átti um líkt leyti einnig í ritdeilu við fulltrúa hinna gömlu raunsæismanna, Einar H. Kvaran, föður Ragnars. Þannig er fyrir það fyrsta handhægt að leita í skrifum Sigurðar að hinum og þessum straumhvörfum í menningu Islend- inga. Þar sést einnig hitt að Sigurður var mikill ritdeilumeistari ó blóma- tíma slíkra bókmennta árin eftir fyrra stríð. Sigurður hafði ó námsárum sínum fengist nokkuð við skáldskap og birt brot af þeim verkum í tímaritum. Árið 1919 tók hann það helsta af skáldskap sínum saman í bók sem hann nefndi Fornar ástir. Þetta eru fjórar smásögur og Hel, langt ljóð í óbundnu máli. Raunar er einnig fellt inn í smásöguna Lognöldur órímað ljóð. Sögu þessa samdi hann á órun- um 1909 til 1910. Margir hafa það fyrir satt að þetta sé fyrsta ljóðið á íslensku sem rýfur hefðina í íslenskri ljóðagerð. Að öðru leyti svífur andi nýrómantíkurinnar yfir vötnunum í Fomum ástum þótt hún vísi fram til módemismans. Evrópumenning Fomar ástir urðu að vonum um- Sigurður Nordal. deilt verk. Gamall bændahöfðingi, Jón Jónsson frá Sleðbrjót, sagði t.d. að sér þætti það sem Sigurður setti þarna ó blað „óeðlilegt islenskum norrænum anda“. Bæði kom form og efni í Hel mönn- um ókunnuglega fyrir sjónir. Formið eitt nægði til að gera menn forviða. Við það bættist að þarna birtust í fyrsta sinn hugmyndir tilvistarspek- innar sem tekin var að heilla unga menn í Evrópu. Sigurður sagði síðar um Halldór Laxness eftir að hann sendi frá sér Vefarann frá Kasmír að hann væri kominn „á grenjandi túr í Evrópumenningu". Þegar Forn- ar ástir urðu til var líkt ástatt fyrir Sigurði. Eftir að Sigurður kom heim gaf hann sig ekki að skáldskap af al- vöru. Hann einbeitti sér að fræðun- um - gaf út og skýrði forna texta og vann úr efniviðnum sem hann viðaði að sér á námsárunum. Árið 1920 sendi hann loks frá sér rit á íslensku um Snorra Sturluson. Þar koma fram skýr einkenni á sagnfræði Sigurðar. Innlifun Hann er fullfær í stafkrókafræði en aðalsmerki rannsóknarinnar er þó viðleitni hans til að lifa sig inn í hugarheim Snorra. Þetta höfðu landsmenn ekki séð til fræðimanna áður enda Sigurður undir áhrifum frá nýjustu tísku i Evrópu. I þetta sinn voru landsmenn þó með ó nót- unum og enginn varð til að andmæla verkinu. Síðar, þegar hann skrifaði íslenska menningu, beitti hann þessari innlif- unaraðferð af mikilli list. Hann hafði mikla andúð á staðreyndastagli en þeim mun meiri hug á að gæða sög- una lífi. „Bókin er hugleiðing um vanda þess og vegsemd að vera ís- lendingur nú á dögum," sagði hann um íslenska menningu, „studd við þá þekkingu á fortíð þjóðarinnar, sem höfundurinn hefur getað aflað sér og talið mestu varða.“ Handritin heim Sigurður var mjög afkastamikill höfundur, einkum á fyrri hluta ævinnar. Eftir að hann lét af prófess- orsembætti árið 1951 til að verða sendiherra í Kaupmannahöfn dró mjög úr ritstörfum hans. Hann varð sendiherra beinlínis til að vinna að lausn handritamálsins. Það gekk á ýmsu. Mólið reyndist Sigurði ei;fitt en hann lagði þó drjúgan hlut að lausninni sem endanlega fannst. Hann lifði kyrrlátu lífi síðustu ár ævinnar og andaðist 21. september árið 1974. GK HjólasCólaÐ-ffí 'OC. í LAUGARDALSHÖLL f \Ql/ LJLJ Sunnudaginn 14. september efnir Sjálfsbjörg í annað skipti til hjólastólaralls í Laugardalshöll. Þar keppa þekktir skemmtikraftar, arkitektar, sveitastjórnarmenn og hjólastólanotendur. Keppnin verður sett kl. 14:00. Á milli umferða verða skemmtiatriði þar sem fram koma hljómsveitin Þokkabót, Sigrún Hjálmtýsdóttir, söngkona, Anna Guðný Guðmundsdóttir, undirleikari, sýningahópur frá Karatefélagi Reykjavíkur, Bjössi Bolla og LEYNINÚMER. Aðgangurókeypis. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.