Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Side 5
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
5
Fréttir
Þrettán ára drengur í Garðinum fær skattheimtuseðil í fjórða sinn:
Skuldin orðin 316 þúsund
Þrettán ára drengur úr Garðinum á
í miklum erfiðleikum við skattayfir-
völd sem segja hann skulda 316.097
krónur. Hefur hann staðið í stappi
vegna þessa máls í hátt á annað ár
en þrátt fyrir loforð yfirvalda um að
kippa málinu í lag halda álagningars-
eðlamir áfram að koma inn um
bréfalúguna.
Forsaga þessa máls er sú að í janúar
á síðasta ári komst stráksi á þann ald-
ur að fá úthlutað nafnnúmeri.
Skömmu síðar barst honum skatt-
heimtuseðill þar sem hann er sagður
skulda 221.699 í opinber gjöld eins og
DV sagði frá á sínum tíma. Faðir hans
hafði samband við bæjarfógetann í
Vestmannaeyjum sem sent hafði
álagningarseðilinn. Kom í ljós að
drengnum hafði verið úthlutað nafii-
númeri nýlátins manns og af þvi
stafaði ruglingurinn. Var lofað að
kippa þessu í lag.
En í júlí í fyrra endurtók sig sama
sagan nema hvað skuldin hafði hækk-
að í 251.341. Enn hafði faðirinn
samband við bæjarfógetann og enn var
lofað að kippa þessu í lag. Um áramót-
in síðustu fékk drengurinn svo bréf frá
hagstofustjóra þar sem honum var
úthlutað nýju nafnnúmeri. Hann væri
beðinn að afsaka þessi óþægindi en
nú væri málið endanlega úr sögunni.
Það er þó aldeilis ekki úr sögunni.
Við síðustu álagningu fékk drengur-
inn enn á ný skattheimtuseðil látna
mannsins. Nú var skuldin orðin
305.543 krónur. Enn hringdi faðirinn
í bæjarfógetann og enn var lofað að
kippa málinu í lag.
Steininn tók þó úr nú í vikunni þeg-
ar drengurinn fékk bréf frá yfirvöldum
þar sem honum er tjáð að búið sé að
flytja dánarbú látna mannsins á heim-
ilisfang hans. Og vegna skuldseigl-
unnar sé nú skuldin komin upp í
316.097 krónur.
-KÞ
Maður
er að
gefast
upp
- segir faðir drengsins
„Þetta er orðið tómt rugl. Maður er
að gefast upp á þessu. Símtölin vegna
þessa máls eru orðin ófá,“ sagði faðir
drengsins úr Garðinum, í samtali við
DV.
Hann sagði að þegar hagstofustjóri
hefði sent þeim bréfið og sagt að búið
væri að láta strákinn fá nýtt nafnnúm-
er hefðu þau haldið að málið væri þar
með úr sögunni. „Tveimur síðustu
stöfum nafnnúmersins var breytt úr
43 í 51. Kannski hefur það ekki dugað
til að leiðrétta þennan misskilning,“
sagði pabbinn.
„Bréfið sem við fengum núna í vik-
unni, um það að dánarbú látna
mannsins hefði verið flutt á okkar
heimilisfang, kom frá Vestmannaeyj-
um, en þar bjó sá látni. Þegar ég
hringdi þangað kannaðist enginn við
að þetta bréf hefði verið sent þaðan,
þótt póststimpillinn væri þaðan, svo
ég er alveg hættur að botna í þessu
máli. Það er eins og þessir menn kunni
ekki á tölvurnar sem þeir vinna á,“
sagði faðirinn.
KÞ
SPRENGJU-
BILASYNING
Laugardag og sunnudag kl. 14-17
NISSAN SUNNY ’87
verður algjör sprenging á bílamarkaðnum. Þeir eru
loksins komnir og seljast eins og heitar lummur
3ja dyra, 5 dyra og 4ra dyra sedan.
Nissan Sunny Hatchback LX 1,0 5 dyra 4 gíra ................................ 343.000,-
Nissan Sunny Hatchback LX 1,3 5 dyra 5 gíra ................................ 364.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra................................ 394.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gíra.............................. 399.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 3 dyra 5 gíra m.aflstýri .................... 409.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra 5 gíra m. aflstýri.................... 414.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjálfsk................................ 428.000,-
Nissan Sunny Hatchback SLX 1,5 5 dyra sjálfsk. m.aflst....................... 442.000,-
Nissan Sunny Sedan LX 1,3 4 dyra 5 gíra...................................... 364.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gíra.................................. 395.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra 5 gíra m.aflstýri......................... 410.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk................................... 424.000,-
Nissan Sunny Sedan SLX 1,5 4 dyra sjálfsk. m.aflstýri....................... 438.000,-
Nissan Sunny Wagon LX 1,5 5 gíra............................................. 431.000,-
Nissan Sunny Coupe LX 1,5 5 gira............................................. 430.000,-
Nissan Sunny Coupe SLX 1,5 5 gíra ........................................... 465.000,-
Komið og kynnist hinum frábæru NISSAN SUNNY
111INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.