Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 8
8 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986. Ferðamál Vetrardagar í öðru umhverfi Nú hafa velflestir aðilar, sem ferða- þjónustu stunda innanlands, lagt sumarverðið til hliðar og ákveðið vetrarverð. Yfirleitt þýðir þessi breyting töluverða lækkun á allri. þjónustu. Nú er til dæmis unnt að fljúga landshoma á milh, komast í annað andrúmsloft, dveljast á hótel- um yfir helgi eða lengur á mun íægra verði en hægt var í sumar. Helgartil- boð vetrarins eru hafin. Til upplýsingar er hér birt helgar- verð á flugi og gistingu til hinna ýmsu staða á landinu. Verð er iniðað við tveggja manna herbergi og að farið sé á iostudegi og aftur tdl baka á sunnudegi, eða gist í tvær nætur, sem er lágmarksdvöl. Um 17-18 pró- sentum dýrara er fyrir einn mann í herbeigi. Tilgreint verð gildir yfir- leitt þar til í byrjun janúarmánaðar 1987. Á ölium þeim stöðum sem nefiidir eru er hægt að lengja dvölina í allt að tvær nætur, koma á fimmtudegi og fara á mánudegi. Tilgreint er verð fyrir hverja aukanótt sem gist er. Til Reykjavíkur Fra Akureyri Ef gist er á Hótel Loftleiðum eða Hót- el Esju kostar flug, gisting og morgun- verður 5.359 kr. Aukanótt kostar 995 krónur. Á Hótel Borg kostar helgar- pakkinn það sama en morgunverður er ekki innifalinn. Helgarferðin er aðeins dýrari ef gist er á Hótel Óð- insvéum, þá kostar hún 5.559 kr. og 6.169 kr. ef gist er á Hótel Sögu. Þetta á einnig við þegar komið er til Reykja- víkur frá öðrum stöðum á landinu en hér verður aðeins getið um lægsta verðið. Svokallaðar menningarferðir og skemmtiferðir til Reykjavíkur og til Akureyrar heljast fljótlega og verða þær eitthvað dýrari en venjulegar helgarferðir. Frá ísafirði Helgarferðin kostar 5.135 kr. Auka- nótt 995 kr. Frá Egilsstoðum Helgin kostar 6.489 kr. Aukanótt 995 kr. Frá Vestmannaeyjum Helgarpakkinn kostar 4.176 kr. Auka- nótt 995 kr. Reykjavík. Frá Reykjavík Akureyri. Vestmannaeyjar. Hornafjöröur. Til Akureyrar Hægt er að velja á milli 5 gististaða á Akureyri. Verðið er á bilinu frá 4.269 kr. til 5.559 eftir því hvar gist er. Auka- nóttin er frá 350 kr. til 876 kr. Morgunverður er ekki innifalinn í þessu verði og um er að ræða herbergi bæði með og án baðaðstöðu. Egilsstaðir. Til Egilsstaða Um tvo gististaði er að ræða og kostar helgarferðin frá 5.399 kr. og upp í 6.199 kr. Aukanóttin er á bilinu frá 450 kr. til 850 kr. Morgunverður er ekki innif- alinn. Til Hafriar í Homafirði Helgarpakkinn til Homafjarðar kost- ar á bilinu 4.664 kr. til 5.014 kr. Verðið á aukanóttinni er á bilinu 350 kr. til 525 kr. Gist er á Hótel Höfn. Morgun- verður er ekki innifalinn. Til Vestmannaeyja Helgarferðir á vetrarverði til Vest> mannaeyja heljast í kringum fyrsta vetrardag. Gist er á Hótel Gestgjafan- um og kostar ferðin 4.177 kr. með morgunmat. Aukanóttin kostar 995 krónur. Nú eru í gangi svokallaðar Eyjaferðir til Vestmannaeyja og munu þær halda áfram, a.m.k. út nóvember. -KB Til Húsavíkur Helgarferðin með gistingu á Hótel Húsavík kostar á bilinu 4.070 kr. til 4.420 kr. Aukanóttin kostar um 350 krónur. Húsavik. Isafjörður. Til Isafjarðar 4.595 kr. Aukanótt kostar 725 kr. Flug og gisting á Hótel Isaftrði kostar Morgunverður er ekki innifalinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.