Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 9 Utlönd Fimm bandanskum stjómaierindrekum vísað úr landi í Sovétríkjunum Sovétmenn hafa vísað fimm bandarískum stjórnarerindrekum úr landi fyrir meinta njósnastarf- semi, eða „sökum háttalags er ei sæmir stöðu þeirra sem stjórnarer- indreka" eins og sagði í tilkynn- ingu sovéska utanríkisráðuneytis- ins í gær. Fjórir Bandaríkjamannanna eru starfsmenn sendiráðsins i Moskvu en einn er starfsmaður bandarísku ræðismannsskrifstofunnar í Len- ingrad. Tilkynningin um brottvísun Bandaríkjamannanna varpar skugga á árangur af Reykjavíkur- fundi stórveldanna er ætlað var að leggja grunninn að batnandi sam- skiptum Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna. Tilkynning Sovétmanna í gær kemur á svipuðum tíma og frestur rann út fyrir tuttugu og fímm so- véska stjórnarerindreka er vísað var úr landi fyrir meintar njósnir í Bandaríkjunum að koma sér úr landi. Haft er eftir Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í gærkvöldi að Bandaríkjamenn muni þegar í stað hefna fyrir brottvísun Banda- ríkjamannanna en endanlegt ákvörðunarvald um slíkar gagnað- gerðir væri í höndum Reagans forseta. Brottvísanir sem „lítilræði" Haft er eftir fréttaskýrendum í gærkvöldi og í morgun að þrátt fyrir óvænta brottvísun Banda- ríkjamannanna frá Sovétríkjunum og stór orð Shultz um gagnaðgerð- ir sé þess ekki að vænta að stór- veldin láti gagnkvæmar brottvís- anir á stjórnarerindrekum sínum eyðileggja þann árangur er bæði Reagan og Gorbatsjov hafa fullyrt að náðst hafi í Reykjavík. Haft er eftir Georgi Arbatov, ein- um helsta ráðgjafa Gorbatsjovs og sérfræðingi í málefnum Norður- Ameríku í sjónvarpsviðtali i gærkvöldi að gagnkvæm brottvís- un stjórnarerindreka sé „lítilræði" þegar litið sé á samskipti stórveld- anna í heild. Shuitz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fordæmdi ásakanir Sovét- manna í gærkvöldi og lofaði gagnaðgerðum Bandarikjamanna. Adelsohn undir- býr stofnun Hazeldon meðferðar- heimila Gunnlaugux A. Jónssan, DV, Lundú Ulf Adelsohn, er lét af for- mennsku í sænska íhaldsflokknum síðastliðið sumar, hefur ákveðið að hefja starfsemi fjölda endur- hæfingarheimila fyrir áfengis- sjúklinga, að því er sænskir fjölmiðlar skýrðu frá um helgina. Heimilin verða staj'frækt eftir Hazelden forminu bandan'ska og er ráðgert að þau taki til starfa þegar á næsta ári. „Svo framarlega sem við náum samkomulagi við sveitarfélögin um leikreglurnar fyrir þetta einka- framtak munum við opna mörg meðferðarheimilisagði Adelsohn í blaðaviðtali um helgina. Adelsohn hefur um árabil setið í áfengisvamamefndum og hefiir mikinn áhuga á áfengismálum. „Ég fékk áhuga á Hazeldon form- inu er gamall vinur minn losnaði við áfengisvandamál sitt eftir með- ferð í Bandaríkjunum," sagði Adelsohn. Umsjón: Hannes Heimisson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir ★ 828, 206 kæliskápur, Electrolux. ★ KE-282-124 Gaggenau helluborð ★ CF-6484 Electrolux, fullkomin eldavél, í drapplit. ★ CF-6484 Electrolux eldavél, í rauðu. ★ R-281 klukkuborð fyrir Electrolux eldavélar. ★ CF-6472 Electrolux blásturs-eldavél í drapplit. ★ CK-260 Electrolux vifta fyrir útblástur. ★ TC-550 150 ltr. frystikista Electrolux. ★ NF-3244 tveggja hæða Electrolux örbylgjuofn. ★ N-15 Electrolux hrærivél. Einnig mikið úrval af lítið útlitsgölluðum kæli- og frystiskápum á niðursettu verði. Bjóðum ’/? útborgun í öllum húsgögnum, sjónvörpum, vídeótækjum og einnig í heimilistækjum. Vörumarkaðurinn hf. I Eiðistorgi 11 - sími 622200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.