Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 11 Það var handagangur í öskjunni á síldarsöltunarstöðinni Friðþjófi á Eskifirði þegar fréttaritari smellti þessari mynd af þar. DV-mynd Emil Eskífjörður: Síldarsöltun í fullum gangi Emil Thoiarensen, DV, Eskifirði; Á síldarsöltunarstöðinni Friðþjófi á Eskifirði hófst síldarsöltun 11. október sl. Þar var Geiri Péturs sem kom með 18 tonn af síld á laugardaginn sem fékkst í Mjóafirðinum aðfaranótt laugardagsins. Svo kom Sæljón SU frá Eskifirði með 80 tonn sem báturinn fékk í Seyðisfirði. Að sögn Unnars Björgólfssonar, eins eigenda Friðþjófs, er síldin mjög góð og yftr 20% feit. Hann sagði að þeir söltuðu þessa síld á Finnland og Svíþjóð og yrði þetta jólasíldin í Finnlandi í ár. Hjá Frið- þjófi er saltað í 30 plássum og var sannkölluð síldarstemmning á vinnu- staðnum þegar fréttaritari kom þar við. Mjög mikil óvissa ríkir nú um síldarsöltunarmál þar sem enn hefur ekki tekist samkomulag með Islend- ingum og Rússum um sölu á síld. Síld sú, sem nú er söltuð á Eski- firði, fer eins og áður sagði á Finnland og Svíþjóð og sagði Unnar Björgúlfs- son að þeir mættu ekki salta í meira en 300 uppsaltaðar tunnur á dag. Nýr sýslumaður í S-Múlasýslu Emi Thorarensen, DV, Eskifirði: Sigurður Eiríksson hefur tekið við starfi sýslumanns í Suður-Múlasýslu og bæjarfógeta á Eskifirði. Og eins og kunnugt er tók Bogi Nilsson, fráfar- andi sýslumaður, við embætti rann- sóknarlögreglustjóra ríkisins. En Bogi hafði þá gegnt starfi sýslumanns í S- Múlasýslu og bæjarfógeta á Eskifirði frá því 1. janúar 1976 og reynst farsæll í sínu starfi. Hinn nýi sýslumaður, Sigurður Ei- ríksson, er fæddur árið 1951 á ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk lagaprófi vorið 1978. 1979 hóf harm störf sem fulltrúi sýslumannsins í Eyjafjarðar- sýslu og bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík til 1. maí 1985, en frá þeim tíma tók hann við starfi aðalfulltrúa við sama embætti og gegndi hann því 30. sept. sl. Eiginkona Sigurðar er Sigrún Gísla- dóttir og eiga þau 2 stráka, 9 og 10 ára. Auk Sigurðar sóttu um sýslu- mannsembættið Guðjón Magnússon, fulltrúi hjá ríkissaksóknara, og Þor- valdur Ári Arason hæstaréttarlög- maður. Meðfylgjandi mynd er tekin þegar Sigurður Eiríksson tók við starfi sýslumanns af Boga Nilssyni. DV-mynd Emil M260. Tvískiptur, alsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 16.650,- stgr. 280 DL. Hálfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 14.495,- stgr. 120 FM. 120 lítra frystiskápur. Verð aðeins kr. 12.990,- stgr. Umboðsmenn um land allt. Kælitæki, Njarðvík Árvirkinn, Selfossi Mosfell, Hellu Kaupfélag Vestmannaeyinga Vestmannaeyjum Kask, Höfn, Hornafirði Rafvirkinn, Eskifirði Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum Kaupf. Þingeyinga, Húsavík KEA, Akureyri Valberg, Ólafsfirði Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki Kaupf. Húnvetn., Blönduósi Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Póllinn hf„ isafirði Kaupf. Stykkishólms, Stykkishólmi Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi Húsprýði, Borgarnesi Skagaradíó, Akranesi JL-húsið, Hringbraut, Rvk. DL 150. Hálfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 9.985,-stgr. Það býður enginn betur. Skipholti 7, símar 20080 og 26800. Kanaríeyjar - Tenerife - Gran Kanari Örugg sólskinsparadís í skammdeginu. Enska ströndin - Ameríska ströndin - Las Palmas - Puerto de la Cruz Brottför alla laugardaga frá 1. nóvember. Þið getið dval- ið í 1, 2 eða 3 vikur. Dagflug báðar leiðir. Fullkomin þjónusta °9 íslenskur fararstjóri. Aðrar ferðir okkar Jólaferð: Landiö helga, Egyptaland og Róm 19. des., 20. dagar, íslenskur fararstjóri, kr. 68.850,- Costa del Sol og Mallorka: Ódýr vetrardvöl, íslenskir fararstjórar. 8 vikur kr. 49.400,- Ástralia: 10. janúar, 4 vikur, ódýr ferð til að heimsækja íslenska ættingja, íslenskur fararstjóri. Mánaðarferö kr. 84.600,- Brasilia - Karnival í Rio: 7. mars, 22 dagar, íslenskur fararstjóri. Verð frá kr. 69.800,- Thailandsferð. Bangkok - Pattaya: Brottför hálfsmánaðarlega í allan vetur, 15 dagar, verð frá kr. 68.400,-, viðbótarvika frá kr. 8.870,- Evrópuborgir: Viku- og helgarferðir. Þid veljiö um dvöl i ibúðum, án matar, eða á fjögurra og fimm stjörnu hótelum meö morgunmat og kvöldmat, á eftirsóttustu stödum Kanarieyja. Fjöibreyttar skemmti- og skoðunarferöir. Sjórinn, sólskinió og skemmtanalifiö eins og fólk vill hafa þaö. FIUCFERDIR SDLRRFLUC Vesturgötu 17 símar 10661,15331, 22100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.