Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
Spumingin
Lesendur
Ertu búin/búinn að taka
slátur?
Sigríður Söebech: Nei, ég er ekki
búin að því og hef aldrei tekið slátur.
Lilja Magnúsdóttir: Nei, ég er ekki
búin að taka slátur og ætla ekki að
gera það i ár.
Þorsteinn Helgason: Konan fer út á
land til að taka slátur fyrir heimilið.
Jónína Guðmundsdóttir: Nei, ég hef
yfírleitt tekið slátur, en ekki í seinni
tíð þegar ég er ein í heimili.
Helga Hilmarsdóttir: Nei, og það
verður ekki tekið slátur heima hjá
mér.
Jón Pálmi Davíðsson: Það er ekki
búið að taka slátur heima hjá mér
og verður tæplega gert héðan af, en
annars tökum við venjulega slátur.
Um gyðinga og
Palesta'numenn
Guðjón V. Guðmundsson skrifar:
Ósvífninni og hræsninni virðast á
stundum alls engin takmörk sett.
Sannaðist þetta áþreifanlega þegar
nokkur hópur gyðinga kom hingað til
Reykjavíkur í sambandi við fund
þeirra kumpána, Reagans og Gor-
batsjovs.
Hópur þessi setti á svið alls konar
uppákomur. Þeir kvörtuðu og kvein-
uðu í ýmsum tilbrigðum yfir slæmri
meðferð Sovétmanna á þessum þjóð-
flokki. „Maður, líttu þér nær,“ var
einhvem tíma sagt. Gyðingar hafa
komið íram við palestínsku þjóðina
af djöfullegri grimmd. Þetta fólk hefur
orðið að þola ólýsanlegar hörmungar
og ekkert lát virðist vera á nema siður
sé enda takmarkið að flæma alla Pa-
lestínuaraba burt úr landinu, því landi
sem þeir eiga sjálfir en þar hafa forfeð-
umir búið frá alda öðli.
Það er eins og mestur hluti heimsins
vilji ekki vita af tilvist Palestínu-
manna. Það er smánarblettur á
mannkyninu að horfa aðgerðalaust á
útrýmingu þeirra.
Ökumaður hvetur alla aðra ökumenn til að nota stefnuljósin miklu meira.
Notið stefnuljós-
in miklu meira
Ökumaður skrifar:
Ég hef mikið ekið um Reykjavík og
nágrannabæi undanfarin ár og reynd-
ar um allt land. Einu hef ég tekið eftir
á þessum akstri, því að notkun stefhu-
ljósa á fólksbílum er mjög ábótavant
Ef ekið er til dæmis um Kringlumýr-
arbrautina er eins og bifreiðamar
myndi eins konai' fléttu. Þar á ég við
að menn skipta fyrirvaralaust um ak-
reinar án þess að gefa nokkur stef-
numerki um það áður. Ökumenn
hreinlega troða bílum sínum á milli
ökutækja á næstu akgrein og viröast
hreinlega ætlast til þess að aðrir öku-
menn lesi hugsanir þeirra.
Einhverra hluta vegna sleppa furðu
margir frá slysi þrátt fyrir aksturslag-
ið. Ég vil hvetja alla til að nota
stefnuljósin miklu meira, það er betra
fyrir alla.
Dyraverðir í Evrópu
hrokafullir
6458-4871 hringdi:
Laugardagskvöldið þann 27. sept-
ember ákváðum við nokkur ungmenni
að fara á ball. Svo óheppilega vildi til
að við fórum á skemmtistaðinn Ev-
rópu og mun það ekki henda okkur
aftur.
Þegar liðið var á kvöldið var skvett
yfir strákana, sem vom að dansa, úr
vínglasi, annað kom á eftir og splundr-
aðist það á dansgólfinu. Fékk fólkið,
sem var að dansa, bæði yfir sig vínið
og glerbrotin. Við vorum náttúrlega
ekkert ýkja hrifin af þessu öllu saman
og ákváðum að fara út því Siggi var
orðinn rennandi blautur. Þegar við
vorum að fara út rak hann óvart oln-
bogann í einn dyravörðinn. Bmgðust
þeir illa við og ætluðu að henda hon-
um út með látum fyrir þetta smáóhapp.
Siggi reyndi að fá sig lausan því hann
sætti sig náttúrlega engan veginn við
þessa meðferð. Vair honum þá hent i
gólfið af einum þremur dyravörðum
og barinn og laminn í andlitið svo það
stórsér á honum. Upp úr þessu fékk
hann blóðsprungin augu, marin kinn-
bein, spmngnar varir og fleira. Þriðji
dyravörðurinn stóð þama og gætti
þess að hinir dyraverðimir gætu sval-
að árásargimd sinni og bægði fólki frá
er varð vitni að þessu en það vissi
ekki annað en að Siggi hefði rekið
olnbogann í einn dyravörðinn er hann
var á leið út. Eftir barsmíðamar var
honum fleygt út.
Það er mjög erfitt að horfa á svona
aðfarir og geta ekkert aðhafst til
hjálpar manninum. Eftir á vill maður
auðvitað kæra svona menn fyrir beina
líkamsárás en þá er náttúrlega sama
viðkvæðið; við gerðum ekkert nema
skyldu okkar enda vom þau haug-
dmkkin. Við vorum búin að fá okkur
í glas og þá virðist eina úrræðið vera
að skrifa um þennan atburð, dyravörð-
unum til vamaðar og einnig fólki er
á leið sína þama um.
Að lokum vil ég gefa fólki, sem sæk-
ir þennan skemmtistað, heilræði: Ef
það á að henda ykkur út og þið vitið
ekki ástæðuna fyrir því látið þá gera
það án nokkurs múðurs því annars
hafið þið verra af.
„Ég skora á Bylgjuna að spila meira af þungarokki."
Það vantar
þungarokk
í útvarpið
Linda skrifar:
Ég get ekki fengur á mér setið að
láta í ljós reiði mína yfir einu atriði í
útvarpinu.
Kannski að ég byrji á byrjuninni.
Hér á höfuðborgarsvæðinu, og ömgg-
lega víðar um landið, úir og grúir af
fólki sem hefúr virkilegan áhuga á
þungarokki. Stór hluti þessa fólks hef-
ur hingað til kveikt á rás 2 klukkan
átta annað hvert laugardagskvöld ein-
ungis til að hlusta á þungarokksþátt
Finnboga Marinóssonar. Fyrst í stað
var þessi þungarokksþáttur, þá í um-
sjá Sigurðar Sverrissonar, hvert
einasta laugardagskvöld. Síðan skar,
rás 2 af einhverjum furðulegum ástæð-
um þann tíma niður á annað hvert
laugardagskvöld. Sannir þungarokks-
aðdáendur hafa lifað í voninni um að
fá þáttinn aftur á sinn gamla tíma, en
hvað þá!? Núna er rásin búin að taka
þáttinn út af dagskrá. Ég veit að það
em fleiri en ég sem em svekktir og
leiðir yfir þessu.
Núna á sem sagt að hrinda þessari
tónlist frá, því ekki em Aerosmith,
Accept, Iron Maiden, Scorpions og
fleiri góðum hljómsveitum gerð of góð
skil í útvarpinu ahnennt. Og það sem
ég skil síst er að rás 2 skuli hætta með
þann eina þátt sem ekki á sér hlið-
stæðu hjá aðalkeppinautnum, nefni-
lega Bylgjunni. Það væri fróðlegt að
sjá hvort rás 2 myndi taka þáttinn upp
aftur ef Bylgjan setti þungarokksþátt
á sina dagskrá. Ég skora því á Bylgju-
menn að taka þungarokkið upp á sína
arma svo allir hlustendur geti fengið
eitthvað við sitt hæfi. Eiga kannski
ekki allar músíkstefnur rétt á sér.
eða hvað?
„Framsóknarflokkurinn verður langminnsti flokkurinn næst.“
Framsóknarflokkurinn
er á niðurleið
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Aumingja Steingrímur, nú er honum
vorkunn vegna þess að nú er hann
loksins búinn að sjá það að Framsókn-
arflokkurinn verður lang minnsti
flokkurinn næst þegar kosið verður
og nú á að stofiia nýjan flokk sem
auðvitað verður með sömu stefhumál
og Framsóknarflokkurinn heftir verið
með. Kannski verður sett nýtt nafri á
hann.
Nei, Steingrímur hefur aldrei verið
maður til að stjóma þessu landi, held-
ur ekki Framsóknarflokkurinn. Það
er eins og ég hef áður sagt að hann
hefði heldur átt að vera hjá einhveij-
um bóndanum og vera kúasmali, það
verkefni hefði hann leyst vel af hendi.
Nei, Halldór Ásgrímsson hefði átt
að vera formaður flokksins, það er
ungur maður á uppleið, fyrirmyndar
fúlltrúi þjóðar sinnar.
Ég vil aðeins bæta því hér við að
það er verkalýður landsins sem hefur
komið verðbólgunni niður í það sem
hún er í dag en ekki ríkisstjómin með
þvi að skera laun niður um 40%.