Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst.óháð dagblað
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
Soðið upp úr hjá hitavertu Akureyrar:
Hitaveitustjóra gert að segja upp
Jón G. Haukssan, DV, Aknreyri gefinn kostur á að segja upp sakir að hann hefur oft gagnrýnt þrisvar sinnum dýrara á Akureyri rið rekinnsagði Sigurður J.
—..........1__-------- starfi sínu. Samkvæmt heimildum stjóm hitaveitunnar og stjómkerfi en í Reykjavík. Bæjarbúar eru æfir Sigurðsson, formaður stjómar hita-
„Eg hef ekkert í höndunum um DV á Vilhelm að vera búinn að skila bæjarins. Að undanförnu hefúr hann útafverðinuoghafaaðundanfömu veitu Akureyrar, í gærkvöldi. Um
þetta mál og vil því hvorki játa né inn uppsögn sinni á morgun. verið harður við gagnrýnina. gengið undirskriftarlistar á vinnu- það hvort Vilhelm hefði verið gefinn
neita spumingu þinni,“ sagði Vil- stöðum vegna fyrirhugaðrar verð- kostur á að segja upp svaraði Sig-
helm V. Stemdórsson, hitaveitustjóri Vilhelm hefur verið nokkuð um- Vandi hitaveitunnar er mikill. hækkunar í nóvember. urður: „Ég gef ekkert komment á
á Akureyri, við DV í gærkvöldi um deildur maður í starfi sínu sem Hún skuldar um tvo milljarða og það.“
það hvort harrn hefði verið rekinn hitaveitustjóri, ekki síst fyTÍr þær heitt vatn á Akureyri er rúmlega „Hitaveitustjórinn hefúr ekki ve-
Valgerður
hæni
en Stefán
„Það verður að taka þessar tölur
með fyrirvara vegna þess að þær segja
ekki alveg eins mikið og menn gætu
ætlað í fyrstu,“ sagði Valgerður Sverr-
isdóttir, bóndakona að Lómatjöm, sem
hlaut fleiri tilnefningar en Stefán Val-
geirsson alþingismaður í skoðana-
könnun framsóknarmanna í
v Norðurlandskjördæmi eystra.
Valgerður, sem er varaþingmaður,
formaður kjördæmissambandsins og
fyrsta og eina konan í stjóm SfS, hlaut
446 atkvæði. Stefán hlaut 387 en Guð-
mundur Bjamason alþingismaður
varð efstur með 613 atkvæði.
„Þetta var bara skoðanakönnun en
prófkjör verður á aukakjördeemisþingi
2. nóvember. Þá verður raðað endan-
lega.
Mér fannst þetta alveg ljómandi góð
útkoma hjá mér en ég er ekki búin
að ákveða hvort ég fer í prófkjör.
Persónulegar aðstæður gætu spilað
imi í. Það er dálítið mikið mál fyrir
bóndakonu úti á landi að fara á þing,“
sagði Válgerður, sem er gift og tveggja
** bama móðir.
-KMU
- sjá nánar á bls. 40
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF„
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
Guðmundur Árnason á leið í afmæliskaffið á Hrafnistu í morgun.
DV-mynd GVA.
Elsti
á Islandi
„Ég er nú orðinn hálfgerður ræfill,"
sagði Guðmundur Ámason er DV
heimsótti hann á Hrafhistu snemma
í morgun. Guðmundur var þá nýbú-
inn að raka sig og á leið í morgun-
verð með bros á vör enda 103 ára í
dag.
„Ég er vanur að fara á fætur um
klukkan 9 á morgnana og sofna
skömmu eftir kvöldmat," sagði Guð-
mundur sem fæddist árið 1883 á
Hólanesi á Skagaströnd. Hann er
farinn að missa sjón en heyrir vel
og hlustar fyrir bragðið mikið á út-
varp. „Nei, ég hlusta aldrei á Bylgj-
una og hef aldrei gert.“
Guðmundur Ámason er elsti núlif-
andi karlmaður á íslandi en ein kona
hefúr skotið honum ref fyrir rass í
því efni; Guðrún Þórðardóttir á
Húsavík sem er 107 ára. -EIR
LOKI
Það er heitt í kolunum
hjá hitaveitunni.
Veðrið á morgun:
Fremur
kalt og
bjart
veður
Á morgun verður hæg, breytileg
átt eða norðanátt. Fremur kalt og
bjart veður en líklega dálítil él á
annnesjum norðanlands.
Fanginn
sveltur enn
Fanginn í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg, sem verið hefur í
hungurverkfalli í rúmar tvær vikur,
er enn að. Að sögn fangavarðar þar í
húsinu er fanginn undir stöðugu
lækniseftirliti.
Eins og DV sagði frá á laugardag
er fanginn ósáttur með málsmeðferð á
slagsmálum, sem hann lenti í og af-
plánar nú dóm fyrir, en hæstiréttur
dæmdi hann til átta mánaða fangelsis-
vistar. Vill fanginn með sveltinu knýja
á um að málið verði tekið upp að nýju.
„Við fylgjumst með þessu máli,“
sagði Þorsteinn Jónsson, deildarstjóri
í dómsmálaráðuneytinu, í morgun.
„En hér er um að ræða hæstaréttar-
dóm, sem við treystum fullkomlega,
svo málið verður ekki tekið upp aftur.“
-KÞ
Allir fangar
í eyðnipróf
Allir fangar á Litla-Hrauni eru látn-
ir gangast undir eyðnipróf svo og þeir
sem gista fangageymslur í Reykjavík
í meira en fimm sólarhringa.
„Fangar eru álitnir áhættuhópur og
því er þetta gert,“ sagði Brynleifúr
Steingrímsson, fangelsislæknir á
Litla-Hrauni. „Enn sem komið er hefúr
enginn fangi mælst með einkenni
eyðni.“
Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspumir
tókst DV ekki að fá upplýsingar um
hvort þessi regla um eyðnipróf ætti
einnig við um gæsluvarðhaldsfanga
en þeir sitja sem kunnugt er oft lengur
en fimm sólarhringa bak við lás og slá.
-EIR
A-listinn á Austuriandi:
Guðmundur
Einarsson
í fyrsta sæti
Guðmundur Einarsson alþingismað-
ur mun skipa fyrsta sæti lista Al-
þýðuflokksins á Austurlandi í
komandi alþingiskosningum. Hann
tók áskorun stjómar kjördæmisráðs
flokksins á aðalfundi þess á laugar-
dag. Guðmundur var í fyrsta sæti á
lista BJ í Reykjanesi í síðustu kosn-
ingum.
„Ég er vissulega að taka áhættu en
ég bjóst aldrei við að fá þigmennskuna
á silfurfati og finnst það merkilegt
verkefni að vinna að því að Alþýðu-
flokkurinn fái þingmann á Austur-
landi," sagði Guðmundur í samtali við
DV í morgun. -SJ
J
!
i
i
i
i
i
i
i
i
i