Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. RÍKISSPITALAR LAUSARSTÖÐUR LANDSPITALINN Bókasafnsfræðingur óskast sem fyrst eða eftir sam- komulagi til starfa við bókasafn Landspítalans. Upplýsingar veitir yfirbókavörður Landspítalans í síma 29000 - 488. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast á lyflækn- ingadeild 4 14-G. Fastar næturvaktir koma til greina. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri lyf- lækningadeildar í síma 29000 - 485. Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á barnadeild og vökudeild Barnaspítala Hringsins. Við bjóðum góðan aðlögunartíma við áhugavert starf. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri Barna- spítala Hringsins í sima 29000 - 285. Fóstra eða starfsmaður óskast við dagheimili ríkisspít- ala, Sólbakka við Vatnsmýrarveg. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 22725. Starfsmenn (2) óskast við taugarannsóknastofu tauga- lækningadeildar Landspítalans. Enskukunnátta er nauðsynleg. Upplýsingar veitir læknafulltrúi taugarannsóknastofu í síma 29000 - 459. VÍFILSST AÐASPÍT ALI Meinatæknir óskast í hálft starf við rannsóknastofu spítalans. Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir í síma 42800. KÓPAVOGSHÆLI Deildarþroskaþjálfi og þroskaþjálfar óskast við Kópa- vogshæli. Starfsfólk óskast til vinnu á vistdeildum fullorðinna og barna á Kópavogshæli. Starfið er fólgið í meðferð og umönnun þroskaheftra vistmanna. Unnið er á tví- skiptum vöktum; morgunvakt frá kl. 8 til 16 eða kvöldvakt frá kl. 15.30 til 23.30. Starfsfólk óskast til ræstinga við Kópavogshæli. Upplýsingar um ofangreind störf veitir yfirþroskaþjálfi Kópavogshælis í síma 41500. Reykjavík, 20. október 1986. Upphefð eða niðurlæging á leiðtogafundi Óhætt er að segja að öllum al- menningi sé það mikið harmsefiii hvemig til tókst hjá þjóðarleiðtog- unum tveimur - Gorbatsjov og Reagan - á fimdum þeirra hér í Reykjavík 11. og 12. október síðast- liðinn. Að vísu voru flestra spár nokkuð á einn veg, það er að segja að ekki væri mikils að vænta í þetta skiptið. Þó töldu allmargir þeir svartsýnustu að þeir mundu vænt- anlega verða sammála um dagsetn- ingu næsta fundar en ósennilega yrði um frekari niðurstöðu að ræða. Hinir, sem jákvæðari vildu vera, vonuðu þó að eitthvað meira kæmi út úr þessum viðræðum. En ekki einu sinni fundardagurinn var ákveðinn. Málalok fundarins reiðarslag Ekkert umboð hef ég til að tala fyrir murrn allra íslendinga - hvað þá heimsbyggðarinnar - en mér seg- ir svo hugur á döprum mánudegi að vonbrigði þorra fólks séu vægast sagt mikil og mjög sennilega em málalok fundarins reiðarslag flest- um jarðarbúum. Þegar þriðji fundur leiðtoganna - og sá síðasti ráðgerði - hatöi verið framlengdur, ekki bara einu sinni heldur að minnsta kosti tvisvar og jafnvel farið að bollaleggja um enn frekari framlengingu, hötöum við, sem stóðum álengdar, fullt leyfi til bjartsýni. Ekki varð strax ljóst, þegar leið- togamir gengu út úr Höfða í sunnudagsmyrkrinu, hvort hlé heföi verið gert eða viðræðum slitið. Sú fregn barst þó fljótlega - frá útlönd- um - að ekki yrði um frekara spjall leiðtoganna að ræða í þetta skiptið. Sumir óttuðust að fundurinn heföi leyst upp; aðrir, og þeir vom fleiri, vonuðu að nú mundu gleðitiðindi berast öllu mannkyni. Blaðamanna- fundanna, sem þegar höfðu verið tímasettir, var því beðið með mikilli eftirvæntingu. Shultz stoltur af Reagan En þegar fulltrúar risaveldanna komu fram fyrir blaðamenn hvor á eftir öðrum og í sínu húsinu hvor, Shultz af hálfu Bandaríkjanna en Gorbatsjov sjálfur af Sovétríkjanna hálfu, varð strax ljóst af svipbrigðum þeirra og yfirbragði að vonbrigði vom aðalniðurstaða fundarins. Shultz byrjaði á yfirlýsingu þess efiús að hann hefði sjaldan eða aldr- ei verið jafhstoltur af forseta sínum. Hann - Reagan - hefði staðið eins og klettur þegar Gorbatsjov impraði á því að hann stöðvaði geimvamará- ætlunina eða saltaði hana að minnsta kosti í 15-20 ár. Gorbatsjov kraföist líka að rannsóknir Banda- ríkjamanna í þessu dútli í himin- geimnum einskorðuðust við tilraunastofur einar. Reagan féllst að vísu á að hinkra í 10 ár með stjömustríðsáformið en taldi það af og firá að hægt væri að ná nokkrum árangri í þessari „starf- semi“ á jörðu niðri eingöngu. Og í sem stystu máli var boðskapur Shultz sá að bæði hann og Reagan „og allir sérfræðingar okkar“ heföu orðið sammála um að ekki bæri að fóma þessari geimvopnaframleiðslu fyrir vemlega fækkun kjamorku- vopna og raunar eyðingu þefrra alfra fyrir aldamót - eins og Gorbatsjov bauð fram í tillögum sínum. Bandaríkjamenn töldu sem sagt ekki við hæfi eða gerlegt að skipta á stjömustríði og einum vesælum heimsfriði. Afetaða Reagans var því vonbrigði óbreyttu friðelskandi fólki. Og svo langt gengu hinir svoköll- Kjallariim Þorsteinn Valgeir Konráðsson nemi í prentiðn uðu „haukar" í Repúblikanaflokkn- um að lýsa því yfir að það væri ekki hagstætt fyrir flokkinn að semja við Gorbatsjov í Reykjavík - ekki núna allavega. Undirritaður, sem alla tíð hefur aðhyllst vestrænt lýðræði og þar með frelsi til orðs og æðis, fór sem snöggvast að efast um heilindi sinna manna. Ég vona þó að þeir gefi við- hlítandi skýringu á þessari ömurlegu afetöðu. hófet að hann gengi til hans með góðu hugarfari - fullur samnings- vilja. Og ég trúi því að það hafi verið einlægur ásetningur hans að þessar viðræður leiddu til áþreifanlegs áfenga á ferð okkar til afvopnunar. En í stað þess að mæta tilsvarandi þankagangi virtist sem skilnings- leysi Reagans væri algert. Áhugi hans á friðarviðleitni Gorbatsjovs reyndist í lágmarki eða, eins og Shultz sagði: Forsetinn stóð sig eins og hetja. Þessi orð bandaríska utan- rflcisráðherrans em ekki fagnaðar- efiii þeim sem ólu von í brjósti og væntu gleðitíðinda í fundarlok - með handabandi leiðtoganna og sameig- inlegri yfirlýsingu. Fundur Gorbatsjovs var mjög at> hyglisverður og ég hygg að við hér á norðurhjara höfum orðið nokkurs vfeari. Oft er talað um útsmoginn áróður Sovétleiðtoga en ég kom ekki auga á hann á þessum ftrndi. Ekki get ég farið nánar út í útskýr- ingar Gorbatsjovs í þessari grein um árangur eða árangursleysi fundarins frá hans sjónarhóli. En niðurstaða mín er að hann hafi verið hreinskil- inn. Ég má ekki láta hjá líða að geta innleggs Matthíasar Johannessens í þennan fund; mér fannst það stór- kostlegt. Og þá fyrst hýmaði yfir Sévardnadse og aðalritaranum. Látið ekki staðar numið f lokin þetta: Gorbatsjov tók rétta ..Kæri Reagan - kæri Gorbatsjov: Látið ekki staðar numið; slitið ekki sambandinu - hittist aftur sem allra tyrst. Leggið sér- og eiginhagsmuni til hliðar og setjið alvöruviðræður um heimsfrið i öndvegi." Gorbatsjov hreinskilinn En hverfum nú að blaðamanna- fundinum með Gorbatsjov. Sovét- leiðtoganum var greinilega mikið niðri fyrir og raunar öllu hans liði. Og sérstaklega fannst mér átakan- legt hversu Sévardnadse - þessi annars glaðlegi maður - var þung- búinn. Gorbatsjov hélt langa framsögu og eyddi löngum tíma í inngang orða sinna. Hann var mjög harðorður í garð Bandaríkjanna en mér virtist hann einlægur, málefhalegur og trú- verðugur. Það gat enginn farið í grafgötur um að sovéska sendinefnd- in var niðurbrotin - eðlilega og engin furða. Hún hafði steytt á skeri, rekist á vegg. Gorbatsjov lýsti þvi yfir áður en fundurinn með Reagan stefiiu þegar hann ákvað að tíunda fyrst það neikvæða en láta bíða til fundarloka að skýra frá þeim ár- angri sem þó náðist með þeim Reagan. Og í þrykktum orðum og allra síð- ast: Kæri Reagan - kæri Gorbatsjov: Látið ekki staðar numið; shtið ekki sambandinu - hittist aftur sem allra fyrst. Leggið sér- og eiginhagsmuni til hliðar og setjið alvöruviðræður um heimsfrið í öndvegi. Virðið skoð- anir hvor annars, slakið á kröfum, mætist á miðri leið. Stofhið til trún- aðar og gerið gott samkomulag Okkar allra vegna. Es. íslenska þjóðin býður ykkur velkomna hvenær sólarhrings sem er. Þorsteinn Valgeir Konráðsson. „Bandaríkj amenn töldu sem sagt ekki við hæfi eða gerlegt að skipta á stjömustríði og einum vesælum heimsfiiði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.