Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Page 36
36
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
Byggingasamvinnufélagið ADALBOL
Erum að hefja framkvæmdir í suðurhlíðum Kópavogs.
Um er að ræða tveggja, þriggja og fjögurra herbergja
íbúðir í fjölbýlishúsum og lítil einbýlishús.
Einnig höfum við til ráðstöfunar lóðir undir raðhús í
Grafarvogi.
Upplýsingar á skrifstofunni kl. 13-16 daglega.
Byggingasamvinnufélagið Aðalból - BSAB
Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
! LAUSAR S1ÖDUR HiÁ
i REYKJAVÍKURBORG
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Laus staða deildarfulltrúa við fjölskyldudeild, hverfa-
skrifstofu í Asparfelli 12. Áskilin er félagsráðgjafa-
menntun og a.m.k. 3ja ára starfsreynsla á sviði
fjölskyldumála og/eða barnaverndar.
Frekari upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar
í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til kl.
16.00, föstudaginn 7.11. '86.
*-
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Sálfræðingur - Stuðningsfólk
Sálfræðing vantar í heila eða hálfa stöðu hjá Dagvist
barna Reykjavík. Ennfremur stuðningsfólk, þ.e. fóstrur
og þroskaþjálfa, til að sinna börnum með sérþarfir, á
dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar. Sérstaklega
vantar nú stuðningsfólk á heimilin Iðuborg og Suður-
borg í Breiðholtshverfi.
Upplýsingar gefur Guðrún Einarsdóttir sálfræðingur á
skrifstofu Dagvista barna í símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til kl.
16.00 föstudaginn 7.11. ’86.
DUUDDDDDDODp*'OOaqDUDDDODODDDDDDDQDODDDDDDDDO
Þakrennur
plasti
Einfaldar í uppsetningu
Hagstætt verð
^ VATNSVIRKINN
ÁRMÚLI 21 — PÓSTHÓLF 8620 — 128 REYKJAVÍK
SÍMIAR: VERSLUN: 686455. SKRIFSTOFA: 685966
SOLUM: 686491
aDDaaaDaaaaaaaDaaaaaoaDaanaaaaaannaaaaaaaDDa
Kvikmyndir_________________
Austurbæjarbíó/Stella í oriofi
krki
Sjokk i
prógrammið
Framleiðandi: Umbi.
Leikstjóri: Þórhildur ÞorleHsdóttir.
Handrit Guöný Halldórsdóttir.
Aðalhlutverk: Edda Björgvinsdóttir, Þór-
hallur Sigurðsson, Gestur Einar Jónasson,
Gisli Rúnar Jónsson og Eggert Þorleifsson.
Það telst enn til viðburða þegar
frumsýnd er íslensk kvikmynd eins
og gert var um helgina er myndin
Stella i orlofi var tekin til sýninga.
Þetta er ein af örfáum íslenskum
gamanmyndum sem gerðar hafa ve-
rið enda er íslenskur húmor þess
eðlis að erfitt er að festa hann á filmu
svo vel fari, en í Stellu í orlofi tekst
glettilega vel til á stundum. Gert er
grín að „tískufyrirbrigðinu" að fara
í meðferð eða vera í meðferð.
Myndin er ekta farsi þar sem mis-
skilningur á misskilning ofan leiðir
til ýmissa uppákoma. Stella, leikin
af Eddu Björgvinsdóttur, er venjuleg
íslensk húsmóðir, gift verslunareig-
andanum Georg, leiknum af Gesti
Jónassyni. Er myndin byrjar er Ge-
org að leggja drög að helgarferð með
dönsku viðhaldi sínu og hefur sent
henni flugmiða frá Kaupmannahöfn
til fslands. Stellu segir hann hins
vegar að hann ætli með mikilvægan
viðskiptavin í laxveiði.
í millitíðinni fara þau hjónin svo
í afinælisveislu sem endar með því
að Georg stórslasast og verður að
leggjast á sjúkrahús. Stella ákveður
þá að fara með „viðskiptavinmum"
í laxveiðina og fer hún að ná í hann
út á Hótel Loftleiðir. Þar er mættur
Svíinn Salomon Gustavsson á leið í
meðferð hjá SÁÁ og sökum mis-
skilnings heldur hann með Stellu í
laxveiði.
Ýmsar uppákomur verða við lax-
veiðiána og verður Gustavsson,
frábærlega leikinn af Þórhalli Sig-
urðssyni, fyrir hveiju sjokkinu á
fætur öðru en allt telur hann það
vera lið í meðferðarprógramminu.
Þama við ána kemur Lionsklúbbur-
inn Kiddi í heimsókn að selja salem-
ispappír. Eigandi árinnar, harðsoð-
inn flugstjóri, kemur til að bjarga
ánni sinni frá stórfelldum veiðiþjófn-
aði, danska viðhaldið er mætt á
staðinn og þvælist þar inn og út um
glugga og Georg, nýstrokinn af
sjúkrahúsinu með báða handleggi í
gifsi, kemur til að bjarga málunum.
Kvenremba
Aðstandendur þessarar myndar
hafa sagt að hún sé ekki eingöngu
léttur farsi án ábyrgðar heldur megi
finna í henni dýpri merkingar. Auð-
velt er að leiða rök að nokkurri
kvenrembu í myndinni, allir karl-
menn í henni eru upp til hópa mestu
fífl og eini kvenmaðurinn, sem lítur
út fyrir að vera það, danska við-
haldið, er látin ganga sig upp að
hnjám á þjóðvegum landsins megin-
part myndarinnar. Verst fer þó
Gestur Jónasson út úr þessu en á
honum dynur allt sem á annað borð
getur dunið, frá því að brotna á báð-
um handleggjum til að brenni
næstum því allt undan honum.
Eins og áður sagði tekst oft gletti-
lega vel til í mörgum atriðum
myndarinnar og á Laddi þar stóran
þátt, sérstaklega framan af mynd-
inni. Hann leikur hinn sænska
alkóhólista af miklum tilþrifum.
Önnur atriði eru miður heppnuð og
flöt eins og þegar reynt er að skapa
síldarstemmningu við ána er Lions-
klúbburinn Kiddi kemst þar í
uppgrip af laxi. Og slagsmálin á milli
flugstjóranna og Kidda í framhaldi
af því eru fremur klúrt atriði sem
ekki nær þeim væntingum sem gefn-
ar eru í ágætri uppbyggingu
myndarinnar fram að því.
Á heildina litið er Stella í orlofi
miðlungsgamanmynd sem allir ættu
að hafa eitthvert gaman af, leikarar
komast flestir vel frá sínum hlut-
verkum, synd að sjá ekki meira af
Sigurði Siguijónssyni, og fagmann-
leg vinnubrögð Þórhildar Þorleifs-
dóttur kítta oft á tíðum vel í helstu
veilur handritsins.
-FRI
Þórhallur Sigurðsson og Edda Björgvinsdóttir i hlutverkum sínum.
Gestur Jónasson fær að finna til tevatnsins í myndinni. Hér liggur hann afvelta ofan í á, handleggsbrotinn á báðum.