Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Page 39
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
39
Kormákur Hermannsson, en hann segist ekki láta sjónvarpið ganga fyrir et
hann hefði eitthvað sérstakt að gera á kvöldin.
„Gott að fá
aðra stöð“
segir Kormákur Heimannsson
„Ég horfi dálítið á sjónvarp og þá
helst á bíómyndir og dálítið á fréttir,
annars er þetta misjafnt og fer svolítið
eftir því hvað er í sjónvarpinu,“ sagði
Kormákur Hermannsson, aðspurður
um hvort hann horfði mikið á sjón-
varp.
„Mér finnst gott að fá aðra stöð og
hefur fundist bíómyndimar á nýju
stöðinni ágætar og svo hefur mér fund-
ist gamla sjónvarpið gott líka. Ég horfi
venjulega á sjónvarpið til svona
klukkan tíu eða ellefu á kvöldin."
sagði Kormákur.
Hann sagði að krakkar á hans aldri
töluðu lítið um sjónvarpið og það
væri sjaldan sem þau létu sjónvarpið
ganga fyrir einhverju öðru sem þau
ætluðu að gera.
-SJ
„Horfi helst á
skemmtiþætti“
segir Sigríður Jensdóttir
„ Já, ég horfi frekar mikið á sjónvarp
og þá helst á skemmtiþætti og létt efni
og þá mest erlent þar sem það er ekki
svo mikið af íslensku skemmtiefni í
sjónvarpinu,“ sagði Sigríður Jens-
dóttir aðspurð um það hvort hún
horfði mikið á sjónvarp.
„Mér finnst Stöð 2 góð en það er
náttúrlega ekki komin mikil reynsla á
hana. Ég sjálf hef ekki horft meira á
sjónvarp síðan hún kom, en sonur
minn, sem er að verða fjögurra ára,
hefur horft meira á sjónvarp síðan
stöðin kom. Við höfum kveikt á tæk-
inu þegar dagskráin byijar og hann
hefur sest við tækið og fylgst með öllu
sem þar hefur verið sýnt fyrir böm-
in,“ sagði Sigríður.
Hún sagði að á hennar heimili væri
ekki horft á hvað sem er í sjónvarpinu
heldur reyndu þau að velja úr efhi sem
þeim þætti áhugavert. Sigríður er ekki
búin að kaupa sér afruglara og sagð-
ist ætla að láta það bíða aðeins.
-SJ
Sigríður Jensdóttir, en hún segist ekki hafa horft meira á sjónvarp þó svo að
Stöð 2 hefði bæst við.
Dægradvöl
Venjulegur skammtur
af
„Ég horfi frekar mikið á sjónvarp,
en það fer eftir þvi hvað er í sjón-
varpinu. Ætli það sé ekki svona
venjulegur skammtur af sjónvarpi.
Ég horfi bara á það sem ég held að
mér finnist gott, eins og t.d. fram-
haldsþætti og spönnandi myndir, en
ég nenni ekki að hanga yfir öllu
sjónvarpinu, horfi frekar á einn þátt
en sleppi þeim næsta á eftir,“ sagði
Brynhildur Eyjólfsdóttir þegar við
spurðum hana hvort hún horfði mik-
ið á sjónvarp.
En hvað með Stöð 2? „Ég var frek-
ar óánægð með hana fyrst. Þá
vantaði inn í dagskrána þannig að
maður vissi aldrei hvað var að ske
hjá þeim, en þeir em búnir að vera
með ágætisefni eins og t.d. skemmti-
legar myndir og framhaldsþætti eins
og t.d. sakamálaþætti. íslenska ríkis-
sjónvarpið er ágætt líka. En maður
er búinn að hafa það svo lengi og
ef það em skemmtilegar myndir þar
þá horfi ég ekkert frekar á Stöð 2.“
sagði Brynhildur.
„Mér finnst eiginlega of mikið að
hafa sjónvarpið langt fram eftir
nóttu á virkum dögum, en auðvitað
þarf maður ekki að hanga yfir þessu
þannig að þetta er allt í lagi.“
Hangirðu yfir sjónvarpinu ? „Nei,
ég hef of mikið að gera til að geta
verið að hanga yfir sjónvarpinu þeg-
ar ekkert er í þvi sem mig langar til
að horfa á. Venjulega er ekki horft
mjög mikið á sjónvarpið heima, það
er alveg eins setið og spilað eða við
lesum og spjöllum," sagði hún að
lokum.
-SJ
■ ^ ■
sjonvarpi
Brynhlldur EyjóHsdóttir, en hún segist ekki hafa tima til aö hanga yfir sjón-
varplnu.
ekki fyrir hermikrákur
SK-t gefiir
sköpunargáfunni lausan
tauminn og gerir tánverkin aö leik. m.
SK-1 er óviðjafnanlegt svo að páfagaukurinn fell-
ur í stafi við samanburðinn. Páfagaukur getur
að sjálfsögðu likt eftir mannsröddum en til sam-
anburðar getur þú með notkun SAMPLINGS
eiginleikanna útsett og fullgert tónverk, allt und-
ir þér sjálfum komið.
MöguleiKarnir eru margvislegir. Byrjaðu með að
nota innbyggða hljóðnemanb til að geyma öll
hljóð sem þú hefur áhuga fyrir i innbyggða
minniskubbnum, hvort heldur mannsraddir eða
önnur hljóð sem þú getur siðan breytt i tónverk
á hljómborðinu. Þetta er mjög auðvelt og
skemmtilegt og útkoman er síðan undir þér kom-
in.
Hver er munurinn á páfagauki og CASIO.
SK-1 hljómborði ??????
iiiiiiiii pe)jJBiu)|Bio t-)js ua
uinpojmsuuBui 0Q2 q tj n j;qa juuaq jnjaB uuijnijneGejed :jbas
SK-1
5AMPLIIMC3
KEYBOARD
; Þú getur einnig valið um átta mismunandi inn-
.—a byggð hljóðminni sem hafa fimm gerðir af PCM
(pulse, code, modulation) raunverulegum hljóð-
Laugavegi 26. færum og þér til stuðnings getur þú válið um
Sími 91-21615. el,e^u sjálfvirka hljóðtakta (rythma).