Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Side 40
40
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
Andlát
Elísabct Halldórsdóttir, Sogavegi
101, Reykjavík, léstí Borgarspítalan-
um laugardaginn 11. október. Hún
var lengi búsett á Ísafírði. Eigin-
maður hennar var Steinar Steinsson,
skipasmiður og skipaeftirlitsmaður á
Isafirði. Hann lést árið 1967.
Elísabet verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 20.
október kl. 13.30.
Ragnar Jónasson, Álftamýri 36,
fyrrverandi húsvörður hjá Sjálfs-
björgu, Hátúni 12, lést 8. október.
Hann fæddist 15. júlí 1913 að Böggu-
stöðum í Svarfaðardal, sonur Jónas-
ar Jónassonar og Kristínar
Jónsdóttur. Fyrri kona Ragnars var
Katrín Jónsdóttir og áttu þau einn
son. Eftirlifandi eiginkona Ragnars
er Sigríður Þorsteinsdóttir. Jarðar-
förin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 21. október kl. 15.00.
Guðríður Guðmundsdóttir, Laug-
arásvegi 25, Reykjavík, lést 11.
október. Hún fæddist 13. janúar 1909
á Sólheimum í Hreppum, dóttir hjón-
anna Guðrúnar Gestsdóttur og
Guðmundar Brynjólfssonar. Hún
giftist Matthíasi Knúti Kristjánssyni
árið 1942 en hann andaðist fyrir réttu
ári. Þau hjónin eignuðust tvö böm.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju í
dag, mánudaginn 20. október, kl.
15.00.
Sólrún Jónasdóttir frá Sílalæk,
Álfhólsvegi 53, Kópavogi, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 21. október kl. 10.30
fyrir hádegi.
Bjarni Guðjónsson myndhöggvari
frá Bæ í Lóni verður jarðsunginn
þriðjudaginn 21. október kl. 13.30 frá
Dómkirkjunni.
Broddi Magnason, Bröttuhlíð 9,
Akureyri, sem lést í Landspítalanum
11. október, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 21.
október kl. 13.30.
Einar Sigmundsson fyrrverandi
bóndi, Kletti og Gróf, Reykholtsdal,
andaðist 17. október í sjúkrahúsi
Akraness.
Jón Eiríksson, fyrrverandi Hrepps-
stjóri, Skeiðháholti, andaðist á
hjúkmnarheimilinu Ljósheimum 16.
október.
Vilborg Ingimundardóttir, áður til
heimilis að Háagerði 37, Reykjavík,
er látin. Útforin fer fram frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 21. október
kl. 16.30.
Bergþóra Hildur Ingibergsdóttir,
Njálsgötu 36, verður jarðsungin frá
Akranesi 20. október kl. 11.30.
Kristín Vigfúsdóttir, Kirkjuteigi
11, Reykjavík, er látin. Útförin fer
fram frá Laugarneskirkju mánudag-
inn 20. október kl. 13.30.
Jóhanna Sveinsdóttir Waage,
Ljósalandi 7, Bolungarvík, áður Ás-
garði 61, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju mánudag-
inn 20. október kl. 13.30.
Jónina Kristín Jónsdóttir frá Mel-
um, Djúpavogi, lést 16. október.
Minningarathöfn verður í Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 22. október kl.
10.30. Jarðsett verður frá Djúpavogs-
kirkju laugardaginn 25. október kl.
14.00.
Ingibjörg Ingvarsdóttir, Hverfis-
götu 70, Reykjavík, lést í Borgarspít-
alanum 10. október. Útförin verður
gerð frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 21. október kl. 13.30.
Fundir
Fundur Bræðrafélags Bústaðakirkju verð-
ur mánudaginn 20. október kl. 20.30 í
Safnaðarheimilinu.
Kvenfélagið Seltjörn
hefur fund þriðjudaginn 21. okt. kl. 20.30.
Gestur fundarins er séra Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
Kynningarfundur
ITC-samtökin veita alhliða þjálfun í ræðu-
mennsku og almennu félagsmálastarfi.
MELKORKA-ITC heldur félagsfundi að
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi annan
og fjórða miðvikudag hvers mánaðar kl.
20.00. Miðvikudaginn 22. október nk. verð-
ur starfsemi samtakanna kynnt. Þér er
sérstaklega boðið.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur fund í
safnaðarheimili kirkjunnar við Vestur-
brún þriðjudaginn 21. október kl. 20.30.
Vetrarstarfið verður kynnt og sýndar
myndir frá sumarferðalaginu síðastliðið
sumar. Síðan verða bomar fram kaffiveit-
ingar. Allir eru velkomnir. Stjórnin.
Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur:
Góðir framhaldsþættir
Vegna anna hef ég ekki getað
fylgst mikið með íjölmiðlum undan-
farið. Mér líst mjög vel á þá frjálsu
fjölmiðlun sem nú er komin á í út-
varps- og sjónvarpsmálum. Reyndar
hef ég ekki séð mikið af Stöð 2 en
ég hef heyrt að það séu ágætis-
bíómyndir þar. Annars finnst mér
sjónvarpið standa sig mjög vel og
þar hafa margir góðir framhalds-
þættir verið að undanfömu. Mér
finnst til dæmis mjög gaman að setj-
ast niður með bömunum og horfa á
Fyrirmyndarfoður. Það eina sem ég
get sett út á hjá sjónvarpinu er
færsla fréttatímans fram um hálf-
tíma sem mér finnst ekki koma sér
nógu vel. Fréttaþætti eins og Kast-
ljós reyni ég að horfa alltaf á. Mér
sýnist á öllu að þetta verið fremur
jöfn samkeppni á milli sjónvarps-
stöðvanna.
Bylgjan er góð útvarpsstöð en rás
1 stendur samt alltaf fyrir sínu. Hún
stendur hinum stöðvunum mun
framar vegna þess hve hún er vön-
duð og menningarleg. Þar er líka
töluvert um þjóðemislega þætti eins
og daglegt mál og fleira. Annars
hlusta ég ekki sérstaklega mikið á
útvarp nema fréttimar. Þær hlusta
ég oftast á.
Bridge Sýningar Afmæli
Frá Briddsfélagi
Hafnarfjarðar
Þ. 6. október sl. var 40 ára afmælis félags-
ins minnst og heiðruðu fjölmargir aðilar
félagið á einn eða annan hátt. Stjórn fé-
lagsins vill þakka auðsýndan heiður og
þær góðu óskir sem félaginu bárust í til-
efni þessara tímamóta.
Mánudaginn 13. okt. nk. er áætlað að
spilaður verði landsbikartvímenningur á
vegum Briddssambands íslands og hvetj-
um við alla félagsmenn til að taka þátt í
þessari nýstárlegu tilraun.
Spilamennskan hefst að venju kl. 19.30
í íþróttahúsinu v/Strandgögu og er mjög
áríðandi að spilarar mæti tímanlega.
Bridgefélag Reykjavíkur
Aðalsveitakeppni B.R. hófst sl. miðviku-
dag. Alls taka 20 sveitir þátt og verða
spilaðir 16 spila leikir, allir við alla. Allar
sterkustu sveitirnar eru mættar til leiks,
sumar lítillega breyttar. Eftir fyrsta kvöld-
ið eru efstu sveitír:
Stig
1. Pólaris 48
2. Jón Steinar Gunnlaugsson 45
3. Esther Jakobsdóttir 44
4. Sigurður Sigurjónsson 40
5. Þórarinn Sigþórsson 37
Næsta miðvikudag, 15. okt., verður ekki
spilað í sveitakeppninni heldur í lands-
bikarkeppni í tvímenningi. Spilarar eru
beðnir að mæta tímanlega vegna skrán-
ingar. Spilamennska hefst kl. 19.30 í
Hreyfilshúsinu. Allir velkomnir.
Ti]kyrmingar
Frá landlækni
Landlæknir vill benda á að mismunandi
stofnar af veirum hafa á síðustu mánuðum
valdið inflúensufaröldrum í fjarlægum
löndum, eins og Suðaustur-Asíu, Ástralíu
og Brasilíu, en einnig hefur einstakra til-
fella orðið vart í Englandi.
Þessir veirustofnar nefnast:
A/CHILE/1/83 (HlNl) (var aðallega á ferð
1984-85) .
A/Mississippi/1/85 (H3N2)
B/Ann Arbor/1/86
A/Singapore/6/86 (HlNl)
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur
því ráðlagt að einstaklingar, sem nauðsyn-
legt er talið að bólusetja, verði bólusettir
gegn öllum þessum veirustofnum. Nú þeg-
ar er fyrirliggjandi bóluefni gegn 3 af
þessum stofnum og hafa um 10.000 eining-
ar bóluefna verið afgreiddar af Lyfja-
verslun ríkisins tU lækna og heilsu-
gæslustöðva. Bóluefni gegn veirustofni
af tegundinni A/Singapore/6/86 (HlHl)
verður tilbúið til dreifíngar í fyrsta lagi í
nóvember og hefur það þegar verið pantað.
Eins og öll undanfarin ár eru bólusetn-
ingar gerðar að ráði heimilislæknis eða
heilsugæslulæknis. Landlæknir.
Aukasýning á Toscu
Nú er þegar orðið uppselt á allar sýningar
Toscu til mánaðamóta en þá bregður
Kristján Jóhannsson sér yfir hafið á nýjan
leik til að syngja í bandarískum óperuhús-
um. Því verður aukasýning á Toscu
Iaugardagskvöldið 25. október, en miða-
sala fyrir þá sýningu hefst á þriðjudag.
Kortagestir á 10. og 11. sýningu hafa
möguleika á að nýta sér aukasýninguna í
staðinn þar sem sýningar á Toscu hefjast
ekki aftur eftir sýningahlé fyrr en 19. nóv-
ember þegar Kristján er kominn aftur til
að syngja hlutverk Cavaradossi.
Slunkaríki
f dag, Iaugardaginn 18. október, opnar
Pétur Guðmundsson sýningu á málverkum
í Slunkaríki á ísafirði. Pétur lauk námi
frá kennaradeild Myndlista- og handíða-
skóla fslands og hefur síðan um árabil
kennt teikningu við grunnskólann á
fsafirði. Sýningin stendur til 30. október.
Ymislegt
Minningargjöf
Nýlega barst Blindravinafélagi íslands,
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og
Styrktarfélagi vangefinna arfur eftir
Kristbjörgu Ingólfsdóttur, Framnesvegi
16, Reykjavík, að upphæð tæpar 2,5 millj.
króna, sem skiptist jafnt á milli félaganna.
Kristbjörg heitin var fædd 2. des. 1899 og
andaðist í Reykjavík 16. ágúst sl.
Þessi rausnarlega gjöf er gefm til minn-
ingar um foreldra Kristbjargar, þau
Elísabetu Jónsdóttur, f. 16. sept. 1861, d.
15. okt. 1929, og Ingólf Kristjánsson, f. 19.
júní 1865, d. 29. janúar 1963, og systur
Kristbjargar, Helgu Ingólfsdóttur, f. 9.
nóv. 1895, d. 5. des. 1970.
Félögin meta mikils þessa góðu gjöf og
þann hlýhug sem henni fylgir. Gjöfin mun
styrkja starfsemi félaganna verulega en
markmið þeirra allra er að búa í haginn
fyrir fatlað fólk.
75 ára er í dag, 20. október, Kjartan
Guðmundsson, Álfaskeiði 35,
Hafnarfirði. Hann tekur á móti gest-
um ásamt konu sinni Hugborgu
Guðjónsdóttur í Gaflinum við
Reykjanesbraut í kvöld frá kl. 20.00 -
23.30.
IVö innbrot í nótt:
Þjófamir
gripnir
á báðum
stöðunum
Lögreglunni var tilkynnt um tvö
innbrot um miðnættið í nótt, annars
vegar í Tómstundahöllina og hins veg-
ar í Blómaval. Á báðum stöðunum
voru þjófamir gripnir á staðnum, tveir
á hvorum stað. í fyrra tilfellinu náð-
ust þeir inni í búðinni en i því seinna
náðu þeir að flýja af vettvangi. Þar
var þá mættur stórhlauparinn Aðal-
steinn Bemharðsson sem átti ekki í
miklum vandræðum með að elta þjóf-
ana uppi. Var þetta sögð ágætis óvænt
æfing fyrir hann.
Annað parið sem náðist í nótt mun
hafa játað fjölmörg önnur innbrot á
sig. Síðast þegar fréttist vom þau orð-
in 13 talsins.
-FRI
Forval Framsóknarflokksins
Guðmundur Bjamason
hlaut flest atkvæði
Úrslit í forvali Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
lágu fyrir á fostudaginn. Að sögn Áma
V. Friðrikssonar í kjömefhd, var
markmiðið með forvalinu ekki að búa
til röð á framboðslista flokksins í
næstu kosningum, heldur að ftnna það
fólk sem væri vinsælast. Á aukakjör-
dæmisþingi flokksins, sem haldið
verður 4. nóvember næstkomandi,
verður síðan gengið endanlega frá
framboðslistanum.
Alls tóku sex hundmð og sautján
manns þátt í forvalinu og féllu at-
kvæði þannig:
Guðmundur Bjamason 613
Hákon Hákonarson 107
Jóhannes Geir Sigurgeirsson 194
Jón Sigurðsson
Stefán Valgeirsson
Valgerður Sverrisdóttir
Valur Amþórsson
Þóra Hjaltadóttir
Þórarinn Sveinsson
Þórólfur Gíslason
131
387
446
189
119
141
189