Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 43-- Sviðsljós Parisarsyningarnar: Ekl<i svipur hjá sjón Hápunkturinn í frönskum tísku- iðnaði er án efa Prét-á-porter sýning- arnar sem haldnar eru í hjarta Parísarborgar. Staðarvalið er ekki af verri endanum því undir viðburð- inn eru yfirleitt lagðir Tuleriesgarð- arnir eða inngarðurinn í Louvresafn- inu. Þangað safnast tískuspekúlant- ar og kaupendur alls staðar að úr heiminum, tískuhönnuðirnir sýna verk sín á lifandi sýningarfólki með tilheyrandi glæsileika. Ekki er samt minna ævintýri að fylgjast með öðr- um hliðum viðburðarins - svo sem klæðnaði gestanna sem jafnvel slær út það sem á sýningunum sjálfum er að finna - iðandi mannhaf og kampa- vín í klingjandi glösum - umhverfið fagrir garðar undir heiðum himni. Hræðslan við hryðjuverkin í ár er þessi heimsviðburður ekki svipur hjá sjón. Hræðslan við hryðjuverkamenn hefur gert það að verkum að afpantanir dynja yfir - viðskiptavinir hreinlega þora ekki að mæta þar sem von er á mann- fjölda. Og sýningarfólk sem berst um tækifæri til þess að komast að á Prét-á-porter afþakkar heiðurinn. Sýningarnar áttu að vera í Louv- regarðinum en einungis lítill hluti tískuhönnuðanna tekur þar þátt. Núna er aðalatriðið að dreifa við- burðunum á sem flesta staði til þess að minnka hættuna - sumir sýna í Louvre eða Tuleriesgörðunum, aðrir í Beaux-Artskólanum og þónokkrir eru einungis með einkasýningar í eigin tískuhúsum. Efnahagslegt tjón Áhyggjur Frakka af áhrifum alls þessa á franskt efnahagslíf hafa birst á ýmsa vegu. Víst er að ekki þarf nema eins sprengju til þess að hætt verði við hverja einustu tískusýn- ingu og óvíst hvernig þá reynist að halda þær næstu. Frönsku blöðin fjalla mikið um vandann og strax í upphafi sýninganna í síðustu viku rakti Libération helstu ástæður fyrir þessu breytta yfirbragði og fyrirsjá- anleg framtíðaráhrif. Stór nöfn eins og Valentino hafa afpantað allt sem undirbúið hafði verið í görðunum og þar eru einka- sýningar í eigin húsi fyrir mikilvæg- ustu viðskiptavinina. Sömu leið feta Terry Mugler og Jean-Paul Gaultier. Hjá hinu virta fyrirtæki Hermés var þessi sýning haldin innan veggja höfuðstöðvanna á glæsigötunni Faubourg St. Honoré. Tíska samt Varúðarráðstafanir eru gífurlegar og allir sem inn í Louvregarðinn fara þurfa að sýna sérstök skilríki. Einnig er þaulleitað á hverjum manni við inngönguna. Og kóngunum hefur þrátt fyrir allt tekist að koma boð- skapnum til skila þannig að ljóst er að ýmsar upplýsingar eru komnar í hendur þeirra sem byggja afkomu sína á fjölföldun hugmynda þeirra stóru. Kenzo og Chantal Thomass segja kvennabúrsbuxur helst koma til greina á bæði kynin - annaðhvort úr bómullarjersey eða þykku múss- ulíni. Kenzo hélt víðum buxunum uppi með einu til þremur beltum og keðjum en Chantal Thomass kaus öklasiðar skyrtur þannig að einungis sást í neðsta hluta buxnanna. Litagleðin er á undanhaldi, jarðar- litirnir eiga markaðinn með örlitlu svörtu og svarbláu ívafi. Byltingarkenndari hugmyndir koma fram hjá Comme Des Garcons og Junko Koshino. CDG höfðu síða jakka sem hnepptir eru á skakk og skjön þannig að annar boðungurinn virðist síðari og buxur með opnum skálmum svo annað hnéð var bert en hin skálmin heil. Junko Koshino var í framúrstefnunni með baklaus- um vestum og frakka og kápur höfðu yfirleitt misvíðar ermar. Þannig að þrátt fyrir að Prét-á- porter tískan sé að þessu sinni sýnd í skugga ofbeldis og hryðjuverka er augljóst að ekki hefur andrúmsloftið haft letjandi áhrif á sköpunargáfu tískuspekúlantanna. Vandamálið er einungis að fá kaupendurna á stað- inn. -baj Starfsliðið tók sér það bessaleyfi að grinast ofurlítið með útlitið - enda sýningarfólk öruggara þarna en í Louvregarðinum. DV-myndir baj Piparsveinsins draumur Ef treysta má karlritum margs konar eru svona kvensur velkomnir gestir í draumi hvers piparsveins. Svartklæddar og sexí sokkabuxnadisir tifandi á tánum, leikandi við hvurn sinn fingur. Þetta er annars ekki draumur heldur blákaldur veruleiki - DV-mynd BG tekin á Broadway þegar Sumargleðin kvaddi landsmenn þetta haustið. Vetur genginn i garö og þvi verða draumadísirnar að bregða sér í skjólbetri flikur - setja upp húfu, trefil og vettlinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.