Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
31
dv Sandkom
Ódýra góssiö fiæöir ínn i landiö.
Verslunar-
æði
Þessar vikurnar eru íslend-
ingar alteknir verslunaræði.
Allirsem vettlingi geta valdið
og efni hafa á þeytast til Glas-
gow til að versla. Er nú svo
komið að Flugleiðir hafa vart
undan að íerja hina kaup-
glöðu milli landa.
Ekki mun óalgengt að þeir
sem fara í slíka verslunarleið-
angra séu með drjúga yfirvigt.
Eru þess dæmi að fólk sé með
28 30kílóumofmikiðsemer
vissulega vel af sér vikið þegar
haft er í huga að leyfð vigt er
20 kíló. Þess munu einnig
dæmi að fólk hafí orðið að
skilja hluta farangursins eftir
þar sem það hefur birgt sig svo
vel upp í útlandinu að ekki
er pláss í vélinni fyrir allt
góssið. Sex rafmagnshitaplöt-
ur síga til dæmis vel í en það
var skammturinn sem ein ís-
lenska frúin keypti í Glasgow
„af því að þær voru svo ódýr-
ar“.
Kaupmenn þar ytra eru
auðvitað þrumu lostnir yfir
atganginum í íslendingunum.
Standa þeir margir hverjir í
þeirri trú að nú sé orlofstími
á íslandi og noti fólk hann til
að bregða sér út fyrir land-
steinana til að versla. Einhver
skýring hljóti nefnilega að
vera á þessu fyrirbæri.
Hitt er svo annað mál
hvernig jólaversluninni hér á
landi reiðir af í þessum darr-
aðardansi. Það kemur í ljós á
næstu vikum.
Garðar Sigurösson.
Þymum stráð
Skvrsla nefndar þeirrar er
rannsakað hefur samskipti
Hafskips og Útvegsbankans
hefur hlotið mikla umfjöllun
í fjölmiðlum. Þar kemur meðal
annars fram nokkur gagnrýni
á bankaráðið. Þetta rifjar upp
þann baming sem varð þegar
koma átti ráðinu, því arna,
saman í fyrra. Þá endurkaus
Alþýðubandalagið Garðar
Sigurðsson alþingismann í
bankaráðið, þrátt fyrirmikla
gagnrýni, og af því tilefni varð
eftirfarandi staka til:
Vitsmunumbeita aflipurð
oglist
þótt leiðin sé oftlega
þyrnum stráð.
Þeir hneykslast á mönnum
~ sem krossfestu Krist
en kjósa svo Garðar
í bankaráð.
Tveirí
heiðurssætum
Eins og menn eflaust muna
bauð harðsnúinn flokkur
fólks fram á Húsavík í síðustu
sveitarstjómarkosningum.
Þeir kölluðu sig þá Víkverja.
Þeir komu þá að einum manni,
Pálma Pálmasyni íþrótta-
kennara.
Nú hefur heyrst að Víkveij-
amirætli aðbjóðaframfyrir
næstu alþingiskosningar.
Ætla þeir að færa kvíarnar út
fyrir Húsavík og þar af leið-
andi að bjóða fram undir
heitinu „Þjóðverjar" í þetta
sinn. Umrætt framboð „Þjóð-
verja“ mun einkum ætlað til
að leysa vandræði Framsókn-
ar í Norðurlandskjördæmi
eystra. I því skyni hyggjast
þeir bjóða Þórólfi Gíslasyni,
kaupfélagsstjóra á Þórshöfn.
17. sætið á listanum. Það 18.,
sem erheiðurssætið, ætla þeir
að bjóða sjálfum Stefáni Val-
geirssyni sem vissulega má
vera fullsæmdur af. Segir sag-
an að „Þjóðverjar" hafi þegar
skrifað Stefáni og Þórólfi bréf
og boðið þeim umrædd sæti
en við litlar undirtektir tví-
menninganna.
Lausir
hundar
I.ausir hundar hafa gert
nokkum usla á Akranesi að
undanfömu. Þeir eiga það
sameiginlegt með fyllibyttun-
um að koma óorði á hina sem
saklausir eru, eins og fram
kemur í viðtali Skagablaðsins
við heilbrigðisfulltrúa staðar-
ins.
En það er líka hundur í heil-
brigðisfulltrúanum út í þá sem
láta hunda sína ganga lausa
því um þá segir hann að þetta
sé „fámennur minnihluti sem
ekki hefur þroska til að halda
hund“.
Einhver myndi nú spyija
sjálfan sig hvort það væri yfir-
leitt þroskamerki að reyna að
halda hund í þéttbýli. Spyr sá
sem ekki veit.
Ólafur E. Friðriksson.
Slátrarinn
Ólafur E. Kriðriksson,
fréttamaðurá Stöð 2, þykir
beinskeyttur í fréttamennsk-
unni. Fýsir fáa að lenda í
klónum á honum viti þeir upp
á sig einhverja skömm, eins
og eftirfarandi sýnir best:
Það var skömmu eftir að
Ólafur hafði tekið fyrir sjóða-
mál Stefáns Benediktssonar í
fréttatíma að hann átti leið
niður í þing. Þegar fréttamað-
urinn sást stika inn gangana
heyrðist einn þingmaðurinn
muldra:
„Hana, kemur nú slátrar-
inn! Hvem skyldi eiga að taka
af í dag?“
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Það er mikið sungið i „Jörundi." Hér sést hluti leikara taka lagið meö Ingunni Jensdóttur. DV-mynd Ragnar Imsland
Jörundur á Höfn
Júlía Imsland, DV, Hcfri:
Leikfélag Homaflarðar æfir nú leik-
ritið Þið munið hann Jömnd eftir
Jónas Ámason undir stjóm Ingunn-
ar Jensdóttur. Frumsýning verður
laugardaginn 15. nóvember.
Á þriðja tug fólks fer með hlutverk
í leikritinu. Helstu hlutverk em:
Jömndur, leikinn af Bjartmar
Ágústssyni, Charlie Brown, leikinn
af Kristjáni Einarssyni, TVámpe
greifi, leikinn af Þorvaldi Viktors-
syni og Stúdíósus, leikinn af Gísla
Arasyni. Sönghóp skipa: Maiý,
Ragnheiður, Paddý, Jóhann, Johnny
og Sigurður. Aukaspilarar em Svava
Bjama og Siguijón.
Þetta er 36. verkefni félagsins.
Fyrirhugað er að fara með leikritið
um Suðurland.
Ert þú
í tímaþröng a daginn?
Við höfum opið fyrir þig
á þriðjudögum og fimmtudögum til kl. 20.
Hárgreiðslustofa
Siggu Pinnbjöms.
Engihjalla 8, Kóp.
Ath. Einnig er opið 0 húsí Kaupgarðs) ^
á laugardögum. 5ÍMI: 44645^
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
LAUS KENNARASTAÐA
Við Fjöibrautaskólann í Breiðholti er kennarastaða í
dönsku og þýsku laus til Umsóknar frá næstu áramót-
um.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 10. des-
ember næstkomandi.
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
VOLVOSALURINN
SKEIFUNN115. S. 35200
Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 61.000 Volvo 360 árg. 1984, ekinn 41.000
km, Ijósbrúnn, beinskiptur, yfirgír, km, blár metallic, beinskiptur, 5
læst drif og fleira. Verð 420.000. gíra. Verð 380.000.
Volvo 244 GLárg. 1982, ekinn 59.000 Volvo 244 DL árg. 1983, ekinn |
km, beige, sjálfskiptur, fallegur bill. 40.000, sjálfskiptur, silfurmetallic,
Verð 400.000. fallegur bill. Verð 420.000.
^IIÉI
Volvo 244 GL árg. 1979, ekinn Volvo 244 DL árg. 1982, ekinn
105.000, gullmetallic, beinskiptur. 68.000, beinskiptur, blár. Verð
Sumardekk á felgum fylgja. Verð 350.000. Góð kjör.
250.000.
Volvo 244 GL árg. ’82, beinskiptur, O.D., gullmetal., ekinn 49.000.
Verð 390.000.
Volvo 244 GL árg. ’82, beinskiptur, O.D., blár metal., ekinn 49.000.
Verð 400.000.
Mazda 626 árg. '82, beinskiptur, Ijósgrænn metal,. ekinn 83.000.
Verð 240.000.
Volvo 244 GLT. árg. ’82, beinskiptur O.D., silfurmetal., ekinn 51.000.
Verð 450.000.
Saab 99 GL árg. '79, beinskiptur, rauðbrúnn, ekinn 70.000. Verð
210.000. Toppbíll.
★ Nýr 500 m2 bílasalur.
★ Nýjar hugmyndir.
★ Góð kjör.
★ Úrval notaðra bíla.
★ Heitt á könnunni.
OPIÐ ALLA DAGA FRA KL. 9.00 TIL 18.00.
LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00.
VOLVOSAUJRINN
SKEIFUNNI 15, SÍMI 35200