Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Síða 6
Útiönd LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987. Hu segir af sér flokksformennsku Zhao forsætisráðherra verður formaður til bráðahirgða Hu Yaobang, leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, sagði af sér flokksformennsku í gær eftir að hafa meðgengið ýmis pólitísk „mistök". - Zhao Ziyang forsætisráðherra mun til bráðabirgða gegna formennsku í hans stað. Gagnrýndur á fundi flokksfor- ystunnar Það hefur verið kvittur á kreiki undanfama daga um að Hu hefði veikst í sessi og sætti gagnrýni innan flokksforystunnar fyrir að hafa miste- kist að bæla strax niður námsmannaó- eirðimar í síðasta mánuði, þar sem ungmenni höfðu uppi kröfur um aukið lýðræði og meira tjáningarfrelsi. Var boðað til fundar í steíhuskrámefrid í gær þar sem til tíðinda dró. „Á fundinum gagnrýndi félagi Hu Yaobang sjálfan sig og mistök, sem honum hefðu orðið á í meiriháttar málum, svo að stangaðist á við grund- vallarreglur flokksins og samstarfs- mannanna í forystu flokksins," segir í frétt frá hinni opinberu fréttastofu „Nýja Kína“. - „Aðrir fundarmenn veittu Hu Yaobang flokkslegar ákúrur en luku lofsorði á þann árangur sem honum verður þakkaður þann tíma sem hann heftxr verið formaður." Hu Yaobang, sem margir ætluðu að yrði arftaki Dengs, neyddist til að víkja úr formennsku flokksins eftir stúd- entaóeirðimar. í fréttatilkynningunni er tekið fram að Hu, sem verður 72ja ára á þessu ári, muni halda öðrum embættum og sitja áfram í stefriuskrámefhd og halda sæti sínu í miðstjóminni. Valinn af Deng Hu varð flokksformaður 1981 og var valinn af valdamesta manni Kína, Deng Xiaoping. Leysti Hu af hólmi Hua Guofeng sem laut þar í lægra haldi í valdatogstreitunni fyrir Deng. Þykir brottvikningu hans núna bera brátt að og bregður mörgum í brún að valdamaður, sem staðið hefur jafn- nærri Deng og Hu hefur gert, skuli látinn víkja svo fyrirvaralítið. Þykir það árétta hve mjög stúdentaóeirðim- ar hafa hrist upp í flokksfoiystunni og valdapíramídanum í Peking. Þó er til þess tekið hve vægum orð- um er farið um gagnrýnina á Hu og eins þá staðreynd að hann skuli látinn halda ýmsum öðrum trúnaðarembætt- um innan flokksins. Þó hafa ýmsir menningarfrömuðir innan flokksins, sem hafa þótt standa Hu nærri, sætt harkalegri gagnrýni opinberlega að undanfomu og sumir þeirra hafa bein- línis verið sakaðir um að hafa æst stúdenta til óeirða með því að halda að þeim að Kína ætti að sækja sína fyrirmynd í stjómarkerfi vestrænna lýðræðisríkja. Sveitungur Maos og Sjú Enlæs Hu er fæddur í Hunan-héraði, sem var heimahérað þeirra Maos formanns og Sjú Enlæs forsætisráðherra og tók þátt í kommúnistauppreisninni þar 1927, þá aðeins tólf ára gamall. Hann var meðal þeirra yngstu sem tóku þátt í göngunni miklu undir forystu Maos norður í land á miðjum fjórða áratugn- um. Eftir valdatöku kommúnista gegndi Hu ýmsum trúnaðarstörfum í hreyf- ingu ungkommúnista en eins og margir aðrir áhrifamenn lenti hann úti í kuldanum í menningarbylting- unni 1965 til ’70. Eftir að hann sneri aftur til stjómmálaafskipta á seinni hluta áttunda áratugarins, komst hann, undir handleiðslu Dengs, fljót- lega í fremstu raðir. Hann tók sæti í stefhuskrármefnd flokks 1980 og ári síðar leysti hann Hua Guofeng af í formennskunni. Deng ætlaði Hu meiri frama Hu hefur verið einn aðalbroddurinn í endurskipulagningu Dengs Xiaop- ings á kínverska kommúnistaflokkn- um síðan 1979. Að flestra mati hafði það verið vilji og ásetningur Dengs að Hu tæki við af honum. Hu hefúr ferðast meira er- lendis, sem leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins, en flestir fyrir- rennara hans. I fyrra til dæmis heimsótti hann fjögur Evrópulönd. Of berorður Hann hefur í gegnum tíðina, eftir að Mao formaður andaðist 1976, verið opinskár gagnrýnandi hins látna þjóð- arleiðtoga og hefúr verið mjög áber- andi í kínverskum fjölmiðlum og í móttökum erlendra gesta. Hann hefur þótt berorðari í ræðum sínum en venjulegt er um kínverska ráðamenn og ræðustíllinn líkari miklu yngri manns. Sú bersögli hefúr líka ósjaldan komið honum í nokkum vanda. Á miðju ári í fyrra olli hann þó- nokkru fjaðrafoki þegar hann sagði opinberlega að Taiwan þjóðemissinna hefði löglega stjóm. Hefúr hann enda með máldirfsku sinni áunnið sér tor- tryggni og andstöðu ýmissa innan hins íhaldssamari arms flokksins og þá sér í lagi foringjanna í hemum. „Eg er enginn jámkarl, heldur af holdi og blóði og með mínar tilfinning- ar,“ sagði hann einu sinni. Hu var meðal hinna fyrstu frammámanna sem hætti að ganga í hinum hefðbundnu Mao-mussum og íklæddist fatnaði á vestræna vísu. - Hann er kvæntur, á þrjá syni og eina dóttur. Eftirfýstir Baskar handteknir í Síðastliðin tólf ár hafa Baskar lýst yfir ábyrgð á rúmlega fimm hundruð morðum. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb. Lb.Úb.Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 9-11 Sp 6 mán. uppsögn 10-15 Ib 12 mán. uppsögn 11-18.25 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 18-18 Sp Sparnaður- Lánsréttur Sparað i 3-5 mán. 9-13 Ab Sp. i 6 mán. og m. 8-13 Ab Avisanareikningar 3-9 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sp Innlán verðtryggð Spar í reí kningar * 3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb Gmán. uppsögn 2.5-4 Úb Innlán með sérkjörum 8.5-18 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 9.5-10.5 Ab Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab Oanskar krónur 8.5-9.5 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv) 15.75-18 Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21 Almenn skuldabréf(2) 16-18,5 Lb Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-18,5 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5-6.75 Lb Til lengri tíma 6-6,75 Bb.Lb Utlán til framleiðslu isl. krónur 15-16.5 Sp SDR 6-8,25 Allir nema Ib, Vb Bandarikjadalir 7.5-7.75 Sb.Sp Sterlingspund 12,75-13 Allir nema Ib Vestur-þýsk mörk 6.25-6.5 Bb.Sb. Vb.Sp Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5-6.5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala jan. 1565 stig Byggingavisitala 293 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 7,5% l.jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 111 kr. Eimskip 228 kr. Fluglciðir 200 kr. Hampiðjan 133 kr. Iðnaðarbankinn 130 kr. Verslunarbankinn 110 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um. Spönsk yfirvöld tilkynntu í gær að þau hefðu haft hendur í hári liðs- manna Baska í Madrid en þeir hafa staðið á bak við margar blóðugar árás- ir á öryggissveitir landsins. Snemma í gærmorgun voru nokkrir liðsmenn árásarsveitarinnar í Madrid handteknir og fundust þá samtímis vopn og sprengiefni. Samkvæmt upp- lýsingum innanríkisráðuneytisins voru það þrír menn og þrjár konur sem voru tekin föst. Ásrásarsveit Baska í Madrid var sökuð um að hafa staðið á bak við eldflaugaárás á vamarmálaráðuneyt- ið í júlí síðastliðnum og sprengjuárás á strætisvagn í Madrid í sama mán- uði. Við árásina létust tólf öryggis- verðir. Undanfarin tvö ár hefúr lögreglunni tekist að leysa upp árásarsveitir í hér- uðum Baska og í fyrrasumar biðu þeir frekari afhroð þegar frönsk yfirvöld vísuðu tuttugu og sjö grunuðum úr landi til Spánar. Franska lögreglan fann einnig miklar vopnabirgðir og mikilvæg skjöl varðandi fjárhag sam- takanna og skipulagningu starfsem- innar á alþjóðlegum vettvangi. ETA, frelsissamtök Baska, beijast fyrir sjálfstæðu ríki en yfirvöld hafna öllum viðræðum um slíkar kröfúr. Frá því að Franco lést árið 1975 hafa Ba- skar lýst yfir að þeir beri ábyrgð á rúmlega fimm hundruð morðum þrátt fyrir að þeim hafi verið tryggð viss sjálfstjóm við endurreisn lýðveldisins. í fyrra myrtu Baskar fjörutíu og tvo menn, aðallega öryggisverði. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Guðmundur G. Pétursson Frumbyggjar Kanada greiða atkvæði um skiptingu landsvæða Samkomulag hefur náðst um að skipta landsvæðum norðvesturhluta Kanada í tvennt og munu íbúar þar ganga til allsherjaratkvæðagreiðslu um skiptinguna. Ibúar þessa landshluta em aðeins fimmtíu og eitt þúsund talsins. Flest- ir þeirra em ínúítar eða eskimóar og búa þeir í eystri hémðunum. In- díánar og aðrir búa hins vegar í vesturhlutanum. Tillaga um að skipta landsvæðun- um í tvennt hefur legið fyrir í mörg ár en ekki hefur tekist að komast að samkomulagi um hvar draga eigi markalínuna. Vonast stjórnmála- menn og fulltrúar frumbyggja, sem þingað hafa í fleiri vikur, til þess að skiptingin verði orðin að raunvem- leika árið 1991. Landsvæðið er nú undir yfirráðum Kanadastjómar en nýtur ekki rétt- inda sem fylki. Guðaveigar til spiilis Næstum því tíu þúsund viskíflöskur sprungu í smámola í frosthörkunum sem ve- rið hafa í Noregi að undanförnu. Hafði flöskunum verið komið fyrir á lestarvagni sem tengja átti við flutningalest. Áætlunar- staður var Lillehammar. Þegar komið var að guðaveigunum höfðu þær orðið kuldabola að bráð eftir fimm daga útivist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.