Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1987, Page 30
*30 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987. Fasteignagjaldendur, Mosfellshreppi Álagningu fasteignagjalda 1987 í Mosfellshreppi er lokið. Gjalddagar hafa verið ákveðnir 15. janúar, 15. mars og 15. maí. ... . Sveitarstjori Grunnskólinn á ísafirði auglýsir Viljum ráða myndmenntakennara í rúmlega heila stöðu nú þegar. Ennfremur vantar forfallakennara í hlutastörf. Allar nánari upplýsingar veltir skólastjóri, Jón Baldvin Hannesson I símum 94-3044 (v.s.) og 94-4294 (h.s.) FLUGMÁLASTJÓRN Járnsmiðir Járnsmiður óskast á vélaverkstæði flugmálastjórnar á Reykjavíkurflugvelli. Þarf að vera vanur logsuðu. Upplýsingar hjá yfirverkstjóra. Flugmálastjórn TÖCGURHR SAAB UMBOOIÐ Bildshöfða 16 - Simar 681530 og 83104 Seljum ídag Toyota Crown disil, árg. '82, 4ra dyra, rauður, beinskiptur, 5 gíra, vökva- og veltistýri, litað gler, ekinn 110 þús. km. Verð kr. 480.000,- Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Laufvangi 5, 2. hæð, íbúð nr. 7, Hafnarfirði, þingl. eign Skúla Kristjánssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 21. janúar 1987 kl. 13.30. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var 190., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Melabraut 57, vesturenda, Seltjarnarnesi, þingl. eign Jóns Vals Smárason- ar, fer fram eftir kröfu Ásgeirá Thoroddsen hdl. og Eggerts B. Ólafssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 19. janúar 1987 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 3., 5. og 8. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Álfaskeiði 74, íbúð á 2. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Guðbjargar Magnús- dóttur, fer fram eftir kröfu Friðjóns Ö. Friðjónssonar hdl. á eigninni sjálfri ^ miðvikudaginn 21. janúar 1987 kl. 15.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 24., 30. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Ölduslóð 39, Hafnarfirði, þingl. eign Rúnars Karlssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 21. janúar 1987 kl. 14.45. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hverfisgötu 41 a, Hafnarfirði, þingl. eign Hall- dórs Waagfjörð og Ástu Þorvaldsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 21. janúar 1987 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hverfisgötu 9, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnars I. Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 21. janúar 1987 kl. 13.30. ________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Handbragð Evrópumeistarans - Skákirfrá Evrópumeistaramóti unglinga í Groningen Vassily Ivanchuk heitir sá sem bar sigur úr býtum á Evrópumeist- aramóti unglinga í Groningen um áramótin og er sovéskur. Nafii hans hljómar ekki kunnuglega enn sem komið er, énda er hann aðeins 17 ára gamall og tefldi í Groningen í fyrsta skipti utan síns heimalands. Þar hefur hann þó getið sér gott orð, varð efstur á unglingamóti skömmu áður en hann hélt til Gron- ingen. Sovétmenn senda heldur ekki hvem sem er til útlanda að tefla skák. Samkeppnin er gífurleg þar í landi og hæfileikamir verða að vera fyrir hendi svo menn fái að hleypa heimadraganum. Samt er það svo að margir sovésku þátttakendanna, sem teflt hafa í Groningen, hafa ekki reynst þeir bógar sem búist var við. Sumir hafa hreinlega hætt að tefla og öðrum hefur hætt að fara fram.' Taflmennska Ivanchuk í Groning- en var annars ósköp lík taflmennsku annarra sovéskra pilta, sem þar hafa teflt. Skákmenn virðast fá staðlaða þjálfun þar eystra frá blautu bams- þeini og þeir vilja oft tefla í „skóla- bókarstiT langt ffarn eftir aldri. Það er nokkuð augljóst er skákir þeirra em bomar saman við skákir jafn- aldra þeirra frá Vesturlöndum, að þeir sovésku em betur heima í „stra- tegíu“ og endatöflum. Hins vegar hefur margt breyst hvað byxjana- þekkingu varðar. Ekki em mörg ár síðan ungir skákmenn á unglinga- mótum litu upp til austantjalds- manna og bám ótakmarkaða virðingu fyrir byijanaþekkingu þeirra. Nú virðast vestrænir skák- menn engu lakar að sér í fyTana- fræðum og stundum betur. Nýju tu skákimar á stórmótum í VesT Evrópu eiga greiðari aðgang tii þeirra heldur en austur fyrir jám- tjald og byijanabækur hafa verið gefiiar út í stórum stíl, einkum í Englandi. Fræðafákum fer sem sagt fjölgandi en um leið eykst tala þeirra, sem kunna sæmilega að tefla. Lítum á tvær skákir frá Groning- en, þar sem Evrópumeistarinn er í aðalhlutverki. í fyrri skákinni er tískuafbrigði af franskri vöm til umræðu og báðir fara troðnar slóðir framan af tafli. Þetta afbrigði hefúr hvergi verið viiisælla en einmitt í Sovétríkjunum, einkum á sovéska meistaramótinu í Kiev í fyrra. Ivanc- huk er því að sjálfsögðu mjög vel með á nótunum og er komið er fram í miðtaflið kemur í ljós að skilningur hans á stöðunni er meiri heldur en andstæðingsins. Hann gerir síðan út um taflið með lítilli fléttu. Hvítt: Ivanchuk (Sovétríkjunum) Svart: Brenninkmeijer (Hollandi) Frönsk vöm. I.e4 efi 2.d4 dð 3.Rd2 RfS 4.eS Rfd7 5x3 cð 6.Bd3 Rc6 7.Re2 cxd4 8.cxd4 fS 9.exf6 frhl. Rxf6 10.Rf3 Bd6 11.0-0 Dc7 12.Rc3 a6 13.Bg5 0-0 14.Bh4 Allt er þetta eftir þekktum braut- um og þarfnast ekki athugasemda. Hvítur hefúr í hyggju að ná fram uppskiptum á svartreitabiskupum með Bg5-h4-g3. Ég hygg að Viktor Kortsnoj hafi fyrst komið með mót- leik svarts upp á yfirborðið. Síðan hefúr svartur unnið margar skákir á þetta afbrigði þó varla sé hægt að segja að hann standi betur. 14.-Rh5 15.Hel g6 Þetta er einmitt hugmynd Kortsnoj. Drottningin er síðan á leið til g7, þar sem hún þrýstir á d4-peðið. í mörgum tilvikum fómar svartur skiptamun á f3 til þess að ná d4 og bijóta sér leið fram. Eini annmarki síðasta leiks svarts er að hann veik- ir svörtu reitina kringum kónginn. Ivanchuk telur því réttlætanlegt að draga biskup sinn aftur til baka og reyna að styrkja miðborðsstöðuna, þótt það kosti tíma. 16.Bg5!? Dg7 17.Be3 Bd7 18.Bfl Hae8 19. g3 He7?! 20.Re5! Síðasti leikur svarts var óheppileg- ur og hvítur notar tækifærið. Nú er hann tilbúinn að styrkja stöðuna enn frekar með f2 -f4, svo svartur grípur til þess ráðs að fóma skipta- mun. Hann hefur orðið undir í byrjanabaráttunni. 20. -Rxe5 21.dxe5 Bxe5 22.Bc5 Hef7 23.Bxf8 Hxf8 24.Hcl Bd4 25.He2 Df6 Svartur hefur peð fyrir skiptamun- inn og það er ekki hlaupið að því að brjótast gegnum stöðu hans. Hvítur fer sér að engu óðslega en hann þarf aftur á móti ekki að bíða lengi eftir afleiknum. 26,Dd2 Rg7 27.Bg2 Rf5 28.Khl Kg7? 29.g4! Rh4 30.g5 Df4 Drottningin verður að hafa auga með biskupnum, því að 30.-Bxc3 samrýmist bersýnilega ekki hags- munum svarts. En nú fellur sprengj- an... 31. Rxd5! Dg4 Því að eftir 31.-exd5 32.He7 + fell- ur biskupinn á d7 og eftir drottn- ingakaupin vinnur hvítur endataflið létt. 32. Re3 Bxe3 33.fxe3 Bb5 34.H£2 Rf5 35.Hc7+ Kg8 36x4 - Og svartur gafet upp. í seinni skákinni hyggst Ivanchuk sprengja upp peðamiðborð svarts á sígildan hátt, eins og hann hefúr vafalaust séð í mörgum fyrirmyndar- skákum frá dögum Tigrans heitins Petrosjans. En í þetta sinn bregst honum bogalistin. Mótheijinn, Piket frá Hollandi, finnur skemmtilega lausn á vandamálunum og með frumlegum taktískum sveiflum nær hann að snúa á Sovétmanninn og vinna góðan sigur. Piket er einn efnilegasti skákmaður Hollendinga- nú og hann var sá eini sem tókst að leggja Evrópumeistarann að velli. Næstu tveimur skákum tapaði hann aftur á móti en þrátt fyrir það náði hann 2. sæti á mótinu. Hvítt: Ivanchuk (Sovétríkjunum) Svart: Piket (Hollandi) Kóngsindversk vöm. I.d4 RflB 2x4 g6 3.Rc3 Bg7 4x4 d6 5.Rf3 0-0 6.Be2 e5 7.d5 a5 8.Bg5 h6 9.Bh4 Ra610.0-0 De8 ll.Rd2 Rh712.a3 Bd7 13.b3 Bf6 14.Bxf6 BxflB 15.Dc2 b6 lð.Habl Rh7 17.b4 f5 18.exf5 gxf5 19.Khl Dg6 20.f4 Kh8 21.dxe5 dxe5 22.g4 Hugmynd hvíts er að bijóta upp svörtu peðastöðuna, einangra svart peð á e5 og ná tökum á reitnum fyr- ir framan. Þar yrði hvítur riddari stórveldi. Ókostur leiksins er sá að Skák Jón L. Árnason kóngsstaða hvíts opnast. Piket tekst skemmtilega að notfæra sér það í næstu leikjum og fyrr en varir nær hann öflugri gagnsókn. 22.-axb4 23.axb4 c5! 24.bxc5 Ekki 24.dxc6 frhl. Bxc6+ og kald- ir vindar blása um hvíta kónginn. Og 24.b5 Rb4 hefði einnig komið svarta riddaranum í leikinn, sem vitanlega var aðaltilgangur 23. leiks hans. 24. -Rxc5 25.Rb3 Riddari svarts er of sterkur til þess að hann megi lifa. Þótt hvítur hafi blásið til atlögu á kóngsvæng, gælir hann við innrás eftir b-línunni. 25. -Hg8! 26.Rxc5 bxc5 27.Dd3? Nú hyggst hann svara 27.-fxg4 með 28.De3 með ásetningi á tvö peð. En svartur á mun öflugri leik. 27.-h5! 28.Hb7 RflB 29.De3 Hae8! 30. Dxc5 hxg4 Kröflug taflmennska svarts hefúr gefið ríkulega af sér. Hvítur mátti aldrei hreyfa g-peð sitt vegna mát- hótunar á g2 en nú er orðið ljóst að frumhlaup hans á kóngsvæng kom honum sjálfum í koll. Staða svarts er nú svo sterk á miðborðinu og kóngsvængnum að hann þarf aðeins nokkra leiki til viðbótar til þess að útkljá taflið. 31. Df2 Dh6 32.Hgl f4 33.Bd3 g3 34.Db2 f3 35.Hb6 g2+ - Hvítur gafet upp. Þriðja skákin er einkennandi „skákskólaskák". Ivanchuk, sem hefúr hvítt, nær lýmra tafli en stöðu- yfirburðir hans nægja þó ekki til vinnings einir og sér. Það er ekki fyrr en andstæðingur hans fer með drotttningu sína í homið að eitthvað fer að gerast. Ivanchuk brýst fram og með svörtu drottninguna að- gerðalausa í hominu reynist honum vandalaust að tína peðin. Frelsingi hans á d-línunni gerir síðan út um taflið. Hvitt: Ivanchuk (Sovétríkjunum) Svart: Manor (ísrael) Benóni-vörn. I.d4 RflB 2x4 c5 3.RÍ3 g6 4.Rc3 Bg7 5.d5 0-0 6x4 d6 7.Be2 e6 8.0-0 exd5 9.cxd5 He810.Rd2 Ra6 ll.f3 Rc712.a4 b6 13.Rc4 Ba6 14.Bg5 h6 15.Be3 Bxc4 16.Bxc4 a6 17.Dd2 Kh7 18.Habl Hb8 19.b4 b5 20.Be2 c4 21.Bd4 He7 22.a5 Dh8 23.Hbdl Rce8 24.Hfel Rd7 25.Bxg7 Rxg7 26.f4 f5 27.Bf3 Hbe8 28x5! dxe5 29.d6 Hf7 30.Bb7 exf4 31.Bxa6 He3 32.Hxe3 fxe3 33,Dxe3 f4 34.Dd4 £3 35.Bxb5 f2 + 36.Kfl RflB 37.d7 Dd8 38.Dxf2 Rf5 39.Db6 Re3 + 40.Kgl Da8 41.Dxe3 - Og svartur lagði niður vopn. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.