Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987.
3
Fréttir
Húnavatnssýslur:
Miklar
deilur um
ráðningu
aðal-
varðstjóra
Miklar deilur hafa blossað upp í
Húnavatnssýslum í kjölfar ráðn-
ingar aðalvarðstjóra lögreglunnar
á Blönduósi. Staða þessi var aug-
lýst laus til umsóknar í miðjum
síðasta mánuði og sóttu fjórir um
hana, þrír varðstjórar með 3-20 ára
starfsreynslu og einn óbreyttur
lögreglumaður.
Eftir nokkurt þóf milli sýslu-
mannsins á staðnum og dómsmála-
ráðuneytisins ákvað ráðherra að
hinn óbreytti yrði ráðinn í starfið.
í framhaldi af því hefur verið stofn-
að til undirskriftaherferðar í
sýslunum þar sem þessari ákvörð-
un er harðlega mótmælt og þess
krafist að Frímann Hilmarsson,
varðstjóri á Blönduósi, sem stýrt
hefur löggæslunni í héraðinu og
var einn umsækjenda, fái stöðuna.
Mál þetta kom inn á borð hjá
Landssambandi lögreglumanna.
Sagði formaður þess, Einar
Bjamason, í samtali við DV að
þeir hefðu í sjálfu sér ekkert að
athuga við ráðningu þess sem fékk
stöðuna þar sem hann hefði upp-
fyllt þau skilyrði sem þyrfti en
teldu eðlilegra að einhver varð-
stjóranna, sem sótt hefði um, hefði
verið ráðinn.
-FRI
Dómur í máli
Mótorskips
Fyrir Sakadómi Reykjavíkur er
genginn dómur í máli ákæruvaldsins
gegn framkvæmdastjóra og með-
stjórnanda Mótorskips en þeir vom á
sínum tíma ákærðir fyrir skjalafals,
tollsvik og undanskot undan sölu-
skatti í tengslum við innflutning á
japönskum bílum frá V-Þýskalandi á
árunum 1982-84.
í dómsorði segir að framkvæmda-
stjórinn skuli sæta 15 mánaða fangelsi
og greiða 500.000 króna sekt til ríkis-
sjóðs. Meðstjómandinn var dæmdur í
3ja mánaða fangelsi, skilorðsbundið,
og til greiðslu 75 þúsund króna sektar.
Dóminn kvað upp Pétur Guðgeirs-
son sakadómari en meðdómari var
Þorvaldur Þorvaldsson, löggiltur end-
urskoðandi.
-FRI
garnaRc?
FRAMDRIFSBÍLL
Á UNDRAVERDI
Lada Samara hefur alla kosti til aö bera sem
íslenskar aöstœöur krefjast af fólksbíl, í
utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Þaö er ekki
aö ástœöulausu sem Lada Samara er
metsölubíll, því veröiö er hreint undur og ekki
spilla góö greiöslukjör.
Lada Samara 5 gíra kr. 265.000.-
Lada Samara 4 gíra kr. 249.000.- I
QÉ
Opiö alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá 1
10—16. <
VERIÐ VELKOMIN i
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
3 góðar frá:
HOME VIDEO
Lögroglumynd i hnk
gæðafloMd.
StMosllog fjölskyidumynd.
Spennandl lögreglumynd.
Útgáfudagur 27. febr.
Einkaumboð á íslandi
myndbönd
Night Of The Lepus,
thriller með Stuart Whltman.
They Only Kill Their Masters,
thriiier með Jamos Camer.
Útgáfudagur 3. mars.
ÞESSAR MYNDIR FÁST f SÖLUTURNINUM, HÁTEICSVEGI 52, s. 21487.